Svona er þetta alltaf. Þeir spila vel framan af en missa þetta alltaf svo í lokin. Ég fylgdist líka með leiknum þrátt fyrir að ég væri nokkuð viss um að þeir myndu tapa honum, samt var gaman að sjá Juwan Howard spila vel, hann er allur að koma til. Það sem Magic þarf til að vinna leik er leikur þar sem T-Mac, Howard, Lue og Gooden eiga allir góðan leik, þá hlýtur liðið að sigra. Metið í NBA eru 23 tapleikir í röð, Nuggets og Grizzlies eiga það met saman. Metið hjá Magic hafði verið 17...