Höfum við einhverja stjórn á lífi okkar?

Í alvöru talað þá er algjörlega verið að heilaþvo okkur, “með hverju?” spyrjið þið. Afþreying, það sem er að gerast í sjónvarpinu, það sem kemur frá Hollywood, allar kvikmyndir, þættir, fréttir allt þetta sem við sjáum í fjölmiðlum í dag er aðeins leið til að heilaþvo okkur til að við áttum okkur ekki á því hvað er í rauninni í gangi í okkar litla heimi. Hvað er að gerast beint fyrir framan nefið okkar. Stjórnvöld eru að hafa okkur að strengjabrúðum. Það eru stjórnvöld sem hafa mestu áhrif á líf okkar, hvernig við eigum að klæða okkur, hegða okkur og hugsa. Það er verið að reyna að berja í hausinn á okkur einhverri staðalímynd. Reyna að láta okkur hugsa alltaf ósjálfstæðara.

En þetta er bara byrjunin að miklu stærra dæmi.

Ég ætla að byrja á að tala um trúnna.

Allt frá 10.000 árum fyrir Krist hefur manneskjan tilbeðið sólina. Sólin er að sjálfsögðu mikilvægasti hlutur fyrir plánetuna og gæti lífríkið aldrei lifað án hennar, hún er ríkasti þáttur í okkar lífi. Einnig höfðu stjörnurnar sterkt ígildi á þessum tímum. Stjörnumerkin 12 heita í rauninni Zodiac og er elsta kennileiti yfir þessi tákn. Zodiac var notað til að telja mánuðina og árstíðirnar og var þetta þeirra farvegur í lífinu. Þeir litu á sólina sem bjargvætt. Til að mynda, vatnsberinn, hann kom með rigninguna og þá spratt allur gróður upp.

Horus var uppi 3000 árum f.Kr. Í Egyptalandi. Horus þýðir sól.

Hann fæddist 25.dec Kenndur við stjörnu í Vestur. Fæddur af hreinni mey. Kennari 12 ára, átti 12 lærisveina, gat framkvæmt kraftarverk á borð við, læknað fólk, gengið á vatni. Hann var krossfestur, og reis upp frá dauðum á þriðja degi. Fór síðan upp til himna fyrir framan augun á almúganum.

Krishna var uppi 900 árum f.Kr. Í Indlandi.

Hann fæddist 25.des. Kenndur við stjörnu í Vestur. Fæddur af hreinni mey. Hann var krossfestur, og reis upp frá dauðum á þriðja degi. Fór síðan upp til himna fyrir framan augun á almúganum.

Dionysus 500 f.Kr. Í Grikklandi

Hann fæddist 25.des. Kenndur við stjörnu í Vestur Fæddur af hreinni mey. Hann var krossfestur, og reis upp frá dauðum á þriðja degi. Fór síðan upp til himna fyrir framan augun á almúganum.

Jesú Kristur

Hann fæddist 25.des. Kenndur við stjörnu í vestur. Fæddur af hreinni mey. Kennari 12 ára, gat framkvæmt kraftarverk á borð við, læknað fólk, gengið á vatni. Hann var krossfestur, og reis upp frá dauðum á þriðja degi. Fór síðan upp til himna fyrir framan augun á almúganum.


Ástæðan fyrir því að allir eru fæddir á sama tíma er þessi.

Stjarnan Síríus er stjarna í Vestur. Þið hafið heyrt um stjörnumerkið , Three Kings, þegar þeir myndast í beinni línu við stjörnuna Síríus beinir hún beint á sólina vera að koma upp. Þessi dagur er 25.des Virgin Marie (María Mey) Er skilt Virgo eða Virgin sem er eitt af stjörnumerkjunum. 22,23,24 Þá fer sólin allveg niður. (Sólin deyr í þrjá daga.) Þann 25.des færist sólin upp um eina gráðu Norður. Sólin var krossfest og reis upp á þriðja degi.

En það sem ég er að fara með þetta er það að Jesú Krist og allir hinir voru bara mannsímynd að sólinni. Sólin er drottinn.

En stærsta málið er þetta.

Heimsyfirráð.

Vitið þið hvað þetta þýðir, og hvar þetta stendur?

Novus Ordo Seclorum(latína)

Þetta þýðir New World Order, og þetta stendur aftan á 1 bandaríkja dollara seðli.

Bankar í Bandaríkjunum eru einkareknir og eru þeir hættulegustu stofnanir landsins, ef ekki heimsins. Bankarnir stjórna öllum peningum í landinu. Bandaríkin er ein skuldugasta þjóð veraldar og hver er afkastamesta leiðin til að spornast gegn þessum skuldum?

Stríð

Þjóðir velta gríðarlegum peningum á að fara í stríð.

————————————————————————-

Víetnam stríðið

58.000 Bandaríkjamenn létust

3.000.000 Víetnamar létust


———————————————————————–

Bandaríkjamenn ætluðu aldrei að vinna stríðið. Það var aldrei áætlað að þeir myndu vinna, það var ákveðið fyrirfram að þeir myndu tapa.

Þegar Japanar réðust “skyndilega” á Pearl Harbour var það ekki svo skyndilega eftir allt saman. Þetta var ákveðið fyrirfram.

George W. Bush fer reglulega á leynilegan fund, ásamt fleiri háttsettum mönnum, svo sem Bill Clinton og er þetta búið að sanna fram og til baka. Þeir tilbiðja eitthvað ákveðið dýr. En þar er talað um að fari fram samræður um heimsyfirráð (world domination).

Með þessari afþreyingu, fjölmiðlar, sérstaklega sjónvarpið það sér mannkynið fyrir tilbúinni skemmtun. Yfirvöld, menntakerfin halda okkur heimskum. Þau halda okkur heimskum til að öll áætlun um heimsyfirráð gangi upp. Þeir vilja ekki að við áttum okkur á heildarmyndinni.

Þetta er nákvæmlega sama dæmið og Hitler reyndi.

Það er meiri segja verið að hanna örflugur sem hægt er að setja í manneskju og stjórna henni.

Hvað er í gangi???

————