Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

42ersvarid
42ersvarid Notandi frá fornöld 45 ára karlmaður
146 stig

Re: John Lennon rokkstjarna aldarinnar

í Gullöldin fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Birti svarið mitt við svipuðu röfli í grein og greinarsvörum sem birtist á “Tónlist”. Þetta er samt svar við öllum þeim sem hér hafa svarað og upphafsmanni korksins. Í fyrsta lagi kann Morgunblaðið ekki að þýða! Kosning snérist ekki um rokkstjörnur heldur var verið að kjósa ICON 20. aldar tónlistar. Gott væri ef greinarhöfundar kynntu sér málin áður en þeir pissa á menn og málefni - til dæmis á heimasíðu blaðsins. Í öðru lagi er þessi listi ekki einungis gerður af lesendum Q heldur ekki...

Re: 20 mestu rokkstjörnur sögunnar.

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Sem dyggur lesandi hins frábæra tímarits Q verð ég að mótmæla öllum sem til þessa hafa tjáð sig hér! Tek fram að ég kaus ekki. Í fyrsta lagi kann Morgunblaðið ekki að þýða! Kosning snérist ekki um rokkstjörnur heldur var verið að kjósa ICON 20. aldar tónlistar. Gott væri ef greinarhöfundar kynntu sér málin áður en þeir pissa á menn og málefni - til dæmis á heimasíðu blaðsins. Í öðru lagi er þessi listi ekki einungis gerður af lesendum Q heldur ekki síður breskum almenningi með þáttöku...

Re: Grísk heimspeki og vísindi

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Takk fyrir ágætis grein um áhugavert efni. Gott að sjá að fólk hefur áhuga á upphafi vitsmunalífs, menntunar, siðmenningar og samfélags eins og það hefur þróast á vesturlöndum á undanförnum árþúsundum.

Re: Könnunin

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Höfundur könnunarinnar og þeir sem hafa hingað til tjáð sig um hana virðist allir gleyma Kínverjum. Ekki í fyrsta skipti sem vesturlandabúar koma ekki hausnum út úr sínu eigin rassgati þegar skoða á söguna. Ekki að kínverjar hafi verið algjörlega verstir en aðferðir þeirra og hugmyndafræði í meðferð stríðsfanga og borgara hertekna svæða var hræðileg. Hvet fólk sem á annað borð hefur áhuga á ww2 að kynna sér asíustríðin í þessum mikla hildarleik.

Re: Vantar Gítar !

í Rokk fyrir 21 árum, 6 mánuðum
svo má líka benda á ebay.co.uk - flestar gítartegundir til þar á viðráðanlegu verði. Sumt á uppboði aðrir með stanslausa sölu á föstu verði, kíktu á það.

Re: Bob Dylan Live 1975 CD 2

í Gullöldin fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, en hvaðan hefurðu það? Hef áhuga á að kynna mér þetta. Nákvæmni er dyggð í þessu sambandi!

Re: Bob Dylan Live 1975 CD 2

í Gullöldin fyrir 21 árum, 6 mánuðum
“hans uppáhald” - Guns n Roses útgáfan af Knockin´on Heavens Door ??? Þetta vissi ég ekki. Ertu þá að meina hans (Dylans) uppáhalds útgafa af Knockin´? Því að uppáhalds coverútgáfa Dylans af eigin lagi er All along the watchtower með Jimi Hendrix. Sem sést best á því að það er eina lagið sem Dylan spilar ekki í sinni upprunulegu mynd heldur byggir hann á útgáfu JH á tónleikum, allt frá áttunda áratugnum til dagsins í dag. Hvar sástu annars að KOHD sé í uppáhaldi hjá BD, langar að lesa meira um þetta…

Re: Hjálp

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ef Dr. Gunni er ekki með það á síðunni sinni (this.is/drgunni) þá geturðu amk haft samband við hann í gegnum síðuna hans og beðið um þetta. Hann ætti að vera manna fróðastur um þetta, verandi höfundur lagsins.

Re: Áhrif iðnbyltingarinnar í Vestur Evrópu

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Takk fyrir! Hér er grein um eitthvað annað en stríð, skriðdreka og aðrar aðferðir til typpalenginga! (kenning “mín” er að stríð séu háð af mönnum með “issues” vegna typpastærðar sinnar sem vilji sína fram á karlmennsku sína með því að leggja heiminn undir sig. það virkar ekki, jafnvel þó að heimurinn legðist að fótum þeirra því þeir hefðu ennþá jafnstórt typpi og sömu minnimáttarkenndina…) Allavegana. Aftur að iðnbyltingunni. Ég er bæði sammála og ósammála síðustu ræðumönnum. Greinin er ágæt...

Re: Fjölbreyttari greinar, takk!

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég er einn af þessum karlmönnum á þessum aldri. Hef ENGAN áhuga á skriðdrekum, vélbyssum og skotgröfum. En ég er líka skrítinn…

Re: vantar góðar og fljótlegar snittur....

í Matargerð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Snittur: fullt af mjög góðum hugmyndum í brauðbók Hagkaupa. Drykkir: Bjór og hvítvín. Einfalt og fyrir flesta, bæði bjórbumbur og þá sem vilja eitthvað annað. Fyrir þá sem vilja óáfengt er best að benda á kranann, þaðan flæðir eðaldrykkur. Innflutningspartí eiga, að mínu mati, að vera einföld, fljótleg og skemmtileg. Þú ert búinn að vera að flytja og það er nógu mikið vesen án þess að þú farir að setja upp Food n Fun 2.

Re: atkins?

í Matargerð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Í stuttu máli: já! Fjölbreytt fæði er besta “lausnin”. Skera niður bæði fitu og kolvetni án þess að sleppa algerlega öðrum flokknum. Atkins getur haft slæm áhrif á ýmsa líkamsstarfsemi auk þess sem að allt hleypur aftur í spik um leið og hætt er á kúrnum. Og ekki eru margir sem halda lengi út í rjómalegnum smjörsósum með rándýru kjöti, þannig að það er ekki gott ráð að byrja á Atkins.

Re: Einu ári eftir líkamsárás

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Haldið gegn vilja þínum? Ef það er ekki lögreglan þá er það ekki löglegt (hún getur haldið þér í allt að 24 tíma áður en kveða verður til dómstóla, held ég). Þú verður bara að vera dugleg/ur að ýta á eftir málinu, ef potað er nógu oft í auman blett gefst fólk upp og gerir það sem af því er ætlast…

Re: atkins?

í Matargerð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Snöggsteiktar risarækjur í rjómasósu í forrétt. Nautalund með sveppasósu í aðalrétt. Peli af rjóma í eftirrétt (þarft að sleppa ávöxtunum) Annars er Atkins afar óhollur kúr, slæmt að fara alveg eftir honum og sleppa kolvetnum. Getur samt verið gott að hugsa aðeins um þetta og borða ekki bara brauð, pasta, hrísgrjón og karftöflur.

Re: Einu ári eftir líkamsárás

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sumir virðast hafa dregið annan lærdóm af sögu minni en ég gerði, og hélt að aðrir myndu gera. Pointið er að það þarf að breyta kerfinu. Það gerum við ekki með vopnaburði, handrukkurum og tönn fyrir tönn lögmálinu. Til dæmis hefði vopn dugað mér skammt því á mig réðust fjórir piltar og stefndu beint á höfuðið. Bæði ég og vinur minn stunduðum sjálfsvarnaríþróttir á yngri árum og stóðum okkur vel, en urðum fljótt varnarlausir eftir mörg höfuðhögg. Berjumst fyrir betra kerfi. Verndum náungann....

Re: Fjölbreyttari greinar, takk!

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ef þú villt skrifa um WW2 þá gerirðu það bara. Vil bara hvetja fólk til að líta aðeins upp úr skotgröfunum. Skoða til dæmis menningarsögu, hugmyndasögu, einsögu, hagsögu, verkalýðssögu osfrv osfrv Þeir sem koma á þetta áhugamál hafa áhuga á ýmsu öðru en skotfærum í WW2, Þýskalandi og Rússlandi. Ef allir eru hins vegar alltaf að skrifa um sama efnið fer að fækka á áhugamálinu og minna verður um endurnýjun.

Re: Bob Dylan Live 1975 CD 1

í Gullöldin fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ok, þú ert með mjög góðan tónlistarsmekk. Reyndar var þetta svar mun betur skrifað heldur en greinin. Ekki ætlun að vera nastí, mér er bara MJÖG annt um Bob Dylan. Fatta reyndar ekki “er bara á móti Bob Dylan með elektrónískt dæmi í gangi.” Því þú virðist eiga fullt af frábærum elektrónísku dæmi með Bob og tónleikarnir 1966 eru sennilegast bestu tónleikar í sögu rokksins - þrátt fyrir að tónleikagestir hafi púað og kallað Júdas. Í hvert skipti sem ég heyri þennan disk, sérstaklega þegar Bob...

Re: Einu ári eftir líkamsárás

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Marus, ofbeldi er ekki lausnin. Lögin eru etv ekki í bestu höndum í heimi en þó betri en ef allir væru sínir eigin herrar. Mál mitt er amk til meðferðar, þó seint gangi. Vitni hringdi á lögregluna, gaf skýrslu og staðfestir sögu mína af atburðarrásinni. Miskunsami samverjinn er þarna úti. Ef við tökum lögin í okkar hendur fælum við samverjann í burtu, hræðum hann. Betra væri ef sem flestir tæku samverjann sér til fyrirmyndar. Hafðu auga með náunganum, hringdu í 112, sýndu skilning, sagðu...

Re: Einu ári eftir líkamsárás

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég verð að vera þér ósammála með niðurstöðu þína. Það er ekki lausn að allir gangi um með vopn. Um leið og hinn almenni borgari eða lögregla er kominn með vopn þá geturðu bókað að afbrotamenn séu betur vopnaðir. Afleiðingin verður meira blóð.

Re: Einu ári eftir líkamsárás

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég myndi tvímælalaust segja að þú, Loviatar, hafir mun verri reynslu af lögreglunni en ég. Ég samhryggist þér innilega. Ég hef ekki orðið fyrir nauðgun en get ekki ímyndað mér verri glæp. Held að maður geti aldrei sagt hvernig maður myndi bregðast við slíku. Það er sorgleg staðreynd að af nauðgunum er sennilega um helmingur kærður, fæst þeirra ná til saksóknara og hvað þá til dómstóla. Þegar til dómstóla er komið getur svo tekið við enn ein martröðin og mig minnir að um helmingur...

Re: Bob Dylan Live 1975 CD 1

í Gullöldin fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Vonandi átti þetta ekki að vera í varnarskyni Tomino. Það er eiginlega ennþá skammarlega að vita af einhverjum sem á “nær alla Bob Dylan diskana” sem skrifar svo hræðilegan dóm. Hefði frekar haldið og trúað að hér væri lítill verkfallsþolandi að fylla út í eyðu í deginum með að skrifa um plötu í safni pabba og mömmu eða eldra systkins. En það er einmitt oft erfiðara að trúa raunveruleikanum en skáldskap…

Re: Bob Dylan Live 1975 CD 1

í Gullöldin fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sammála Zweppy, þetta er versta tónlistargagnrýni sem ég hef augum litið (fyrir utan þegar Heiðar Austmann skrifaði um Dido í Undirtóna)! Það er ágætt að tala um heildina, hvernig diskurinn hafði áhrif á þig, hvað þér fannst hann vera líkur osfrv. Upptalning á lögum og hálfkláraðar setningar um hvert þeirra er afar ógagnlegt. Og svo gefurðu diskum 7,5 í einkun eftir að hafa pissað yfir næstum hvert einasta lag! Samræmi er ekki banvænt heldur eftirsóknarvert. Og áður en maður sendir inn dóm...

Re: JAN MAYEN - HOME OF THE FREE INDEED

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ja, ja, EP er throngskifa a islensku og Jan Mayen eru bestir. Thetta vita allir. Hvernig er nyja platan? Tharf ad panta hana i gegnum smekkleysu a netinu og vildi tvi endilega fa eins og 1-2 doma fyrst. Hvad finnst Hugurum um Home of the Free Indeed?

Re: Könnun

í Gullöldin fyrir 21 árum, 9 mánuðum
REyndar má á það benda að spurningin er meingölluð! Spurningin ætti að vera: er Paul McCartney látinn? svarmöguleikar væru já, nei og ég er heimskur. Þegar spurt er er PM látinn eða ekki geta möguleikarnir ekki verið einfallt já eða nei. HA, afhverju? Jú vegna þess að þá getur þú verið að segja já við bæði því að hann sé látinn eða því að hann sé ekki látinn! STJÓRNENDUR EIGA EKKI AÐ HLEYPA SVONA VITLEYSU AÐ!

Re: kaffistofa alþingis

í Stjórnmál fyrir 22 árum
alltaf gaman af því þegar fólk svarar með persónuárásum. Hvað hefur athugasemd Helg um dúka á kaffistofu Alþings að gera með þjóðlífsmálið? (og allveg rétt, var ekki Hrannar í því?)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok