Sælt veri fólkið!

Það er eitt mál sem ég hef mikið verið að velta fyrir mér. Það er mikið af pörum í kringum mig dags daglega og allt í góðu með það, nema það að ég er ekki hluti af pari. Ég er búinn að gera allt sem mér dettur í hug til að ná mér í kærustu, en það bara er ekki að virka. Ég er búinn að prufa einkamal.is, private.is, speeddater.is, búinn að vera að svipast um í skólanum og svo auðvitað er ég búinn að skoða úrvalið á djamminu (sem er stórlega ofmetið). Ég er frekar vel útlítandi og skýr í kollinum og ég er aldrei með stæla eða að þykjast vera eitthvað annað en ég er. En nóg um mig, ég geri ekki ráð fyrir að neinn hérna geti leyst mín vandamál og ætlast ég heldur ekki til þess. Þetta var svona bara til að reyna að koma í veg fyrir óþarfa athugasemdir og skítkast, sem ákveðnir hugarar virðast ekki getað fengið nóg af.

Jæja nú spyrjiði hver er tilgangurinn með þessari löngu grein. Jú, mig langar að vita hvar þið hittuð ykkar maka? og hvernig?

oracius