Mánudaginn 11.Október kemur út fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Jan Mayen á vegum Smekkleysu sm/ehf. Og mun hún bera nafnið “Home of the free indeed”. Platan inniheldur 14 lög og er nú þegar eitt þeirra “On a mission” byrjað að hljóma á X-inu 977 og Rás 2. Jan Mayen munu því á næstunni vera nokkuð áberandi á tónleikasviðinu og spila á eftirfarandi tónleikum í októbermánuði…

14.Okt - Bar 11
20.Okt - Rokktóbeerfest X-ins 977, Gauk á Stöng
21.Okt - Grand Rokk kl.20:30 Iceland Airwaves
26.Okt - Borgarholtsskóli
28.Okt - Fimmtudagsforleikur í Hinu Húsinu
29.Okt - Útgáfutónleikar í Leikhúskjallaranum

ath: platan verður einnig seld á tónleikum á hæfilegu verði.

takk fyrir okkur
JAN MAYEN