ég held í hönd þína
mjúk
ég næri þig
ósjálfbjarga
ég horfi á slétt andlit þitt
hrein
ég vernda þig frá umheiminum
reynslulaus
ég held þér þétt
ætla aldrei að sleppa þér
barnið mitt

ég held í hönd þína
hrjúf
ég næri þig
ósjálfbjarga
ég horfi á skorið andlit þitt
falleg
eitt sinn verndaðir þú mig
ævistarf
ég held þér fast
einn dag verð ég að sleppa þér
mamma mín


Irma