Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Úttekt á gæludýraverslunum (15 álit)

í Gæludýr fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég fór nú reyndar ekki í neinn spes leiðangur fyrir þessa grein, þar sem ég er að reyna að halda mér í fjarlægð frá dýrabúðum því mig er farið að klæja í fingurnar yfir að hafa ekkert til að knúsast með. Sesar (Labrador) minn er of stór og Nova (Kanarífugl) vill ekkert vera hjá mér og ekki get ég fengið mér neitt dýr núna, þar sem ég mun vonandi flytja út eftir ca. ár. Þannig að úttektin er eftir minni, en það er ekkert svo slæmt þar sem ég hef alltaf verið fastagestur hjá dýrabúðunum… :)...

Glæpamenn!!! (18 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég er eins og rúmlega helmingur landsmanna í megrun. Í stað þess að borða heila “meal” í morgunmat í morgun eins og venjulega, fékk ég mér eina dyrkkjarjógúrt og trópí. Um kl. 10:30 voru garnirnar hinsvegar farnar að gaula og enn langt í hádegismat. Svo að ég myndi ekki freistast út í sjoppu og fá mér súkkulaðistykki, keyrði ég upp í næstu verslun, sem í þessu tilviki var 11-11. Úrvalið af ávöxtum var frekar dapurt og helmingurinn farinn að skemmast. Að sjálfsögðu passa forráðamenn...

Í stuttu máli... FERRARI (6 álit)

í Formúla 1 fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Hinn prjónandi svarti hestur vekur jafnt öfund sem aðdáun. Ekkert lið í sögu Formúlunnar hefur verið jafn sigurstranglegt, bæði í stigum talið og titlum! Það var stuttu eftir síðari heimsstyrjöldina að maður að nafni Enzo Ferrari stofnaði liðið. Lengst af var það eina eina liðið sem framleiddi bæði bíla og vélar. Fyrsti sigurinn kom árið 1951 og margir hafa fylgt í kjölfarið. Þó kom tímabil þegar liðið átti erfitt uppdráttar og stóð engann veginn undir væntingum. Það var hins vegar þegar...

Shar-Pei (11 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Jæja, nú er ég búin með fyrsta daginn minn á dýraspítalanum, en það var eitt sem vakti athyggli mína og það var Shar-Pei hundur sem var skilinn eftir hjá okkur. Þetta er hálf undarlegur hundur að sjá og tekur nokkurn tíma að venjast honum. Þó er þetta ljúfasta grey og bráð gáfaður. En ég sem sagt fór að lesa mig til um hann og varð ýmis vísari. Þetta er semsagt forn kínverskur bardagahundur. Húðinn gefur sennilega svona mikið eftir til þess að þeim verði minna meint af bitum. Eyrun eru líka...

Fuglinn minn, Nova (4 álit)

í Gæludýr fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég átti lítinn páfagauks-gára sem hét Kíkí og mér þótti alveg ofsalega vænt um hann. En svo fyrir alls ekki svo löngu veiktist hann og dó greyið. Eiginlega gat ég ekki hugsað mér annan fugl, því Kíkí var svo spes, ég fékk hann mjög ungan og ófleygan og ég held svei mér þá að hann hafi haldið að ég væri mamma sín :) Kom alltaf og kúrði hjá mér og vildi helst láta mig mata sig… Ég vissi því alveg að kæmi enginn í staðinn fyrir hann, það yrði ekki eins. En jæja, ég endaði samt sem áður í...

Læt drauminn rætast :) (7 álit)

í Gæludýr fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég er ein af þeim sem hef átt í alveg hrikalegum vandamálum að finna út hvað mig langar að verða þegar ég verð stór. Eftir strúdentsprófið mitt vorið 2001 ákvað ég að taka mér ársfrí til að hugsa minn gang, en að loknu ári var ég gjörsamlega jafn clueless! Ég útskrifaðist af viðskiptabraut og þess vegna ætlaði ég að fara í viðskiptafræði bara til að læra eitthvað. Svo fannst mér það eitthvað svo óspennandi og þá sótti ég um lögfræði, en var alltaf svolítið hikandi, fannst þetta kannski alveg...

Ralf Schumacher (17 álit)

í Formúla 1 fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Frá því að ég byrjaði að fylgjast með formúlunni hef ég alltaf verið mjög hrifinn af þeim Schumacher bræðrum. Michael er náttúrulega snillingur snillinganna og því getur enginn neitað hvort sem þeir halda með honum eða ekki. En svo er það litli bróðir hans, Ralf. Ralf hefur kannski ekki verið eins mikið í kastljósinu en ég hef samt alltaf verið mjög hrifin af honum. Hann er reyndar ekki eins grimmur og bróðir sinn, en enga að síður afbragðs ökumaður, gerir sjaldan mistök og mjög prúður....

Kíkí dáinn... :*( (24 álit)

í Gæludýr fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég þurfti aðeins að skreppa heim til mín í hádeginu í dag og ætlaði að nota tækifærið og heilsa upp á elsku litla Kíkí minn, en hann er rosa sætur gári sem ég fékk í febrúar. Þegar ég hinsvegar kíkti í búrið hann lá hann bara dáinn á botninum. Ég er svo miður mín núna að ég er alveg máttlaus. Ég veit að margir halda að páfagaukar séu ekkert skemmtileg gæludýr, en þessi var alveg einstakur, bar af öllum öðrum sem ég hef kynnst! Þegar ég fékk hann var hann bara lítill ungi og kunni ekki...

Kynning part III (8 álit)

í Gæludýr fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Svona kynningar voru komnar inn á bæði hunda og ketti, en ekki gat maður gefið upplýsingar um önnu dýr, svo við höldum bara kynningunni áfram… Þið þekkið þetta, segja hvað þið heitið (ekki nauðsynlegt fyrir feimna), aldur, og svo hvaða dýr þið eigið. NAFN: Begga ALDUR: 22 DÝR: Kíkí ljósblár 7 mánaða gára-páfagaukur, 2 finkur sem ég yfirleitt bara kallað bíbí vegna ótrúlegs hugmyndarafls( :) ), 2 salómöndrur sem heita Pingó og Klumpur, nokkrir fiskar, og svo auðvitað hundurinn Sesar (12 ára...

Nürburgring... (10 álit)

í Formúla 1 fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þá er Evrópukappakstrinum lokið, eftir mikinn svita. Í tímatökum vour BMW Willias menn ógurlega sterkir, þar sem Montoya var með ráspól 3skiptið í röð og Ralf aðeins 0,009 sek. síðar. Maður átti því alveg eins von á bláum sigri í gær í stað rauðs. Eeennnnn… Ferrari áttu ógurlegt start, þá sérstaklega Barrichello, sem þaut fram úr öllum eins og byssubrandur og stakk af. Schumacher fylgdi þó fast á eftir og tíndu þeir félagar upp hverja sekúntuna á fætur annari á kostnað hinna liðanna. Maður...

Dalmatíuhundur góður kostur? (33 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Hæ, hæ allir! Ég var að velta því fyrir mér hvað þið vissuð um Dalmatíu hunda. Sjálf á ég (eða reyndar foreldrar kærasta míns, en við höfum verið mikið með hann) yndislegan Labrador hund. En hann er orðinn gamall og gráhærður greyið. Hann verður 12 ára í haust og því er ég farin að undirbúa mig í huganum að missa hann. Ég veit að það á eftir að vera erfiðiasti dagur lífs míns hingað til, en engu að síður er ekki hægt að koma í veg fyrir þetta… :*( Allavegana, þá finst mér hundar dásamlegustu...

Kanada kappakstrinum lokinn! (5 álit)

í Formúla 1 fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þá er Kanada kappakstrinum lokið, og var loksins kominn smá spenningur um fyrsta sætið. Í tímatökunni hafði Montoya tekið ráspól svo glæsilega að maður vonaðist eftir hörku-kappakstri. Barrichello átti líklega með bestu störtunum en hann skaust fram úr Montoya í fyrstu beygju (ef ég man rétt). David Coulthard átti reyndar líka fínt start. Barrichello keyrði sem byssubrandur og bætti tímann sinn á hverjum hringi á eftir hver öðrum. Það dugði þó ekki til, því bíll Villeneuve bilaði og kallað...

Beta rokk og ungfrú Reykjavík! (40 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum
Ég var að hlusta á Sigurjón Kjartanson og co. einu sinni sem oftar á leið minni í vinnuna í morgun. Og einu sinni sem oftar var Beta nokkur Rokk að blaðra á fullu, því hún er víst með í þættinum til 9 (með öðrum orðum, alltaf þegar ég er að keyra í vinnuna). Ég bý nefnilega við þeirri fötlun að geta bara hlustað á Sigurjón Kjartanson og co. á leið í vinnuna, þar sem Radio X virðist vera eina útvarpsstöðin sem ekki næst inn í bygginguna þar sem ég vinn, og þó er ég að vinna í sömu götu og...

Tvöfaldur rauður sigur í San Marino (18 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum
Þá er enn einni keppnishelgi í formúlunni lokið. Kepnin var spennandi og skemmtileg að vanda og bar hæðst á tinda ógurlegir yfirburðir Ferrari liðsins, sem aldrei ætla að slá af! Eftir tímatökuna var rásröðin þessi: 1. Michael Schumacher 2. Rubens Barrichello 3. Ralf Schumacher 4. Juan Pablo Montoya Í startinu átti Ralf ógurlega gott start og skaust eins og honum hefði verið skotið úr teygjubyssu fram úr Barrichello. Þó svo að Barrichello virtist vera með meiri hraða átti hann ekki möguleika...

Malasíu kappaksturinn (11 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 1 mánuði
Jæja, þá er round 2, sem fram fór í Malasíu lokið. Á ráspól var Michael Schumacher, og má geta þess til gamans, að enginn hefur fengið að verma ráspólinn á Sepang frá upphafi nema Michael Schumacher!!! Við hlið hans var Montoya, þá Rubens Barrichello og Ralf Schumacher í 4 sæti. Æsingurinn var mikill í ræsingunni og voru M. Schumacher og Montoya aðeins of ákafir sem leiddi til þess að þeir skullu saman, og Schumacher missti framvænginn hjá sér. Hann fór þó inn á viðgerðarsvæðið í snarasta,...

GO Minardi!!!! (11 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 1 mánuði
Jæja, fyrsta keppni 2002 lokið og það varð engin smá keppni. Huge árekstur í fyrstu beygju þar sem nærri helmingur bílanna datt út, blóraböggul…? Tja, sumir kenna Ralf en aðrir Rubens Barrichello. Ég skal ekki dæma um það, þetta er náttúrulega keppni, og ALLIR vilja vinna, og þá verða stundum slys… ég held að þeir báðir hafi verið aðeins of ágengir. En helmingurinn komst semsagt undan og héldu keppninni ótrauðir áfram. David Coulthard leiddi keppnina í byrjun, en einhver vandræði virtust...

"Hoppari" (1 álit)

í Gæludýr fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Síðasliðinn þriðjudag ákvað ég að kaupa mér páfagauk. Ég fór í Dýraríkið í hádeginu til að kíkja á úrvalið og þar voru 2 litlir ungar á gólfinu, rosalega sætir - ljós blá en ekki með neitt stél… en ég hélt að það væri eitthvað sem myndi kannski koma síðar. Ég var alveg ákveðinn að taka strákinn, því hann var svo rosalega sætur. Svo fór ég aftur eftir vinnu til að sækja hann. Þá voru reyndar fleiri fuglar búnir að bætast við og þeir virtust allir vera með stél, svo ég spurði afgreiðslukonuna...

Einungis 41 dagur í nýtt tímabil!!!!!!!! (14 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Dömur mínar og herrar! Í dag 21. janúar eru einungis 41 dagur í nýtt tímabil í formúlunni, nú er tími til kominn að vakna úr vetrardvalanum, koma sér í sparifötin, fá sér einn bjór og byrja að hlakka til að fá að fylgjast með nýrri keppni! Fyrsta keppnin er nefnilega 3. mars en hér kemur dagatalið fyrir 2002: 03. mars Ástralía Melbourne 12. mars Malasysia Sepang 31. mars Braselía Interlagos 14. apríl San Marino Imola 28. apríl Spánn Barcelona 12. maí Austurríki A1 Ring 26. maí Mónakó Monte...

Hvað eða hvenær fór allt úrskeiðis??? (26 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég hef verið að velta svolitlu fyrir mér og vona að þið getið hjálpað mér í því að fá niðurstöðu í þessu. Fyrra heimstyrjöldin átti upptök sín að rekja í því að Þýskaland var orðið of mikið veldi í Evrópu og voru Þjóðverjar að vonast til þess að geta orðið nafli alheimsins og vonuðust til þess að geta stjórnað honum eftir sínu höfði. Aðrar Evrópuþjóðir óttuðust þetta og vildu alls ekki að Þjóðverjar ykju við völd sín. Þannig upphófs stríðið. Seinni heimstyrjöldin var eins og...

Eyþór sem borgarstjóri? (22 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Nú er það staðfest á helstu fréttavefum landsins að athafnamaðurinn Eyþór Arnalds muni láta af störfum sem forstjóri Íslandssíma um næstu áramót. Hann hefur látið það eftir sér að hann hafi mikinn áhuga á að fara í framboð í borgarstjórn fyrir hönd Sjálfstæðismanna. Mér er spurn, hvernig ætlar maður sem gat ekki rekið símafyrirtæki vel, að stjórna heilli höfuðborg??? (Þó ekki sé búið að gefa út að hann ætli beint í borgarstjórann, en það er eflaust það sem hann hefur í huga). Ég verð bara að...

Síðustu keppni tímabilsins lokið! :( (11 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þá er Japanska kappakstrinum lokið og fáum við ekki að sjá meiri formúlu fyrr en á næsta ári (sadly). Keppnin fór vel fram og lítið varð um óhöpp. Helst bar á góma þegar nýliðinn Kimi Raikkonen missti stjórn á bíl sínum, fór útaf og dró Alesi með sér, frekar leiðinlegt fyrir Alesi að enda ferilinn svona… Michael Schumacher sem hafði ræst fyrstur átti gott start og hélt forystunni allan tímann með talsverðum yfirburðum. Með þessum 9. sigri sínum á tímabilinu setti hann einn eitt metið, en að...

Häkkinen loksins í fyrsta sæti! (11 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þá er nærst síðustu formúlu helgi ársins lokið! Keppnin var að vanda hörku spennandi og var sérstaklega gaman að sjá að Häkkinen virtist vera kominn upp á strikið. Ég held að það sé alveg sama hvort menn séu Häkkinen menn eður ei, hann átti þetta alveg skilið, greyið. Sem sagt, í tímatökunum veiti Häkkinen Schumacher harða samkeppni og náði hann 2. sæti og voru þeir félagar M. Schumacher (1.) M. Häkkinenn (2.) og R. Schumacher (3.) þeir einu sem náðu að sprengja 1,12 múrinn. Á æfingum...

Mika hættir eftir allt saman... (18 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Samkvæmt frétt í vinsælu þýsku blaði, Bild, kemur fram að Mika Hakkinen sé að láta af störfum eftir allt saman, og að Kimi Raikkonen muni koma í hanns stað. Blaðið spáir því að Hakkinen muni tilkynna þetta á laugardaginn í Monza og að Raikkonen muni tilkynna að muni taka við á sama tíma. Því hefur verið haldið fram um nokkurt skeið að Finninn hafi hugleitt að segja af sér, sérstaklega eftir að McLaren seinkuðu tilkynningu til fjölmiðla um hverjir myndu keppa 2002 sesonið hjá sér. Blaðið...

Mikið gekk á í formúlunni... (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þá er keppnin í Spa lokin, en ekki er hægt að segja að hún hafi verið óspennandi þrátt fyrir að búið sé að krýna heimsmeistarann! Síðustu sekúntúr tímatökunnar voru æsispennandi, en M. Shumacher hafði forystunna og allt bennti til að hann ætti ráspólinn. En brauntin hafði verið mjög blaut og alltaf var spursmál hvenær hún yrði nóu þurr fyrir betri tíma. Það gerðist svo í lokin þegar Montoya bætti tíma Schmachers um ca. 2 sek, en í sömu svipan kom Ralf sem bætti um betur og komst í fyrsta...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok