Finndu einhvern sem þú treystir vel til að tala um þetta. Ekki byrgja þetta allt inni. Ég hef sjálf lent í þessu bæði í grunnskóla og framhaldsskóla og er ennþá að vinna úr þessu en það sem hefur hjálpað mér best er að tala um þetta við einhvern sem mér finnst auðvelt að tala við og get treyst. Gangi þér vel =) Kv. whateve
Er bara ekki málið að Iðnskólinn semji við einhvern sem á bílastæðaplan þarna nálægt um að nemendur fái að leggja þar þangað til framkvæmdum líkur? Verzló er með þannig samning við Kringluna um að nemendur megi leggja þar því planið þeirra er svo lítið…
Ég segi nú bara til hamingju =) ég er sjálf með 3 en það er misvont að fá tattoo, það fer eftir því hvar þú setur það, það er verst þar sem það er bein beint undir…
Bara að segja þér að passa þig á svona long distance relationship, því fjarlægðin gerir fjöllin blá… =) hef lent í þessu sjálf, bíddu og sjáðu til eftir að hann kemur heim aftur…
Það eru nú nokkur íslensk blöð sem fjalla um það sem fer fyrir brjóstið á Bríet… T.d. má sjá fyrirsagnir á borð við “Ertu hætt að nenna að sofa hjá?” og “Hvernig á að gleðja karlinn”. Flestar greinar um kynlíf í þessum blöðum fjalla um hvernig við kvenmenn eigum að vera betri við karlkynið og hvernig á að þóknast þeim sem best. En það sem mér finnst áhugaverðast að þessar greinar eru yfirleitt skrifaðar af konum fyrir konur og eftir því sem ég best veit eru kvenkyns ritstjórar á öllum þessum...
Ég er nú ekki alveg nógu sátt núna, ég sendi inn svipaðan brandara um daginn og honum var hafnað vegna þess að það væru ekki allir karlar eins og að þessi brandari væri alhæfing um þá… =(
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..