Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Stanleys
Stanleys Notandi frá fornöld 130 stig

Norskur skógarkattar/persa blendingur vantar nýtt heimili (1 álit)

í Kettir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég var beðin um að finna nýtt heimili fyrir ársgamlann geldan fress kött hann er svartur á litin loðin enda hálfur skógarköttur, ein fjórði persi og ein fjórði húsköttur (mamma hans var hálfur persi og hálfur húsköttur og pabbi hans skógarköttur) Þetta er ótrúlega góður og gæfur úti köttur sem er vanur börnum og elskar að láta klappa sér.

Óska eftir tveimur kettlinga bræðrum (0 álit)

í Kettir fyrir 19 árum
Óska eftir tveimur bræðrum sem eru miklir vinir og mundi glaðir vilja fara á sama heimilið. Gott heimili (neðri hæð í tvíbýli) með stóran garð. Ef einhver hefur blíða og fallega kisu bræður fyrir mig þá endilega hafið samband als@mmedia.is . Ekki verra ef mynd af kettlingunum fylgir með ;-)

Bubba og Molly vantar nýtt heimili (2 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hæ hæ Bubba (Boxer/labrdor blendingur) ný orðin 3 ára og Molly (hrein golden) ný orðin 2 ára vantar nýtt heimili vegna sérstakra aðstæðna. Báðir eru hundanir barngóðir og lyndir vel með öðrum hundum og sumum kisum :-)) Ef einhver hefur áhuga endalega hafið samband í als@mmedia.is

"dogwalker" óskast (3 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Við heitum Bubbi (Labrador/boxer blendingur) og Molly (Golden) og okkur vantar einhvern/einhverja til að fara með okkur út 1-2 á dag . Við erum voða góð og skemmtileg og búum í Mosó . Ef þú ert 15 ára eða eldri og hefur gaman af hundum endilega hafðu samband við “mömmu” á als@mmedia.is

ALVÖRU LYFTINGARGRÆJUR TIL SÖLU (0 álit)

í Heimilið fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Body solid lyftingartæki. Bekkur, stöng, lóð, curl stöng ásamt curl bekk, handlóð. Lítið notað og vel með farið, lítur út sem nýtt (sjálfsagt mál að koma að skoða, sjón er sögu ríkari). Kostar nýtt 230 þúsund selst á 130 þúsund eða staðgreitt á 100 þúsund. Áhugasamir hafið samband í síma 5676967 eða als@mmedia.is

"dogwalker" óskast (0 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Við erum tveir hundar í Mosó sem vantar einhvern til að fara með okkur út 1-2 á dag. Við heitum Bubbi (labrador/boxer blendingur) og Molly (Golden) og erum voða skemmtileg og góð. Mamma okkar er alveg kasólétt og þjáist af hinum ýmsum meðgöngukvillum og treystir sér ekki í bili til að fara með okkur út. Þannig ef þú hefur tíma, ert eldri en 14 ára og vilt gjarnan vinna þér inn smá aura þá ættur þú að hafa samband við mömmu. E-mail als@mmedia.is eða hringja í síma 5676967

hundar og kettir (7 álit)

í Kettir fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Mig langaði bara að segja ykkur aðeins frá heimilisdýrunum mínum. Ég á tvo stóra hunda (hundur og tík) og tvo ketti (læður) annar er Norskur skógarköttur og rétt umber hundana en hinn er af Bengal kyni. Ég las nú eftir að ég fékk hana að Bengal væri ekki barngóðir né heldur kæmi þeim vel saman við önnur dýr. Annað hefur nú komið á daginn Rosie mín er mjög hrifin af börnum svo og ELSKAR hún hundana og þeir eru líka voða hrifnir af henni. Ég hef marg oft verið vitni af því þegar hún er að...

Ást milli hunda og katta (1 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Mig langaði bara að segja ykkur aðeins frá heimilisdýrunum mínum. Ég á tvo stóra hunda (hundur og tík) og tvo ketti (læður) annar er Norskur skógarköttur og rétt umber hundana en hinn er af Bengal kyni. Ég las nú eftir að ég fékk hana að Bengal væri ekki barngóðir né heldur kæmi þeim vel saman við önnur dýr. Annað hefur nú komið á daginn Rosie mín er mjög hrifin af börnum svo og ELSKAR hún hundana og þeir eru líka voða hrifnir af henni. Ég hef marg oft verið vitni af því þegar hún er að...

Kettir og ólétta (19 álit)

í Kettir fyrir 20 árum
Sæl og blessuð öllsömul Þannig er máli vexti að ég er ófrísk af mínu fyrsta barni (komin 21 vikur á leið) og á tvær yndislegar læður (önnur er af Bengal kyni en hin er Norskur skógarköttur)Systur mínar og Pabbi eru alls ekki fyrir ketti reyndar gengur önnur svo langt að segja að kettir séu ógeðslegir. Báðum systrum mínum finnst ég eiga að láta kettina frá mér vegna óléttunar og tilkomandi barns en ég er nú ekki alveg á því þar sem mér þykir ofsalega vænt um þær svo og hef ég nú heyrt að í...

4 mánaða hvolpi vantar gott heimili (1 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 1 mánuði
Vegna sérstakra ástæðan vantar 4 mánað hvolp (hundi) heimili. Ég er sjálf eigandi foreldra hans. Hvopurinn hefur verið heilbrigðisskoður, ormahreinsaður og bólusettur. Mamma hans er hrein Golden en Pabbi hans er blanda af Labrador (mamma hans) og boxer (pabbi hans) Þetta er ákaflega ljúfur, gullfallegur, skemmtilegur, auðvelt að kenna,rólegur,blíður og mannelskur hvolpur. Það komu 8 hvolpar í þessu goti og eru allir eigendur alsælir með sýna hvolpa. áhugsamir hafið samband við mig á...

Í minningu um Max (62 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 1 mánuði
Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum að Boxer hundur var skotinn(ég mundi segja myrtur) rétt við Bala útivistar svæði fyrir hunda í Garðarbæ. Hefur verið fjallað um þetta máli í bæði Dv og Fréttarblaðinu í dag 25 Mars og ég ætla ekkert að fara að bæta við það. Það hlýtur að vera einhvað mikið að Guðjóni Jósepssyni bónda í Pálshúsum sem skaut hundinn og er þessi verknaður óafsakanlegur í mínum augum. Hundurinn sem var drepinn heit Max og var góður vinur minna hunda svo og er eigandi...

hvolpur til sölu (1 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Sara karmelu brún með hvíta bringu er til sölu á 8000 kr (innifalið ormahreinsun og heilbrigðiskoðun) mamma hennar er hreinn golden og pabbinn er blanda af Labrador (mamma hans) og boxer (pabbi hans) Sara var frátekin en vegna óvæntra aðstæðna þess sem tók hana frá losnaði hún. hægt er að sjá myndir af foreldrum og hvolpum hér http://spjall.hvuttar.net/viewtopic.php?t=3578 áhugasamir geta haft samband í síma 5676967

Hvolpar (33 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Kisan mín hún Damíta hafði sloppið út og verið þar í 3 daga og þegar hún kom til baka fór hún að sýna þess öll merki að hún væri kettlingarfull, ég var meiri segja búin að auglýsa kettlingana hennar á hugi-kettir undir slysabörn. Molly Golden tíkin mín hafði hins vegar farið í pössun um leið og við urðum vör við að hún væri komin á lóðerí þar sem hún er nú varla ársgömul (verður 1 árs 11 des) og við erum með ógeldan Labrador(móðir)/boxer(faðir) blending. Maðurinn hefur nefnilega ekki tekið...

Matvandur hundur (14 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég á Boxer/labrador blending sem vill helst ekki sjá þurrmat, (við erum búin að prófa 6 mismunandi tegundir af þurrmat)nema eina helst hef honum er blandað við blautmat. Hann borðar mikið ef honum finnst maturinn góður (t.d ef ég set hakk í þurrmatinn os.frv) Vandinn er að hann fær niðurgang af flestum blautmat og vill ekki sjá þurrmat eina og sér. Hann er allt of grannur þó svo að ég gefi honum að borða 3 á dag (ég tek það fram að hann fær mikla hreyfingu enda þrífst hann á því. Þar að...

Dæmi um blendinga (21 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég pantaða athyglisverða bók um blendinga sem heitir “Mutts America´s Dogs” og er eftir Brian Kilcommons og Michael Capuzzo. Í þessari bók er meðal annars fjallað við hverju þú mátt búast þegar þú blandar ákveðnum tegundum saman þó svo að það sé tekið fram að blendingar meiri segja úr sama goti geti verið með mismunandi útlit og persónuleika. Þær tegundir sem þeir töldu að blönduðst vel saman voru td. Labrador/border collie Labrador/Sheffer Labrador/Golden Retriever Labrador/Spaniel...

skilja hundar og ketttir hvort annað? (9 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Á mínu heimili búa tveir hundar (boxer/labrador blendingur sem heitir Bubbi og Golden Retriver sem heitir Molly) og tveir kettir Rosie(bengal) og Damíta(Norskurskógarköttur). Damíta er ekkert að skipta sér of mikið af hundunum og þeir eru laf hræddir við hana sem er svolítið fyndið þar sem þeir eru svo MIKLU stærri. Rosie og Molly eru hins vegar miklar vinkonur og Rosie kemur oft til Mollyar til að “ræða málin” svo eiga þær til að þrífa(sleikja) hvor annari og kúra saman sem er MJÖG sætt. Ég...

meðvirkur hundur (3 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan áttu við fjölskyldan Beagle blendings tík sem hét Kata og lifið upp í að verða 16 ára og var augastein okkar allra. Eitt sinn (Á þessu sama tíma var elsta systir mín ófrísk) neitaði hún algjörlega að borða heldur lagðist á gólfið og lét hálf furðulega, okkur þótti þetta mjög skrítin hegðun þar sem Kata var mikið matargat og ekki vön að neita mat. Hún stóð upp annað slagið en lagðist svo aftur, þetta gekk svona í 3 tíma og var Pabbi farin að íhuga að kalla út...

Þrífætta kisan (17 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Kisan mín hún Rosie ákvað að fara með mér og Bubba hundinum okkar í göngutúr sem gekk þannig fyrir sig að hundurinn var í bandi en hún vildi ekki láta bjóða sér það heldur trílaði rétt á eftir okkur (svona 2-4 manna skrefum á eftir)Ég passaði að fara ekki nálægt neini umferðargötu heldur fór upp malarveg sem liggur upp í fjall. Þessi stígur er aðallega notaður af hestamönnum endan nóg af þeim hér í Mosó. Þetta var bjart og fallegt sumarkvöld og ég taldi að við væru nokkuð örugg þarna úti í...

Eru hreinræktaðir kettir í raunini dýrir? (17 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Guð hvað ég er oft búin að heyra það hvað fólki finnist mikið að greiða 40 þúsund fyrir hreinræktaðan kött en áttar sig ekki á vinnunni og útgjöldunum sem það kostar að vera með þessa yndislegu dúllur. ENDA ÆTTI SÁ SEM ER AÐ HUGSA AÐ FARA ÚT Í KATTARÆKTUN TIL AÐ GRÆÐA PENINGA EINFALDLEGA AÐ SLEPPA ÞVÍ OG SNÚA SÉR AÐ ÖÐRU. Það eru ýmis útgjöld sem fylgja hreinu got t.d bólusetningar, ormahreinsun, heilbrigðisskoðun (og ekkert af þessu er ódýrt) síðan er það ætt bækunar en það kosta líka...

Beagle tík (0 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Sæl og blessuð Ég er að leita af Beagle hvolpi fyrir Pabba minn. Hann býr í stóru einbýli með fínum garði og vinnur að mestu heima fyrir. Auk þess sem við Fjölskyldan áttum Beagle blendings tík í 16 ár svo hann er vanur hundum. Hvolpurinn má vera blandaður en helst vill hann tík. Ef einhver veit um hvolp til sölu eða einhverja á leiðinni endilega látið mig vita. Takk fyrir als@centrum.is
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok