Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Til tmar:

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Tár er mjög rómantískt tákn. Var notað mikið af rómantísku skáldunum, eiginlega ofnotað. Eftir það hefur einhvern veginn táknið tapað gildi sínu og orðið klisja. Mér finnst að við, sem eigum að heita skáld, verða að hefja málið upp á nýtt stig eða plan, finna upp og bylta myndmálinu. Þora að nota ný tákn, búa til ný orð og jafnvel ný orðatiltæki….En við megum ekki festast í klisjum og frösum….Ekki svo að skilja að ég sé að segja að þú sért það, þú ert mun duglegri en ég að finna upp ný orð....

Re: Blóm

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
mjög flott, sterkt myndmál sem geymir ríka tilfinningu. ég er mjög hrifinn nb. ljóðstafir og tvöfalda neitunin í 2.línu í 3.erindi er svolítið shaky annars er ljóðið mjög gott

Re: Ég sakna...

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
mjög fallegt og einlægt ljóð….klapp,klapp!

Re: Til tmar:

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ljóðið er bara þó nokkuð flott…ég er nokkuð sáttur…það er rím, sem er gott, en ég held að þú vitir hver næsta setning frá mér verður þannig að ég er ekkert að segja hana…en þú svindlaðir!…Þú máttir ekki nota orðið dauðinn, hvorki sem no., lo. eða so., það var trickið! Mig langar til að spyrja þig um hvernig það virkar á þig þegar táknið tár er notað í ljóðum, það virkar alltaf svolítið öfugsnúið á mig, mér finnst það klisja(ofnotað)….En ljóðið er þunglynt og kemur þeirri tilfinningu mjög vel...

Re: Hugsað

í Smásögur fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ég þakka bara kærlega fyrir mig….

Re: Það var myrkur hjá mér í dag

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
hvort heldur sem er…þá finnst mér það flott

Re: Almennt um ljóðstafasetningu

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Taktur, eða hrynjandi, er það sem þú færð út úr vinnu með ljóðið. Lesa það upp aftur og aftur. Eftir því sem þú leggur meiri vinnu í ljóðið, hvort heldur sem er hrynjandi eða ljóðstafi, verður ljóðið metnaðarfyllra og fyrir vikið(yfirleitt) betra. Það er auðvelt að sjá hverjir það eru sem leggja virkilega vinnu í ljóðin sín, ma. með því að rýna vel í þau. Skoða vel hvernig skáldin eru að beita ,,ljóðatækninni". Margir hafa sagt hér á huga.is að það sé óþarfi að vera njörva niður fagra hugsun...

Re: Það var myrkur hjá mér í dag

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
nei, mér bara datt það í hug því að þú notar ,,lítið, saklaust blóm" , á svipaðan hátt og ég setti það upp…..Mig minnir að Sveinbjörn Eegilsson hafi eitt sinn sagt að öll ljóð taki að einhverju marki tillit til allra ljóða sem samin hafa verið….ljóð snertir ljóð….

Re: Morgunn

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
flott ljóð, frábært myndmál, ljóðstafir næstum allsstaðar, vantar í 8. línu, en ótrúlega flott ljóð að öðru leyti

Re: Það var myrkur hjá mér í dag

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
laglega gert….flottar endurtekningar sem mynda ramm um hvert erindi…..vitnar í mig!…takk fyrir!….rími fylgja ljóðstafir….annars vel gert!

Re: Til pardus

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
NB….þú ert að fjalla um hugtakið dauðinn…..

Re: Til pardus

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ljóðið heitir blómið en pardus var búinn að skora á mig að yrkja ljóð með rími. þess vegan er titillinn mertur honum. Það er ekkert fæt í gangi, við erum bara að leika okkur, allt í góðu!

Re: Almennt um ljóðstafasetningu

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Það segir sig náttúrulega sjálft, ef að vinna er lögð í ljóð, hljóm þess, myndmál og ljóðstafi þá verður ljóðið fyrir vikið betra… Aftur á móti eru ekki margir sem nenna þessu. 'I íslenskum ljóðum, þe. þeim sem hafa verið gefin út, hef ég ekki enn séð rímuð ljóð án ljóðstafa. Vissulega eru til margir sem telja lagatexta vera ljóð, afþví að þeir ríma eða höfða sérstaklega til þeirra. Lagatextar eru lagatextar en ljóð ljóð, aftur á móti hefur verið samið lag við mörg ljóð en ég veit ekki til...

Re: COR ET PULM

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ljóðið er allt-í-lagi…. Þú ert með ágætis rím, stundum stuðlaru eða setur ljóðstafi en sjaldan eða aldrei höfuðstaf… boðskapurinn kemst í gegn…. myndmálið hefur verið betra hjá þér… allt-í-lagi ljóð en þú getur gert betur…

Re: Um smærri glæpi...

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Það hefur sýnt sig að eftir því sem dómar yfir glæpamönnum eru hertir, því stærri og umfangsmeiri verða glæpirnir. Glæpamenn hætta að taka áhættuna fyrir lítið fé, ef þeir eiga á hættu að verða sendir í fangelsi í langan tíma. Félagsfræðingar hafa sýnt fram á að ,,besta“(ef að hægt er að kalla einhverja lausn í þessum málum góða) er að draga úr vægi minni refsinga og jafnvel fella niður, eins og hugleiðingarnar eru hér, minniháttar fíkniefnabrot af sakaskrá. Því að þá er ekki lengur jafn...

Re: Til pardus

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Sólin reis í dögun Stakk eins og hnífur í augun vitStola, ráfandi á vegi einum Dapur maður maður á vegi breiðum en Dimmum. 'Eg gagnrýni ekki aðra fyrir það sem ég ekki geri sjálfur….. Ef þú skoðar vel kvæðið þá sérðu að þar eru allstaðar ljóðstafir. Þó svo að höfuðstafurinn standi kannski fyrir aftan einstaka forlið. Þú þarft bara að rína vel í ljóðið.

Re: Ég sé þig.

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Blessaður vertu, klipptu þær út…. Hverjum er ekki sama hvort að erindin séu tíu línur eða sjö….ljóðið er alveg yndislegt fyrir þær….

Re: Til pardus

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ljóðstafirnir eru þarna, 1.,2. og 3. lína stuðla saman og 4. og 5. lína. . Það er langt síðan ég samdi þetta ljóð, boðskapurinn frekar naív en gildur þannig séð. Ljóðin mín ganga frekar út á myndir en tilfinningar, mér finnst þannig ljóð virka betur á mig. Nú skora ég á þig, pardus. Að semja órímað ljóð um dauðann, án þess þó að orðið dauðinn, hvorki sem no., lo. eða so, komi fram. Ertu maður eða mús….

Re: Ég sé þig.

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ég bara verð að fá að segja þetta…alltaf þegar ég les titil ljóðsins blosar símaauglýsingin upp í huga mér, stelpan í bleiku peysunni í Búnaðarbankanum niður Lækjargötu…. ,,I see you, baby, shaking that ass…." mér finnst þetta bara fyndið….ekkert illa meint samt, ljóðið er gott….

Re: Veröld heyrið minn óð:

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Nei, nei, ég er enn ekki kominn í menntaskólanna. En þangað liggur leiðin. ég vinn í Víkurskóla með námi, ég er í íslensku í HÍ.

Re: Veröld heyrið minn óð:

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Það má vera að þú hafir rétt fyrir þér…en ég á nú að heita íslenskukennari og seinast þegar ég athugaði er varúlfur maður sem verður úlfur. Aftur á móti sit ég með orðabókina í fanginu. Var-forskeytið merkir aðgát, fyrirhyggja eða gát. Þannig að ef varöld er öld þar sem maður verður að vara sig, ok!

Re: Veröld heyrið minn óð:

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ég næ ekki alveg pointinu…. varúlfur heitir varúlfur af því að hann ,,verður úlfur"….varöld…af því að ? verður öld!?!

Re: 20 Svipuhögg

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
no pro

Re: Veröld heyrið minn óð:

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
áttu ekki við þegar heimurinn breytist í ömurlegan stað og ragnarök hefjast, eins og í Völuspá? Það er vargöld….

Re: Veröld heyrið minn óð:

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ps. er það ekki vargöld?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok