Vá…ég á mér ekkert líf.

Alla vega, þegar ég byrja að skrifa þetta eru 26 sek eftir af leik Wolves og Clippers og staðan er 94-94. Clippers voru að taka leikhlé en þeir voru búnir að vera betri allan tímann, enda styð ég Wolves í þessum leik. En Sam Cassell sem hafði lítið sést allan leikinn er búinn að eiga stórkostlegan 4. leikhluta og a.m.k búinn að skora 13 stig og jafnaði leikinn.´

Núna rétt áðan fóru Clippers í sókn en Maggette klúðrar og Fred Hoiberg tekur frákast, wolves taka leikhlé…

SNIIILLLD, hver annar en Kevin Garnett skorar og samkvæmt Courtside Live hefur hann skorað þegar 00:00 sekúndur eru eftir, hvílíkur endir, vá hvað mér hlakkar til að sjá recap af leiknum, borgiði einhvern smáaur og skráiði ykkur í Inside Ticket á NBA, endalausar körfu vídjó klippur. Jæja, kannski frekar heimskulegur korkur en samt, þessi leikur var háspenna.
<br><br>

———————————————
<i>Hvað kostar Snickers í esso?</i>
<b>Páll A. Pálsson </