Með veggjum

Læðst með veggjum
þar sem kyrrðin
er konungur
í ríki hinnar
slævandi lygnu.
Falskur er friðurinn
hjá þegnunum þeim
er ofurselja sig
ófullnægju á gleðisnauðri
flatneskjunni.

Til að forðast
kæfandi rykmökk
hringiðunnar,
læðast þeir ávallt
með veggjum.

- - - - - - - - - - -
Höf: Hlynur
Samið 22. ágúst, 1993
- - - - - - - - - - -