Svitna einsog rómversk svín
í verðbréfastíunni og húsbréfailminum
krónan er að falla
selja! selja!
helvítis, maður orðinn of seinn á deit
já finnst þér gaman að vinna með börnum?
hmm já…
heyrðu ég er að flýta mér dálítið
viltu koma núna heim að ríða eða?
ha, nei ég borga kaffið

wam bam thank you mam

Heyrðu, ég þarf að flýta mér einhvert
við þyrftum að hittast aftur fljótlega
til að spjalla og svona
hvað heitiru annars?
“True words are never spoken”