Húmið
í glasinu,
rauðvín sleikir
sjóndeildarhringinn,
en hvar ert þú?

Depurðin liggur
í grasinu,
vonleysið gengur
hröðum skrefum
í humátt.
Hvar ertu?

Tíminn
flýgur yfir
hausamótunum
á mér.
Fyrr en varir
er hann farinn.
Of seint.
Orðin hlaupa
út úr garðinum.
Of seint.

Höf.: Hlynu