Ég er nýr hér á Huga, og hef alltaf haft mikinn áhuga á grafík.

Það er sorglegt að sjá hvað það er steindautt hér í þessu merkilega áhugamáli. Sennilega mun enginn lesa þetta, því að hér eru eintómar grafir með tilheyrandi jarðarfaratónlist. Synd og skömm!

Ég er búinn að bjóðast til að taka að mér “admin” hlutverk, en vegna þess hversu fá stigin min eru og hver fáar greinar ég hef skrifað þá verður mér trúlega ekki að ósk minni.

Er enginn hér, sem hefur brennandi áhuga og uppfyllir settar kröfur, sem er tilbúinn til þess að gerast stjórnandi hér? Ef enginn vill taka það að sér, þá er ekki um annað að ræða en leggja þetta niður; grafa gröf, jarða hinnn látna og fara með nokkur fögur orð. Blessuð sé minning þess!

Sorglegt! …og tárin streyma niður kinnar mínar!