Haltu utan um mig
meðan rósirnar
sem þú gafst mér
deyja,
blæða ilmi sínum
út í einmana nóttina.

Láttu eins og
þú elskir mig.
Renndu höndunum
yfir nakið bak mitt,
laumaðu kossi
í hálsakot.

Viltu þykjast,
bara fyrir mig?