Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Farði..=)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég mála mig nánast aldrei. Ef ég er að fara eitthvað spes eða á djammið þá kannski set ég smá eyeliner, nota augnhárabrettara og örsjaldan púður. Er með dökka húð, svört augnhár og engar bólur þannig að ég þarf ekki að nota maskara, meik/púður eða bólufelara og þess háttar.

Re: kennarinn

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Afhverju varstu að kyssa kennarann þinn? Hvernig kom það til, hvar gerðist það?

Re: spurning til stelpna (hegðunarspurning)

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þetta er bara eitthvað rugl sem nánast enginn gerir.

Re: Klæðnaður stráka

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Mér finnst flott þegar strákar eru í gallabuxum ekki of víðar og svona kannski smá tættum, mega vera rifnar. Í töff köflóttum skyrtum eða bolum við, röndóttum bolum. Smá lubba en ekki of mikið. BARA SEXÝ ;) mmm….

Re: Ég er alltaf að pæla...:)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Kærastinn minn segir að hann vilji hafa smá til að klípa í. Ég er ekki feit en það er alveg hægt að klípa í smá, ég er 58,5kg eða er það kannski alltof þungt??? =/ Og það eru engar fellingar á mér heldur bara svona línur niður beinar en ekkert sem kemur út úr bolunum sem fellingar.

Re: Stelpur svarið þessu

í Rómantík fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Kannski er hún bara þetta all svakalega feimin eða hefur engan áhuga á að tala við þig. Þú ættir örugglega að geta dæmt það af svipnum á henni hvort hún sé bara feimin eða vilji ekki tala við þig.

Re: Án hennar..

í Rómantík fyrir 22 árum, 4 mánuðum
ég er 16 ára og það var reyndar ekki ég sem var ofvernduð heldur var það vinkona mín. Það var virkilega leiðinlegt, hún mátti aldrei gera neitt, alltaf koma snemma heim (kl.22:00 nánar tiltekið) en núna eru þau farin að sæaka aðeins á og leyfa henni að vera úti til rétt yfir miðnætti þótt það sé skárra er það samt ekki mjög langur útivistartími fyrir ungling.

Re: hvað er of ungt?

í Rómantík fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það er ekki hægt að segja til hvað er of ungt. Ég byrjaði hins vegar að sofa hjá í lok 9.bekkjar. En það var líka með kærastanum mínum ekki bara einhverjum strák. En ekki samt fara að sofa hjá honum bara til að hann dömpi þér ekki, gerðu það frekar þegar þú ert tilbúin til þess.

Re: Vantar mikla Hjálp!!!!!

í Rómantík fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Vá ok ef ég væri þú þá mundi ég stoppa þetta brjálæði núna. Hvernig getur hún sparkað alltaf í punginn á þér? mér mundi ALDREI detta það í hug að gera það við kærastann minn, og ef ég væri eitthvað rífast við hann og væri að lemja hann mundi ég kýla hann frekar (en til þess hefur samt ekki komið enn) En komdu þér frá henni áður en hún gerir þig getulausan eða rífur undan þér eða eitthvað verra jafnvel! Þú átt ekki að þurfa að standa í þessu frekar en nokkur annar, en það er samt rétt hjá þér...

Re: Auddi í 70 mín !

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Síðast þegar ég vissi þá bjó hann með strák að nafni Sverrir…

Re: Hjálp! Eða eitthvað...

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Vá, rólegur með að vera neikvæður.. Það þarf ekkert að vera dýrt að vera í sambandi, þú þarft ekkert alltaf að vera að gefa ástinni þinni eitthvað -svo ætti maður ekki að sjá eftir peningum í þá sem maður elskar eða það geri ég alla veganna ekki. Sambönd gefa manni einmitt mikið mjög gott. Það er gott að vera í návist þess sem maður elskar. Ófrjáls: Þú átt ekkert að vilja að gera eitthvað sem er bannað að gera ef þú elskar manneskjuna, t.d. eins og að halda framhjá. En það er samt oft þannig...

Re: Er það?

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ef þú ert að spurja fyrir sjálfa/n þig þá er kannski sá/sú eini/eina fyrir þig í einhverju öðru landi ef þú hefur ekki fundið hann/hana ennþá.. =)

Re: Þoli ekki þegar ég roðna svona!

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er svona líka en samt ekki svona slæm. Ég roðna reyndar ekki þegar ég geng framhjá fólki heldur bara ef einhver segir eitthvað við mig fyrir framan aðra sem er vandræðalegt fyrir mig. En ég er samt ekkert feimin við fólk en roðna samt, því ég þoli ekki þegar margir horfa á mig í einu..

Re: Hvar á maður að leita?

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég kynntist kærastanum mínum í gegnum kærasta vinkonu minnar. Það var þannig að vinkona mín byrjaði með strák í ágúst í fyrra, og það var oft partý hjá vinum hans og við vinkonurnar fórum oft þangað. En ég talaði voða lítið við hann í fyrstu, vorum bara svona “party-kunningjar” :) En svo í byrjuninni á þessu ári fórum við allt í einu að taka eftir hvort öðru á annan hátt og byrjuðum að tala saman í síma og svona í maí minnir mig svo í júlí-ágúst byrjuðum við að dúlla okkur en það var ekki...

Re: Hvort er verra..?

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Maður gæti kannski alveg fyrirgefið það, en það yrði geymt en ekki gleymt! En hins vegan þá held ég að mér mundi þykja erfiðara að fyrirgefa framhjáhald. Ég held að það særi mann meira tilfinningalega. En ég mundi samt líka snappa ef kærastinn minn mundi lemja mig..

Re: Aldur

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
á 15 ári og það entist í 3 og 1/2 mánuð =)

Re: Vandi!!! (HJÁLP)

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
þú gætir alveg prófað að dúllast eitthvað með honum og sjá hvort þú verðir eitthvað hrifin af honum. Ég gerði það við núverandi kærasta minn;) ég var ekkert ógeðslega hrifin af honum fyrst en hann var ýkt góður,skemmtilegur,er sætur, smá rómó af og til og svona. Svo eftir smá tíma varð ég ýkt hrifin af honum og er það enn.. =)

Re: Rómantík?...

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég var einmitt að horfa á þá mynd í gær ;)

Re: Það sem að stelpur hugsa:

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
já vá hvað ég er sammála þér. Stelpur eru alltaf að fullyrða eitthvað um stráka og mér finnst það ýkt pirrandi. (ATH ég er stelpa..)

Re: Markmiðið var rómantískt kvöld!

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég skil hana alveg að hafa viljað kíkja til vinkonu sinnar fyrst hún var að halda upp á afmælið sitt,það gerist nú bara einu sinni á ári en þið getið alltaf átt ykkar rómantísku stundir. Alla veganna finnst mér allt í lagi að hún hafi viljað kíkja þangað í 30-60mín. Það kalla ég heldur ekki langan tíma.

Re: Eric Winter *slef*

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Getur einhver ekki sent mynd af honum hingað inn? Veit nefnilega ekkert hver þetta er, en alltaf til í að sjá fallega karlmenn =)

Re: Eftir hverju fer fólk við leit að maka?

í Rómantík fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það er mjög misjafnt hverju ég leita eftir hverju sinni.. En td núna þá er kærastinn minn svona týpa sem er í rifnum gallabuxum, svoldið mikið hár(er samt nýbúinn í klippingu þannig það er eiginlega stutt núna), er í svona töff skyrtum/bolum(veit ekki alveg hvernig ég get lýst þeim). Gengur í converse skóm,alls ekki feiminn -þorinn í alla staði,nánast sama hvað fólki finnst um sig. Kann að skemmta sér við allar aðstæður,ekki egóisti,hefur góðan húmor. Hann virðist mjög harður við fyrsta...

Re: Hæna

í Rómantík fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þetta hljómar eiginlega þannig að þú vitir ekki hvað þú viljir nema kynlíf kannski.. og þú þarft bara að komast að því hvað þú vilt og finna stelpu sem hefur það. Og ekki sýna minni áhuga eftir að þið byrjið saman þá missir hún bara áhugann. Stelpur fíla þegar strákar sýna þeim hversu vænt þeim þykir um þær. Þótt það sé bara knús og koss á munninn þá er það fínt (það verður samt náttúrulega að sýnast í því að þér þyki vænt um manneskjuna)

Re: Jennifer Lopez

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 6 mánuðum
váá þvílíkar upplýsingar sem þú veitir okku

Re: Kallinn minn er bestur

í Rómantík fyrir 22 árum, 6 mánuðum
það er ekkert að læra hvað rómantík er,hún er bara meðfædd og það er mismunandi hvað fólki finnst rómantískt. En að segja viltu byrja með mér er kannski ekkert asnalegt ég viðurkenni það alveg að það er pínuponsu sætt undir ‘vissum’ kringumstæðum..!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok