Fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan áttu við fjölskyldan Beagle blendings tík sem hét Kata og lifið upp í að verða 16 ára og var augastein okkar allra.

Eitt sinn (Á þessu sama tíma var elsta systir mín ófrísk) neitaði hún algjörlega að borða heldur lagðist á gólfið og lét hálf furðulega, okkur þótti þetta mjög skrítin hegðun þar sem Kata var mikið matargat og ekki vön að neita mat.
Hún stóð upp annað slagið en lagðist svo aftur, þetta gekk svona í 3 tíma og var Pabbi farin að íhuga að kalla út dýralækni þó svo að við sæjum ekkert sjávanlegt að henni.
En svo allt í einu spratt hún upp og byrjaði að borða eins og ekkert hafði úr skorist. Nokkrum mínutum seina hringdi mágur minn til að láta okkur vita að systir mín hafi rétt í þessu fætt myndar stelpu. Við gátum ekki annað en hlegið og sagt honum að Kata hafði verið að taka út fæðinguna með henni.
Þess má geta að Kata var aldrei sérstaklega fyrir lítil börn en þetta fyrsta barna barn passaði hún ávalt eins og hún ætti hana.