Það virðist sem að einhverjir hjá skífunni séu ekki alveg heiðarlegir með Muse miðasöluna, vinur minn, Outlandish á huga, hringdi í Skífuna í gær og spurði hvort það væri satt að það ætti að selja 100 miða á icelandair.is/muse. Sölumaðurinn sagði að þetta væri sú mesta vitleisa sem hann hefði heyrt og að þetta væri bara slúður. Síðan bíður hann vini mínum að kaupa miða á 7000 kr!!!
Þetta kom mér mjög á óvart því að þótt ég vissi að Skífan væri plebba fyrirtæki þá datt mér aldrei í hug að þeir stæðu í svartamarkaðsbraski! En allavega, sem betur fer þá keypti hann ekki miðann af þeim heldur fékk hann á 4500 á icelandair.is/muse.