Hæhæ þetta er nú ekkert mikið vandamál og ég veit að ég er með áhyggjur út af engu en ég vildi bara spurja:

Okei, ég er mjög lágvaxin og alls ekki feit, en ég held samt að ég virðist vera miklu mjórri en ég er því að ég er svo lítil. En það er svo margt sem ég er ekki sátt við, eins og maginn, lærin og rassinn, það er ekkert svo flott en ég næ samt að fela það með því hvernig ég klæði mig.
Vinir mínir eru alltaf að segja að ég sé geðveikt mjó og eitthvað, en það er samt ekki satt, ég er með eitthvað utan á mér sko…
En ég vildi bara spyrja ykkur hvort að strákum finnist í alvörunin í lagi að maður sé svona bara “venjulega” vaxinn, vilja þeir eitthvað til að klípa í? Ég meina ég held að strákar sem ég hef verið með hafi ekkert verið ósáttir með vaxtalag mitt, en maður veit samt aldrei.
En hvað haldið þið?<br><br>Lífið er eins og konfektkassi…þú veist aldrei hvaða mola þú færð!! :o)
_____________________________________________

Kíktu endilega á kasmír síðuna mína og skráðu þig í gestabókina, skiptir ekki máli þótt þú þekkir mig ekki! :-D

Ég vil FIMLEIKA sem áhugamál!!
Ég finn til, þess vegna er ég