Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

42ersvarid
42ersvarid Notandi frá fornöld 45 ára karlmaður
146 stig

Re: 3% þjóðarinnar eiga 90% af auðæfunum....

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ég hef ekki kannað málið sérstaklega en á alls ekki erfitt með að trúa þessum tölum. Þegar svona eignatölur eru settar saman koma oft út ótrúlegar staðreyndir eins og að konur eiga innan við 1% af auðæfum heimsins…

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Ofsafengin ofsatrú!

í Dulspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum
þetta er grín af bestu sort. Þeir sem ekki fatta það ættu að prófa að fara á Baggalút með því hugarfari að þar séu rædd alvarleg þjóðfélagleg málefni af alvarlegum gömlum köllum. Þú fengir þá mynd af Íslandi að þar væru allir snarruglaðir - alveg eins og þú ert farinn að túlka þetta sem raunverulega síðu ofsatrúarhóps. Þess má líka geta að fyrir stuttu var skrifuð grein um þetta á deiglunni hér á huga.

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Forn menning?

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ætla að taka áhættuna á því að hljóma eins og 5 ára barn og spyrja: Hvað ertu að tala um? Hvaða staðreyndir ertu búinn að sjá og hvar getum við sauðsvartur almúginn séð þær? Annars á ég voðalega erfitt með að trúa því að sagnfræðingar og fornleifafræðingar standi að einhverju samsæri um að þagga niður fornar menningarþjóðir…

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Staðan núna

í Raunveruleikaþættir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
“svo sterkir karakterar s.b. Rubert, Sandra, Burton og Lill.” Þessu getur varla nokkur maður verið sammála. Lill sterkur karakter? Hún er annaðhvort hálfvælandi í einhverjum eða vælandi ein einhvers staðar. Hún er svo ótrúlega sorgleg og ekki skilið að vera í leiknum. “ Það er ekki nokkuð leið að sjá hvernig þetta spilast út og ég hlakka til á hverjum mánudegi ;)” Ég líka en þó að það sé ekkert að marka þá er minn persónulegi spádómur sá að Sandra eða Rupert vinni stóra fjársjóðinn.

Re: Jan Mayen, Lokbrá & Tristian

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
mjög góðir tónleikar. Góð grein (ekki nennti ég að skrifa hana). Persónulega varð ég fljótlega þreyttur á Tristan - þetta varð bara “boring” (eins og enn eldri maður orðaði það einhvern tímann). Lokbrá eru spilagleði út í gegn og gaman fyrir þær sakir en ekki aðrar. Jan Mayen eru hins vegar sannkallaðir snillingar, þéttir, skemmtilegir, hafa gaman af þessu og kærulausir. Valgeir og Ágúst er mjög skemmtilegir saman í gítarleiknum og trommarinn í ermalausum Iron Maiden bol (Viðar) klikkar...

Re: Veit einhver eitthvað um Megas?

í Íslensk Tónlist fyrir 22 árum, 6 mánuðum
einföldustu upplýsingar og ferillinn í stuttu máli má finna í “bookletinu” sem fylgdi með tvöfalda safndisknum sem kom út í fyrra eða hitt í fyrra. Fæst örugglega á bókasöfnum ef þú býrð ekki svo vel að eiga þennan ómissandi grip

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Jan Mayen

í Íslensk Tónlist fyrir 22 árum, 6 mánuðum
varla neitt… eða hérumbil. Nei gripurinn kostar 700 í 12 tónum en það er líka hægt að versla beint af þeim á tónleikum. Og torpedo: Jan Mayen er eyja, það er rétt. 10 í landafræði fyrir þig. Halldór Laxnes var líka rithöfundur en er líka plata með Mínus…

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: 16. nóv. - 22. nóv.

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 6 mánuðum
gaman að innsláttarvillum: “Stærsta verslun landsins, Mikligarður, var opnuð í Reykjavík. Verslunin var 47 fermetrar” Annars er þetta auðvitað flott, en afhverju fer ekki e-ð af þessu á þar til gerðan reit á sagnfræðisíðunni?

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Upphitunarhljómsveit

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Jan Mayen, Maus og Botnleðja

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Grænmetisætur og aðrir. HJÁLP!!!

í Matargerð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
þetta er ekkert lítið matvant fólk sem þú þarft að sjá um. Er því miður ekkert inn í þessum kínversku stöðum en ég myndi sennilega seint mæla með Shanghai. Nú er ég bara orðin alveg þurrausinn í þessu. (þess má reyndar geta að austur indíafélagið býður upp á fullt af karrílausum mat)…

Re: Ég hata Bob Dylan...

í Gullöldin fyrir 22 árum, 6 mánuðum
þetta var dálítið svakaleg fyrirsögn! Ég fékk næstum því fyrir hjartað að sjá einhvern á þessu áhugamáli koma með svona kork… en sem betur fer var ekki þörf á því að snúa neinum til réttrar trúar varðandi Dylan. Hver er annars 545454? Man ekki eftir að hafa séð mikið af kommentum frá honum á Dylan greinunum…

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Ófædd börn

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
já, þar sem það er ekki verið að tala um “ófædd börn” heldur við tæknifrjóvgun. Málið í Bretlandi snýst s.s. um hvort foreldrar megi ráða hvers kyns barnið þeirra er þegar ráðist er í tæknifrjóvgun. Það er ekki hægt að breyta kyni fósturs og því varla hægt að tengja þetta á neinn hátt við sálir (nema að sálin búi í egg og sæðisfrumum..)

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Grænmetisætur og aðrir. HJÁLP!!!

í Matargerð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ííkk, ekki fara Asíu! Það er sorabúlla - eini munurinn á Asíu og Nings er að Asía er dýrari, en því miður ekkert betri. Ef fara á út í asískan mat er gott að fara á Bantahi eða bara indverskt og velja einn besta veitingastað landsins- Austur Indíafélagið, nóg af grænmetis möguleikum þar og líka auðvelt að sleppa grænmetinu fyrir þá sem það vilja.

Re: Grænmetisætur og aðrir. HJÁLP!!!

í Matargerð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ef það á að fara mjög fínt út að borða er þetta alls ekkert vandamál. Þá biðurðu bara um hvað sem þér dettur í hug og það er ekkert mál að redda því - hvort sem það eru óskir kjötætu eða grænmetisætu. S.s. ef þið farið nógu fínt út að borða á kokkurinn að geta galdrað eitthvað fram. Svo er alltaf spurning hvort “grænmetisætan” borðar fisk (þekki nokkra svoleiðis) og þá fjölgar möguleikunum mikið.

Re: Banna kynæsandi söngkonur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ef einhver syngur i'm a slave for you og strýkur sér svo hátt og lágt þá er dálítið erfitt að túlka það þannig að viðkomandi sé í stjórn… og eins og ég sagði þá gera þessi myndbönd líkamann að söluvöru sem ýtir undir afbrigðilega kynlífshegðun. Ekki svo að skilja að Britney sé að sjúga einhver á Popptíví… Ozzy var nú heilmikið gagnrýndur á sínum tíma og aðallega fyrir þau skilaboð sem hann sendi (meðvitað eður ei) frá sér. Þegar honum var boðið heim til forsetans var hann orðinn gamall...

Re: Banna kynæsandi söngkonur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
“i'm a slave for you” söng Britney skríðandi í kringum hóp af körlum!!! Stjörnurnar eru ekki að fylgja einhverri kynlífsþróun heldur eru að ýta henni áfram. Myndböndin eru mjög tengd klámmyndum (enda sumir leikstjórar sem fara úr einum geiranum í annan). Ok, ef við höldum okkur við poppið og konur (eins og fyrirsögnin benti til) þá finnst mér þær ekki beint vera koma þeirri ímynd á framfæri að þær séu sjálfstæðar og sáttar við líkama sinn. Það sem að myndböndin, ein og sér, ýta helst undir...

Re: Banna kynæsandi söngkonur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
gamlir Madonnu aðdáendur, eins og allt gamalt fólk, er snargeðveikt. “Kynæsandi pakkinn” er hættulegri af ýmsum ástæðum en einna helst vegna þess að þessi pakki gerir lítið úr kynlífi og ruglar dómgreind ómótaðra einstaklinga í kynlífsmálum. Ég geri ráð fyrir að þér finnist e-ð vera að unglingspartíum sem hafa kynlíf sem aðgangseyri, enda hljómar þú sem nokkuð skynsamur einstaklingur. En þá er bara að gera sér grein fyrir því að það eru óbein og bein tengsl á milli þessa og...

Re: Þjóðarstolt- rétt eða rangt?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
“finnst mér ég ómögulega geta verið stoltur af einhverju sem ég hef ekki átt neinn þátt í” HEYR HEYR!! afhverju ættum við að vera stoltari af fornhandritunum heldur en Shakespeare? Við áttum alveg jafn lítin þátt í þessum afrekum. Þó að eitthvað merkilegt hafi gerst á landspildunni sem við erum stödd á þýðir það ekki að við eigum að vera stolt af því.

Re: Banna kynæsandi söngkonur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
“Þetta er einfaldlega rangt og sýnir vanþekkingu þína á þessum bransa. Gæti trúað að meðalaldurinn sé svona 15 ára eða að mjög margir eldri en það hlusta á tónlistina þeirra.” ekki ætla ég að fara rífast við þig um hvað ég veit lítið um “bransan” en ég vil benda þér á að kynna þér markaðsfræðina sem liggur á bak við stjörnurnar. Þó að einn helsti markhópur tónlistarninnar sé ekki kominn á fermingaraldurinn segir það ekki að eldra fólk hlusti ekki líka eins og sést af því að þetta er...

Re: Gnosis

í Dulspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ef lestur á myndasögum er forsenda fyrir því að skilja kork, ætti viðkomandi korkur ekki að vera undir einhverju öðru en trúmál? Spurningar eru alltaf nauðsynlegar - þeim mun nauðsynlegri eftir því sem þú hefur lesið meira…

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Banna kynæsandi söngkonur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ok ég vil ekki láta banna fólki að dilla sér nakið eða hálfnakið fyrir framan myndavélar og kalla það tónlistarmyndband en ég vil hins vegar vekja athygli á einu. Hver er helsti markhópur Britney, Christinu, Beyonce osfrv? Eru það fullorðnir einstaklingar með siðferðislegan þroska til að meta skilaboðin og velja út frá þeim? Nei ekki aldeilis, þessi tónlist er mikið miðuð á krakka (með áherslu á stelpur) á aldrinum 8-14. Með myndböndunum, plakötunum, auglýsingunum og öllum pakkanum hafa...

Re: Eftir réttir...

í Matargerð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
verð að segja að mér finnst alltaf að áfengi sé betra í glasi heldur í kökum eða eftirréttum… annars er þetta alltaf klassískur eftirréttur, að taka fullt af góðum ávöxtum (ekki appelsínur þó), sneiða og strá gróft söxuðu súkkulaði yfir. Borðist 50/50 við ís og þá finnst manni jafnvel eins og maður sé að borða eitthvað sem er hollt (sem það væntanlega ekki með nægilegu súkkulaði og ís…)

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i

Re: Könnunin...

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
fannst engum vanta möguleika? Könnunin virðist gerð á þeim forsendum að samkynhneigðum verði “veitt” einhver sjálfsögð mannréttindi - eins og við séum voðalega líbó og skilningsrík að vilja vinsamlegast “gefa” fólki mannréttindi! Ég hefði viljað setja minn kross í “kynhneigð á ekki að skipta máli - allra síst um réttindi” Veit ekki alveg hvert könnunar höfundur er að fara með möguleikanum um að samkynhneigð eigi að vera leyfð en “engin önnur réttindi”…

And you never ask questions...

Re: Bestu söngvarar gullaldarinnar?

í Gullöldin fyrir 22 árum, 7 mánuðum
varðandi pss-ið þá má líka enn og aftur benda á Dylan! Þegar Dylan var 22 ára gaf hann út Freeweehlin' og 24 sendi hann frá sér Bringin it all back home og fann þar með upp folk-rockið (hversu illa sem honum og öðrum er illa við þann stimpil). 26 ára var hann svo búinn að lenda í mótórhjólaslysi og snúa sér að fjölskyldunni en hafna tónlistinni, frægðinni og dópinu (endist ekki lengi). Og af því að einhver minntist á Gallagher hér fyrr má benda á að fyrsta platan Oasis kom út þegar sá eldri...

Re: Gnosis

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
skemmtilegar tilvitnanir í teiknimyndir - en væri ekki kannski svolítið sniðugt að leggja e-ð út frá þessu? Segja hvað þér finnst um þetta og hvernig þú tengir þetta við fyrirsögnina sem þú valdir… Bara svona pæling…

And you never ask questions When God's on your side. Bob Dylan </i
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok