Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hlynur
Hlynur Notandi frá fornöld Karlmaður
254 stig

Tékkar! Óútfylltir en Undirskrifaðir! (13 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Ég var að lesa Fréttablaðið í dag og rakst á litla grein sem sat í mér. Hún er eftir Sigurð nokkurn Sigurðarson. Ekki það að efni þessarar klausu hafi, svo sem, komið mér mikið á óvart, en hún olli mér hugarangri, engu að síður. Sigurður segir frá því að sjöunda apríl, síðastliðinn, hafi Gunnar í Krossinum sagt á sjónvarpsstöðinni Omega að George Walker Bush væri ekki kjörinn af þjóð sinni (það má reyndar til sanns vegar færa), heldur væri hann kjörinn af Drottni “almáttugum” sjálfum sem...

Bandaríkin - Heimsvaldastefna eða Kristniboð (120 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Orðin/-inn þreytt/-ur á umjöllun um Íraksmálin? Hættu þá að lesa það sem hér er skrifað. Ef svo er þá mæli ég t.d. með áhugamálinu: “Brandarar”. Jæja, hið sanna eðli Bandaríska heimsveldisins er smátt og smátt að taka á sig skarpari mynd. Heimsveldi – skilgreining: Víðlent og voldugt ríki eða safn ríkja undir einni stjórn. Haldi eitthvert ykkar í einfeldni ykkar að skilgreining síðustu aldar á heimsveldi, samanber Breska-heimsveldið, sé sú eina rétta þá er kominn tími til að endurskoða það...

Íraksstríðið – Kostnaður í skiljanlegu samhengi! (33 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Ég er ekki alveg búinn að segja mitt síðasta orð í þessu máli. Ef þú ert búin/-inn að fá nóg af umfjöllun um þetta málefni þá ráðlegg ég þér að hætta að lesa þessa grein! Til dagsins í dag er áætlað (samkvæmt frétt Breska blaðsins The Guardian í dag) að kostnaður Bandaríkjastjórnar vegna innrásarinnar í írak sé 20 billjónir dala. [USD 20.000.000.000.000,-] Jafnframt er áætlað að aukalega verði kostnaðurinn um 2 billjónir dala á mánuði fram í september (Athugið að í þessari upphæð er ekki...

Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar! (183 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Áður en lengra er haldið langar mig að fagna því að ógnarstjórn Saddams Hussein skuli hafa verið steypt af stóli. Húrra fyrir því! Jæja, en það gengur ekki sérlega vel að finna efna- og sýklavopn í hinu stríðshrjáða Írak. Hvað gerir Bush ef þessi vopn finnast ekki? Við vitum að þetta var ein helsta forsenda þess að ráðist var á landið. Ja, hann verður að finna eitthvað kallgreyið og mér kæmi ekki á óvart þó að það muni gerast burtséð frá því hvort þessi vopn eru til staðar eður ei. Er hinn...

Herbalife geðveiki! (42 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Hvernig er það; er megnið af Íslensku þjóðinni búin að láta plata sig til að sturta í sig Herbalife töflum og hristingum til að geta lifað sómasamlegu lífi? Ég er að verða svo gáttaður á þessu rugli að ég er eiginlega til hliðar við sjálfan mig og það er alvarlegt ástand! Það er nú svo að aldrei áður í sögu þessa lands hefur Íslendingum staðið til boða jafn fjölbreytt úrval af hollu fæði. Af hverju er þá svona brýn “þörf” fyrir þessar vörur á landinu? Er þjóðin illa nærð og þjáist hún af...

Usenet - Fjársjóður af skjölum og upplýsingum (13 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mig langar aðeins til að fræða ykkur um “Usenet” og þann fjársjóð sem hægt er að nálgast þar. Það á svo sem ekki einungis við um “grafíkera” heldur alla sem eru að leita að upplýsingum og alls konar “resources”. Ef að þú þekkir “Usenet” þá er þessi grein ekki fyrir þig. Hún er hugsuð fyrir þá sem þekkja það ekki. “Usenet” er kerfi sem byggir á “Network News Transfer Protocol (NNTP)”. Tilgangur þess er að gefa fólki um allan heim vettvang til þess að skiptast á skoðunum og skjölum. Þetta...

Breytingar á döfinni! - Nýtt blóð! (36 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Komiði sæl. Mér til mikillar ánægju, þá var ég samþykktur sem stjórnandi hér á grafík-áhugamálinu. Þetta kom mér á gleðilega á óvart, og ég var rétt í þessu að fá “lykilinn” í hendurnar. Næstu daga ætla ég að leggja höfuðið í bleyti (leggjast undir feld) og svo fer allt á fulla ferð. Ég er með nokkrar hugmyndir sem ég þarf að útfæra aðeins nánar. Einnig er mikilvægt að fá góðar hugmyndir frá ykkur. Skrúfiði nú frá pennanum og látið skoðanir ykkar og væntingar í ljós. Ég er, á þessu stigi,...

Villiköttur - Gæludýr (31 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Smá reynslusaga af fallegum villiketti. Ég hef alltaf verið mikill kisumaður, og eftir því sem ég eldist því vænna þykir mér um ketti og því meira fara hundar í taugarnar á mér. Þannig er ég bara. Ég er leiður á þessu sífellda gjammi í blessuðum hundunum. Mér hefur líka alltaf fundist samband hunds og manns minna mig á samband þræls og húsbónda, fremur en nokkuð annað. Jæja, en þetta er bara minn smekkur. Ekkert flóknara en það. En ég er kominn út fyrir efnið. Hér kemur sem sagt sagan af...

Sorglegt! (23 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég er nýr hér á Huga, og hef alltaf haft mikinn áhuga á grafík. Það er sorglegt að sjá hvað það er steindautt hér í þessu merkilega áhugamáli. Sennilega mun enginn lesa þetta, því að hér eru eintómar grafir með tilheyrandi jarðarfaratónlist. Synd og skömm! Ég er búinn að bjóðast til að taka að mér “admin” hlutverk, en vegna þess hversu fá stigin min eru og hver fáar greinar ég hef skrifað þá verður mér trúlega ekki að ósk minni. Er enginn hér, sem hefur brennandi áhuga og uppfyllir settar...

Vangaveltur um Huga (26 álit)

í Hugi fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Sælt veri fólkið. Ég er tiltölulega nýlega farinn að venja komur mínar hingað á Huga. Mér finnst þetta stórsniðugur og merkilegur vettvangur fyrir skoðanaskipti. Þetta er afar jákvæð birtingarmynd lýðræðisins. Allir geta tjáð sig á frjálsan hátt og komið skoðunum sínum og framfæri, fengið viðbrögð og rökrætt um heima og geima. Húrra fyrir því! Samt sem áður finnst mér að hér megi margt bæta og færa til betri vegar. Ég hef tekið eftir því að of algengt er að sjá texta, hér og þar, sem minnir...

Of seint (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Húmið í glasinu, rauðvín sleikir sjóndeildarhringinn, en hvar ert þú? Depurðin liggur í grasinu, vonleysið gengur hröðum skrefum í humátt. Hvar ertu? Tíminn flýgur yfir hausamótunum á mér. Fyrr en varir er hann farinn. Of seint. Orðin hlaupa út úr garðinum. Of seint. Höf.: Hlynu

Með veggjum (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Með veggjum Læðst með veggjum þar sem kyrrðin er konungur í ríki hinnar slævandi lygnu. Falskur er friðurinn hjá þegnunum þeim er ofurselja sig ófullnægju á gleðisnauðri flatneskjunni. Til að forðast kæfandi rykmökk hringiðunnar, læðast þeir ávallt með veggjum. - - - - - - - - - - - Höf: Hlynur Samið 22. ágúst, 1993 - - - - - - - - - - -
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok