Ég vildi bara benda á, þar sem að það eru svona margir ábyrgir doberman og rottweiler eigendur hérna inni, að ef hundarnir eru skráðir í HRFÍ þá hvet ég ykkur eindregið til þess að fara með hundana í skapgerðarmat, næsta mat verður í maí. Með þessu mati er hæst að komast að því hvort að það eru í raun einhver vandamál með þessa hunda hér á landi, eða hvort að líkt og þeir hundar sem hafa verið prófaðir hafa sýnt (en þeir eru fáir) að það sé allt í góðum málum.