Er eitthvað komið hverjir taka þátt í henni. Ég hef allavegana ekki séð neitt um það. Drauma troðslukeppnin mín yrði svona. Vince Carter … hann hefur verið að sýna flott tilþrif í vetur og er greinilega búinn að finna sig.

Desmond Mason … sjitturinn þessi drengur getur troðið. Yndislegar troðslurnar hjá honum … stökkrafturinn og bara allt. Uppáhalds troðarin minn í dag.

Jason Richardsson … sigurvegari síðustu tveggja ára. Drengurinn hefur sannað fyrir flestum að hann getur troðið. Desmond Mason hefði getað unnið keppnina í fyrra en svo kom Richardsson með þessa klikkaða troðslu … dunk of god getur maður nefnt hana.

LeBron James. Það yrði klikkað. Lebron er stór og sterkur, getur stokkið og troðið. Ég er emð mörg hundgruð megabæt af honum í tölvunni og á hann margar flottar troðslur þar.

Þetta yrði geðveik keppni ef að þessir myndu taka þátt.<br><br>http://pb.pentagon.ms/the-goat/