Þetta eru einstaklega skemmtilegir hundar, fjörugir og þægilegir. Ég persónulega er mjög hrifin af þeim og gæti alveg hugsað mér að eiga einn svoleiðis (á reyndar 3 hunda). Þeir eiga að vera með gólfsíðan feld (sýningarhundar) og síð eyru, það er svolítil vinna að hirða um þessa hunda því það festist allt í feldinum á þeim. Það er auðvelt að kenna þeim og stofnin hér á landi er nokkuð góður, það þarf þó að baða þá svolítið reglulega og greiða í gegnum feldinn, því annars flækist hann, og...