Slysaðist inn á ofangreindan tengil og hljóp út aftur.
Eru einhverjir hérna sem hafa kynnt sér þetta og geta sagt mér hvernig og hvers vegna þetta komst hingað?
Ég á óskaplega erfitt með að meðtaka ofsatrúarmenn, hverrar trúar sem þeir eru, og finnast skoðanir þeirra oftast skrumskæling á öllum trúarbrögðum.
Í þessu tilfelli langaði mig ekki einu sinni inn á vefinn því, skv. þeirra skilgreiningu er ég að samþykkja skoðanir þeirra fari ég inn.
Finnst fleirum en mér þetta verulega offensive?