Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

42ersvarid
42ersvarid Notandi frá fornöld 45 ára karlmaður
146 stig

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
er þetta“Það komu nokkrir strax um þetta leyti og áttu börn í kring um 1941 svo það gæti vel hafa verið” svar við því að ég sagði “Foreldrar Dylans geta því tæpast talist til flóttafólks eða að flutningur þeirra til bna hafi nokkuð með ww2 að gera (enda Dylan fæddur 1941).”??? ef svo er vil ég benda á að “því”-ið á við um fyrri hluta svarsins þar sem segir “foreldrar Dylans fluttust til bna á barns aldri, með foreldrum sínum.” Þar sem ég kann svolítið á Dylan, kemur það stundum fyrir að ég...

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
foreldrar Dylans fluttust til bna á barns aldri, með foreldrum sínum. Man reyndar ekki hvort það eigi við þau bæði eða hvort annað þeirra hafi fæðst í bna. Foreldrar Dylans geta því tæpast talist til flóttafólks eða að flutningur þeirra til bna hafi nokkuð með ww2 að gera (enda Dylan fæddur 1941). Jú jú Pollock var fyrstur að gera margt og á ýmislegt sem hann gerði að sjálfsögðu ekkert skylt við Da Vinci. Ég er nú bara svo mikill myndlistarplebbi að mér finnst Warhol alltaf/oftast kúl en...

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
á einum korknum sagðir þú um komment frá mér eitthvað á þá leið að loksins væri einhver sem skildi þig! Ef einhver tekur við arfleið er ekki verið að segja að viðkomandi sé eftirherma heldur að sú hefð (myndlist/tónlist) sem skapast hefur á einu sviði á ákveðnum stað er kominn annað og þegar einhver tekur við arfleiðinni er henni oftast umturnað um leið. ég samþykki reyndar pollock ekki sem “the nútímamyndlistamann” en látum það liggja á milli hluta. Ef ég fæ að halda mig við...

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
finnst þér ekkert vera skrítið að tala um mikilvægi bna vegna þess hvernig þeir hafa tekið við arfleiðum annara í einu orðinu en þegar kemur að dægurtónlist ferðu í rótarumræðu. Og fullyrðingin “Það er allar uppfinningar í stefnum og straumum eftir seinni heimstyrjöldina koma þaðan” er einfaldlega röng. Rokk og popp er til í fjölmörgum stefnum og straumum og eru þær ekki allar upprunar í bna. Raftónlist á mesta að þakka hinum þýsku Kraftwerk. Þetta lærir maður líka í tónlistarsögu. (hér var...

Re: 60 minutes fjallar um feminista í Bandaríkjunum

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
rólegur það sem ég hef sagt um þig í atvinnuviðtöl hefur þú greinilega rangtúlkað (líkt og lögin). Ég sagði að ef þú hagaðir þér eins í viðtölum og þú gerir hér þá myndir þú ekki passa inn í fyrirtækjamenningu neins staðar. Ég var ekki að fullyrða neitt um hvað þú segir í viðtölum né að hegðun þín þar væri ástæða atvinnuleysis hjá þér, enda þykist ég ekkert vita um þig og hvernig þú hagar þér í viðtölum og annars staðar. Geri hins vegar ekki ráð fyrir að þú skiftir algerlega um karakter...

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
ertu að reyna að misskilja það sem ég sagði? ég var ekki að segja að rokk væri ekki bandarískt að uppruna, bara að benda þér á að rokk er ekki afleiðing jazz heldur fyrst og fremst blús. Ég sagði ekkert að breskar sveitir væru betri en bandarískar heldur að benda þér á að fleiri hafa tekið rokkið ástfóstri og gert mikilsverða hluti við það (eins og bandaríkjamenn hafa gert líka). Það er bara misræmi í röksæmdarfærslu þinni þegar þú segir að miðstöð lista sé í bna, vegna þess að þar hafa...

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
zett, þetta var vel orðað og það sem ég hefði viljað segja (nennti því samt ekki). svona almennt finnst mér að fólki eigi að svara, en ekki ýta á senda fyrir en eftir 5 mín. þegar það er búið að gera e-ð annað og lesa svo svarið yfir. Þá sér maður oft að það má alveg sleppa blótsyrðum, skömmum og persónulegum niðurlægingum.

Re: 60 minutes fjallar um feminista í Bandaríkjunum

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nú er ég ekki lögfróður maður en það er ekkert fasískt í þessum lögum. Ekki er þar heldur að finna að fyrirtækjum eða stofnunum beri að ráða einstaklinga af öðru kyninum til að jafna hlut þess. Í lögum kemur ekkert fram um að RÁÐA eigi einhvern vegna þess að það hallar á annað kynið. Eins og þú veist væntanlega er nefnilega langur vegur frá því að auglýsa starf og að einhver sé ráðinn í það. Þú hefur áður skrifað grein um hremmingar þínar á vinnumarkaði og svaraði ég þér þar. Ég átti ekki...

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
ég ætla ekki að rífast/rökræða um gæði/uppsetningu á greininni þinni heldur að benda þér á tónlistarsögulegan misskilning og ósamræmi. Þú talar um að þó að ýmis listform hafi átt upphaf sitt og eitt sinn blómaskeið annars staðar hafi bna menn betrum bætt þau. Gott og vel - uppruninn skiptir s.s. ekki máli, heldur hver “fullkomnar”/betrum bætir hlutinn. En þegar kemur að rokki/poppi skiptir þú, að því virðist, um skoðun. Önnur lönd en bna hafa nefnilega betrum bætt (einstaka tilvikum...

Re: 60 minutes fjallar um feminista í Bandaríkjunum

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hef sagt þér þetta áður en það virðist ekki síast í gegn. Atvinnurekendum ber EKKI að jafna hlut kynjanna. Það eru engin lög, reglugerðir eða uppstungur feminista um það! Jákvæð mismun gegnur út á að þegar atvinnurekendur þurfa að velja á milli JAFN HÆFRA einstaklinga af báðum kynjum. Þannig að ef þú ert ekki valinn áttu að vera viss um að sá/sú sem er valinn sé hæfari. Öll fyrirtæki heyra undir jafnréttislög, ekki bara opinber - hins vegar ber aðeins opinberum stofnunum að upplýsa hver...

Re: BNA vill þjóðernislegri fréttaflutning

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
gott svar! (efni í lengri grein en margir senda inn) hins vegar verð ég að gera smá athugasemd við þína athugasemd: þegar bna-menn vilja þjóðernislegri fréttaflutning er átt við að fréttaflutningur miðist meira út frá bandarísku sjónarmiði - en ekki sjónarmiðum evrópu, íraka, kínverja eða rússa. Þegar bna-menn vilja þjóðernislegri fréttaflutning af stríðum sínum er átt við sjónarmið bna-manna sem styðja stríðið. reyndar kom þetta að nokkru fram í upphaflega korknum. samlíkingar milli bna í...

Re: Til Admina á þessu áhugamáli !

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
var redfox ekki að tala um grein sem birtist á stjórnmála áhugamálinum? þeas ekki greinin þín - enda sýnist mér hann vera að tala um alls óskylt efni við það sem þú fjallaðir um í þinni grein. ég skildi þetta allaveganna þannig (adminar eru samt beðnir um að svara ritskoðunar ásökunum redfox sem fyrst)<br><br>And you never ask questions When God's on your side. <i>Bob Dylan </i

Re: Upphaf kapítalismans

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
eins og þú segir þá er þetta kenning (reyndar er hægt að koma sér uppi ágætlega stóru bókasafni ef öllum kenningunum væri safnað saman). En þó er rétt að benda á tvennt: lýðræði á vesturlöndum er nýlegt fyrirbæri og alls ekki almennt fyrr en á seinni hluta 19. aldar/fyrri hluta 20. aldar. Ríkidæmi og yfirburðir vesturlanda geta því varla verið bein afleiðing lýðræðis því þeir yfirburðir koma til fyrr - 16. og 17. öld. Sömuleiðis er kapitalismi yngri en yfirráð vesturlanda. Eftir standa þá...

Re: Er heimurinn að farast - eða hvað?

í Dulspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Góð grein (tók sérstaklega eftir að stafsetning, framsetning og málfar var mun betur heppnað en í mörgum greinum hér á huga). Skemmtileg upptalning líka, gott að hafa þetta á einum stað þegar fólk sendir manni enn einn nostradamus ruslpóstinn.

Re: Gullöldin og djöfullinn

í Gullöldin fyrir 22 árum, 10 mánuðum
það er útdráttur, ekki úrdráttur. Nema þú sért að draga úr/gera lítið úr því sem stóð í greininni. Annars gaman að þessu

Re: Lag Dagsins!

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
betra í upprunalegu útgáfunni (eins og næstum því öll lög) með Bob Dylan

Re: Stefano Stefani

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
en hversu margir heldurðu að hafi kvartað undan Íslendingum á sólarströnd? Það hef ég alla vegana gert. Málið er að allar alhæfingar eins og stafani lét út úr sér eru rangar, einfaldlega vegna þess að þó hluti hóps geti verið leiðinlegur á það ekki við um allar hinar milljónirnar. Og hvað er annars svona hræðilegt við að tala hátt, taka frá stóla og vilja tala sitt tungumál (sem er undirstöðumál í evrópu)?

Re: SNILLDARHUGMYND!!!!!!!!!!!!!!

í Matargerð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Í minni fjölskyldu tíðkast að skiftast á vikum. þeas einn aðili eldar, leggur á borð, vaskar upp og gengur frá í eina viku - samhliða þessu gerir sá sami matseðil (ákveðnar reglur eru um hversu oft junkfood má vera, tíðni fisks oþh). Mjög sniðugt og byrjaði ég á þessu þegar ég var um 12 ára. Í dag bý ég með kærustunni minni og við eldum oftast saman (og vöskum upp saman)- það er skemmtilegra en að standa einn að hamast. En við tókum upp matseðils hugmyndina frá mínum foreldrum og virkar hún...

Re: Lag Dagsins!

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Bob Dylan: “Idiot wind” eða “Sad eyed lady of the Lowlands” eða “Sara” eða “Hurricane” eða “With God on Our Side”, “Masters of War”, “Subterrean homesick blues”, “Desolation Row”, “Man in me”. Eins og fleiri gæti ég talið upp næstu klukkutímanna - jafnvel þó ég myndi bara halda mig við lög eftir Bob Dylan sem ætti að skrá á heimsmynjalista Sameinuðu þjóðanna sem ómetanlega, sameiginlega arfleið heimsins. “Ekki fleiri en eitt í einu því þá verða góðu lögin fljótt búinn.” Ó nei, góðu lögin...

Re: Svar lágværrar raddar

í Dulspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
cyperidiot, alltaf gott að geta hjálpað fólki til að skilja tengslin milli trúar/trúarbragða og veraldslegs raunveruleika. Þakka þér sömuleiðis að taka ábendingum vinsamlega, kíki á linkanna seinna (get einungis innbyrt visst magn á dag af ranglæti heimsins).

Re: Re: Vandræði með Femínista

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
heyr hey

Re: Vandræði með Femínista

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Minni á að Feministafélag Íslands hélt fjölsótt karlakvöld á Grand rokk þar sem þessi mál voru rædd. þeas niðurlæging karla í auglýsingum, einnig var talað um karla í sjónvarpsþáttum, her, húmor og vændi. Einungis karlmenn fluttu erindi en fjölmargir sóttu fundin, bæði karlar og konur. Hélt að flestir hefðu vitað af þessu þar sem þetta fékk nokkuð mikla athygli… og mér finnst það vera mjög alverlegt mál þegar ung börn eru mötuð á þessum hugmyndum um karla og konur. Ekki myndi ég vilja að...

Re: Vandræði með Femínista

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Masculinistar! Feministar/feminismi hefur verið sterkasta jafnréttistækið undanfarna áratugi, en það er einmitt feministar en ekki masculistar af þeirri einföldu ástæðu að það hallar á konur í mun fleirri (og veigameiri) atriðum heldur en körlum. Persónulega finnst mér flestir (alls ekki allir) feministar vera málefnalegir og ekki tala um karlmenn sem svona og svona hóp - reyndar hafa feministar barist mjög gegn staðalmyndum kynjanna - gegn hinum svokalla mars-venus/hellisbúa hugsunarhætti....

Re: Vandræði með Femínista

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
uppsagnir á norðurljósum fóru ekki eftir starfsaldri, annri reynslu eða vilja til að vinna meira. Sorry but these are the facts! Blaðamannafélag Íslands hefur einnig gagnrýnt þessar uppsagnir en hefur ekki, frekar en aðrir (ekki einu sinni þeir sem sagt var upp), fengið upplýsingar um hvað lá að baki. Afhverju er samt engin að kvarta undan vælandi blaðamönnum? Og ef bara karlkyns fréttamönnum hefði verið sagt upp hefði líka komið umræða í kringum það, kannski ekki hvað síst hér á huga....

Re: Uppáhalds hljómsveitir, lög og geisladiskar!

í Rokk fyrir 22 árum, 10 mánuðum
vá hélt í 1/2 sekúnda að einhverjum væri alvara, en alltaf gaman að smá húmor í svona listum - brýtur upp Metaillica/Iron Maiden æðið sem virðist vera í gangi. Annars vil ég óska fokkoff og eliathor til hamingju með að vera með skemmtilegasta og vitrænasta tónlistarsmekkinn (að mínu mati - aðrir vinsamlega tekið því ekki þannig að þið séuð vitlaus og leiðinleg) Og Billy Corgan er ekki guð á meðan Bob Dylan er á lífi…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok