Besti alhliða leikmaður deildarinnar (að mínu mati), Kevin Garnett og lið hans Minnesota unnu Dallas í frábærum leik í nótt, 114-109. Garnett sem hefur spilað sem Power Forward í vetur var færður yfir í Center stöðuna og hann fann sig frábærlega þar, var með þrefalda tvennu, 35 stig og 13-26 utan af velli, 10 fráköst og 10 stoðsendingar, líklegast besti leikur hans í vetur. Síðan má bæta því við að hann var með 43 í efficiencyl.

Reyndar var allt Minnesota liðið að spila mjög vel, nema kannski Latrell Sprewell. Sam Cassell var með 26 stig, 5 frá og 6 sto. Gary Trent með 18 stig, 12 fráköst og 100% nýtingu utan af velli, og Trenton Hassell var með 14 stig og 9 fráköst. Allt liðið var að hitta vel og nýting liðsins var 52,5%.<br><br>
<i>“Þú kallar þetta kannski dans, en láttu bollastellið mitt vera”</i>

<b>Múminálfarnir</