Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

DrHolmes
DrHolmes Notandi síðan fyrir 16 árum, 7 mánuðum 308 stig

Má drepa fólk á netinu? (8 álit)

í Deiglan fyrir 11 árum, 8 mánuðum
Það hefur þótt voðalega eðlilegt og sjálfsagður hlutur að hver sem er geti talað illa um aðra og þess vegna logið um aðra eins og hann vill svo lengi sem að það er gert á netinu. Sumir halda að þeir megi segja hvað sem er án þess að það hafi neinar afleiðingar svo lengi sem hann gerir það í gegnum tölvu en ekki í persónu. Raunveruleikinn er aftur á móti annar. Allt sem er sagt og gert á netinu hefur afleiðingar þó svo að það hafi ekki miklar afleiðingar fyrir þann sem situr fyrir framan...

Nýjir netþættir sem heita RVK (0 álit)

í Gamanþættir fyrir 11 árum, 9 mánuðum
Langar að vekja athygli á nýjum þáttum sem heita RVK sem eru sýndir á vesen.tv Þeir eru allir á ensku! Og þeir eru eiginlega gerðir fyrir erlendann markað en ekki íslenskan. Bara nýbyrjaðir samt. RVK is a web-series about the life of people living in Reykjavik City. You will be able to follow these people and see their day go by http://vesen.tv/rvk/home.html

Íslensk þáttasería - 3 þættir komnir :) (0 álit)

í Gamanþættir fyrir 12 árum, 2 mánuðum
Ný íslensk þáttasería hefur haldið göngu sína og er kominn á þátt þrjú. Tekur smá tíma að venjast þeim eins og mörgum öðrum þáttum. Ef þú hefur ekki séð þetta mæli ég með að horfa fyrst á þátt 1 http://vesen.tv/#&panel1-3 Svo eru líka aukaefni og fleira. www.vesen.tv

Vogaverk - Sitcom (Íslensk þáttasería) (0 álit)

í Gamanþættir fyrir 12 árum, 4 mánuðum
Langar að vekja athygli á nýjum þáttum. Þátturinn fjallar um par sem flytur á hinn frábæra stað Vogar sem er 98 prósent fullkominn. Verst fyrir þau er að þau búa sitthvoru megin við hin 2 prósentin. Ekki batnar lífið þeirra þegar að hinn furðulegi bróðir stelpunar flytur inn á þau. Þessir þættir voru fyrst í sýningu á ÍNN en núna eru þeir komnir á vefsíðu sem heitir www.vesen.tv

Hvað eru 5 allra bestu sjónvarpsþættir að ykkar mati? (11 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 13 árum, 3 mánuðum
Nú er það orðið svo hjá mér að ég er beinlínis hættur að horfa á kvikmyndir. Ég lít öðruhverju á einhverja mynd sem virðist vera eitthvað áhugaverð. Maður les um hana og oftar en ekki verður maður fyrir svo miklum vonbrigðum af þessum nýju myndum að maður gefst fljótlega upp. Kvikmyndir í dag eru bara ekki eins góðar í dag og þær voru í gamladaga PUNKTUR! Aftur á móti finnst mér mikið meira lagt í sjónvarpsþætti í dag, þeir geta boðið upp á svo miklu áhugaverðari, skemmtilegri, víðáttumeiri...

Ef Jón Gnarr yrði borgarstjóri... (41 álit)

í Stjórnmál fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Ég er svona að spá, er Jón Gnarr að grínast með þetta eða ekki? Segjum að hann yrði borgarstjóri hvernig yrði það? Ég er alls ekki að setja út á hann, örugglega með mikið vit í kollinum þó hann sé fyndinn. Þeir sem eru núna við stjórn eru bara djók. Kannski yrði þetta bara ansi fínt að hafa hann sem borgarstjóra. Hvað finnst ykkur?

2920 dagar í heimsendir..... (210 álit)

í Deiglan fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Góðan dag góðir hugar. Eru allir að gera sér í hugarlund hvað gæti gerst fyrir okkur? Nú veit ég að margir á þessari síðu fá mikið uppúr því að segja sínar skoðanir á mjög “yfirvegaðan og þroskaðan” hátt svo að mig langar að koma með ákveðið málefni sem snertir allt lífríki á Jörðinni. Ég veit að flestir vita nokkurn veginn hvað ég er að fara að fjalla um. 2920 dagar í heimsendir Ekki allir gera sér grein fyrir því hvað hlýnun jarðar er að hafa slæm áhrif. Kannski hugsa einhverjir núna...

Trú á hlutabréfakaupum (45 álit)

í Fjármál og viðskipti fyrir 16 árum, 1 mánuði
Þannig er mál með vexti að ég hef verið að stúdera hlutabréfakaup í dálítinn tíma og hef rekist á ýmsa kvilla í þessum málum en líka eitthvað sem hægt er að taka mark á. Nú ekki fyrir svo löngu kom fyrirtækið Mindark inn á hlutabréfamarkaðinn og er þetta fyrirtæki spáð “hástökkvara”. Sem þýðir fyrirtæki á borð við Google , Yahoo og Skype. Fyrirtæki sem náðu allt upp í hundraðfallt. Þ.e.a.s. að ef maður hefði sett 100 þús þá ætti maður tíu milljónir þegar það færi á markað. Mindark er mjög...

Mig langar að fá ykkar skoðun á máli mínu (87 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Þannig er mál með vexti að ég og félagi minn vorum í Noregi síðasta vetur. Við fengum mjög flott hús á leigu í bæ sem heitir Geilo. Við vorum báðir í góðum vinnum. Þessi satður er mjög vinsæll skíða- og snjóbrettastaður svo við kynntumst fullt af fólki þarna. Þarna voru tveir skemmtistaður og voru þeir frekar vinsælir meðal fólks. Um hverja helgi var djammað og djúsað. Mikið af Svíum og Dönum þarna og mjög gaman þarna. Tek það fram að í sambandi við áfengisdrykkju í Noregi að eftir klukkan 1...

Núna langar mig að skrifa um eitthvað sem skiptir máli (107 álit)

í Vísindi fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Heimspeki Er einhver hönnuður á þessum heimi? Ef þið sjáið einhvern hlut tökum sem dæmi bíl. Sem er settur saman úr mörgum hlutum og við hugsum að það getur ekki annað verið en að það sé til höfundur, hönnuður að þessum flókna hlut eins og bíl. Ekki verður hann til af engu. Þróunarkenning Darwins stangast á við trúnna. Vottar Jehóva trúa því að efnisheimurinn hafi orðið til fyrir 10.000 árum. Og að heimurinn hafi verið til á sex dögum. Það er sagt að “sannir” vísindamenn mega ekki hugsa um...

Slösuð manneskja út í vegarkant, hvernig yrðu viðbrögðin þín? (84 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Ég var að hlusta á Bylgjuna 7.janúar og þar var verið að tala um hvað maður myndi gera ef alblóðugur maður út í vegarkannt væri að reyna að fá hjálp, hver væru viðbrögð manns. Ein kona sagði eitthvað í þessa áttina: Ef maður er með kannski fullan bíl af börnum og maður veit ekkert í hvaða ástandi maðurinn er, hvort hann sé á einhverjum eiturlyfjum og í annarlegu ástandi, maður myndi ekki taka áhættuna og stoppa. Svo sagði annar maður, (reyndar mjög góðir punktar.) Það sem maður hefur lært á...

Bíómyndaleikurinn TAKIÐ ÞÁTT (579 álit)

í Kvikmyndir fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Mjög einfaldur og skemmtilegur leikur. Samt getur orðið mjög spennandi þegar maður er kominn langt í hann. Bíómyndaleikurinn, Þú finnur nafn á bíómynd, svo þarf næsti að finna nafn á bíómynd með enda stafnum á síðasta nafni. Reglurnar eru þessar: Þú svarar alltaf síðasta manni og mátt aðeins gera einu sinni í röð, en mátt gera eins oft og þú villt. Bannað að nefna sömu myndina. Myndir sem byrja á THE,A eða enda á eins og Predator 2, þá er bara notað Predator og sá næsti fær stafinn R. Ég...

Stóra spurningin! (42 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Hvar í helvítinu erum við stödd? Í okkar tilvistarlífi vitum við í rauninni ekkert hvað er í gangi. Við erum í einhverjum hringleika lífsins og vitum ekkert tilhvers í rauninni allt þetta er. Nú ætla ég að koma með nokkrar vangaveltur og skoðanir að mínu mati, svo að það sé á hreinu. Ég er að reyna að komast til móts við ykkur í mikið dýpri skilningi. Ekki neitt grunnt og yfirborðskennt, heldur miklu dýpra eða það. Annars er engin leið að þú skiljir hvað ég er að skrifa um hérna. Verið bara...

Ég er mjög stoltur af þessu hjá mér (63 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Mig langar að vita hvort það séu einhverjir hérna sem eru að styrkja fátæk börn, styrkja eitthvað hérna. Er einhver með hjarta í sér að styrkja einhverja bágstaddra hérna. Mér finnst allaveganna ekki nógu margir í þessu. Ég er stoltur að segja frá þessu: Ég er núna að vera búinn að styrkja lítið barn í bráðum þrjú ár frá Filipseyjum á vegum ABC-Barnahjálp. Ég er ekkert smá ánægður að geta hjálpað barni að öðlast betra líf. Ég hef fengið líka mynd af honum og jólakort þar sem hann þakkar...

Er þetta virkilega lífið sem þið völduð ykkur? (207 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Framtíðin Eru þið sátt við það að vinna alla daga, frá 8 til 5 t.d. alltaf það sama og svipuð laun? Er þetta virkilega lífið sem þið völduð ykkur? Langar ykkur ekki til að lifa lífinu til hins ýtrasta, þá er ég að tala um, ferðast og skoða heiminn, gera allt sem ykkur langar til að gera. Því að ótrúlega mikið af eldra fólki, komið kannski yfir sjötugt sjá svo eftir að hafa ekki gert alla þessa hluti sem það langaði svo til að gera en “HAFÐI EKKI TÍMA” Var að vinna svo mikið, harkan var númer...

Vikuhornið (grínblað!) (15 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 5 mánuðum
24.tbl Aðeins 4-.evrur eða 340-.kr Vikufréttir Fimmtudagur 1.nóvember Helstu fréttir Talið er að þriðja geirvarta George W. Bush hafi fokið af í viðræðum um breytilegt loftslag í heiminum næstu hundruði ára. Aðrir talsmenn voru ekki á sama máli, því þetta líktist grunsamlega mikið frunsu sem George Bush hefur verið með þessa vikuna. Við hjá Vikufréttum tökum einn mannana þar á háhest áður en viðtal hófst og hafði sá maður þetta að segja: “Látið mig í friði!” Ekki vitum við hvað þetta þýddi...

Hvað finnst ykkur um að niðurhala stuffi? (297 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Þetta mál er að sjálfsögðu mjög umdeilanlegt. Öll þessi stóru fyrirtæki í Bandaríkjunum eru í herferð gegn fólki sem eru að deila ólöglegum efnum á netinu, það sem við downloadum á netinu, bíómyndir, tónleikar og allt þetta. Í bíóum er byrjað að leita sem aldrei fyrr að myndavélum hjá fólki og mér finnst þetta allt of langt gengið. Það er farið að sporna gegn þessu eins og napster í gamla daga. Bara stærra mál. Mjög þægilegt að geta farið bara á netið og náð í nýjustu bíómyndina sem er...

(Skáldsaga) Dover-Fangelsið, er bara kominn þetta langt. (3 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 6 mánuðum
1.kafli “Hvernig í andskotanum á ég að fara að, þú hérna inni?” Sagði Miriana leið við Derik. “Þú veist að þetta er líka erfitt fyrir mig, elskan” Sagði Derik fyrir aftan glerið. “Mig vantar svo peninga, ég er að vinna tvær vinnur til að sjá fyrir okkur Danny, hann er í skólanum núna og kennarinn á erfitt með að hemja hann, lendir oft í slagsmálum og um daginn mætti hann ekki í skólann í heila tvo daga og ég vissi ekkert af því fyrr en kennarinn hans hringdi heim.” Sagði Miriana mjög óróleg....

Er verið að hafa okkur að algjörum fíflum? (136 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Höfum við einhverja stjórn á lífi okkar? Í alvöru talað þá er algjörlega verið að heilaþvo okkur, “með hverju?” spyrjið þið. Afþreying, það sem er að gerast í sjónvarpinu, það sem kemur frá Hollywood, allar kvikmyndir, þættir, fréttir allt þetta sem við sjáum í fjölmiðlum í dag er aðeins leið til að heilaþvo okkur til að við áttum okkur ekki á því hvað er í rauninni í gangi í okkar litla heimi. Hvað er að gerast beint fyrir framan nefið okkar. Stjórnvöld eru að hafa okkur að strengjabrúðum....

Hourglass (1 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Ég ætla að gera svona þátt í anda 24 sem er á stöð 2. Bara prufa. Matt Power er aðalpersónan Hourglass Síminn hringir Matt og konan hans Susie eru í rúminu dauðþreytt eftir rifrildin í gær. Susie segir: “Láttu hann bara hringja elskan, farðu aftur að sofa.” Matt svarar áhyggjufullur: “Elskan mín þetta gæti verið út af vinnunni ég verð.” Síminn var búinn að hringja talsvert lengi þar til Matt tók upp tólið, þetta var Frank:”Geturu komið núna, við verðum að fara yfir áætlunina, 15 mín ekki...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok