:: Breakbeat.is - Húkkaraball DJ Panik á Club 22 [2. ágúst]

Breski dáðadrengurinn DJ Panik hitar okkur upp fyrir Verslunarmannhelgina og spilar á einu öflugasta Breakbeat.is kvöldi ársins fimmtudagskvöldið 2. ágúst á Club 22 (Laugavegi 22). Kauði gerir það gott með reglulegu millibili á öflugasta jungle klúbbi heims, Movement á Bar Rumba í London, og hefur þrisvar sinnum tryllt dansgólf í Reykjavík; á Synthetic kvöldi á Gauknum, Breakbeat.is og úrslitakvöldi Herra Breakbeat.is á 22ur. Aðgangseryrir er 500 krónur, aldurstakmarkið er 18 ár og tjúttið stendur frá 21:00 til 02:00.