Það hefur hver sinn björgunarbát. Ég er ennþá að leita að mínum. Ég vildi ekki skrifa neitt því ég held að það hefði bara verið asnalegt. Allt sem mér datt í hug var alla vega asnalegt :) En hver/hvað er góð spurning vegna þess að ég held að þetta geti verið hvoru tveggja.
Þetta er alveg ágætt. Það er gott að losa um tilfinningar öðru hvoru. En ekki afsaka þig. Fólk hérna er alveg ófeimið við að leiðrétta og leiðbeina. Svo er bara að kunna að vinna úr gagnrýni. Haltu áfram :)
Heyr, heyr, tek undir með HjaltaG. Þú átt þessa stöðu skilið og ég veit að þú átt eftir að fara létt með að lyfta þessari annars ágætu síðu á hærra plan. TU TU.<br><br>………will I ever see your sweet return, oh will I ever learn……..(Jeff Buckley)
Þetta er alveg ágætis hugmynd hjá þér og þú vinnur sæmilega úr henni. En lengi má gott batna eða eitthvað. Betra en margt annað sem ég hef lesið eftir þig.
Þú gerir engum gott með því að deyja. Ef fólk gefst upp fyrir oki yfirvalda þá ganga þeir á lagið og fara að stjórna okkur enn meira en góðu hófi gegnir. Gott ljóð samt sem áður. Ein spurning þó er ekki “f” í efann.
Hvað ertu gamall Bjössi3 þetta er nú ekki uppá marga fiska hjá þér, mæli með að þú kynnir þér ljóð áður en þú ferð að setja sjálfur hér inná huga. Svo er eitt S í kisa.
Fín grein hjá þér. Skemmtileg mynd. Ég var einu sinni í hljómsveit sem hét Frogadog sem er einmitt nafnið á pulsuvagninum. Sorglegt að sjá ekki meira af M.J. Fox. Vona að honum gangi vel í baráttunni við sinn sjúkdóm.
Nirvana er að sjálfsögðu snilldarsveit enginn vafi á því. Hefðir alveg mátt vinna aðeins meira í þessari grein. T.d. hefði mátt koma fram hverjir fleiri spiluðu á Unplugged plötunni með þeim og segja frá fyrsta trommuleikaranum Chad Channing minnir mig að hann hafi heitið. Veit annars einhver hvað varð um hann? Lokaniðurstaða er sem sagt sú að þessi grein er sæmileg en lengi má gott batna eða eitthvað. Ánægður með Nirvana útskýringuna.
Glæsilegt hjá þér, ég dáist að fólki sem getur gert svona góðar vísur. Skemmtileg lesning og vonandi að maður fái að sjá fleiri svona góðar vísur hérna á huga. BRAVÓ.
Takk, takk. Nú þessi titill er dálítið persónulegur. En hann tengist upphafsstöfum þeirrar manneskju sem ljóðið er í raun og veru um. Ekki svo að skilja þó að upphafsstafirnir séu GKU. Var búinn að hugsa um tugi titla en endaði á þessu einhverra hluta vegna.
Þetta er alveg ágætt að mínu mati. Hafðir greinilega mikið að segja. Skil hvað þú meinar með því að þetta hafi bara komið út úr þér á ensku. Kemur fyrir hjá mér líka. Virkar dálítið á mig eins og texti í lag frekar en ljóð, en svo má líka segja að textar í lögum séu líka ljóð.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..