Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re:

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
“Það sem er gott við Huga er að það er hægt að segja það sem í brjósti býr undir nafnleynd … ” Bæði kostur og galli. Það er hægt, ef maður er í þannig skapi, að kalla þetta heigulshátt; að þora ekki að koma fram undir nafni. “ … og engin þjóð hefur gengið í gegnum eins miklar ofsóknir.” Tja, nema Astekar og aðrir frumbyggjar í Ameríku - það tókst að útrýma þeim (sumum þeirra, a.m.k.), og sömuleiðis frumbyggjum Ástralíu og Nýja-Sjálands. Og gleymum ekki Böskum, Kúrdum og Armenum. Annars hafa...

Re: Aristóteles

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hins vegar mætti benda á, þessarri kenningu til stuðnings, að AM var ansi fljótur að taka við, skilst mér. Ekkert “Ó fokk, hvað á ég nú að gera?!” heldur bara gengið hreint til verks. En ætli hann hafi ekki frekar verið búinn að gera svona “contingency plan”?

Re: Sjónarhorn & túlkun

í Heimspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
“Allah & Múhamed Guð & Jesú” Þú ert þó ekki að reyna að halda því fram, að Allah sé einhver annar guð heldur en Guð, eða þá að Múhameð hafi átt margt sameiginlegt með Jesúsi? Það er nefnilega alveg gríðarlegur munur á Jesúsi og Múhameð; Jesús, segja kristnir, er sonur Guðs, en múslimar halda engu sambærilegu fram um Múhameð. Fyrir þeim er Múhameð spámaður, en hann er ekki sonur Guðs, a.m.k. ekkert frekar en menn almennt, hann er bara maður eins og ég og þú (nema útvalinn, auðvitað). Það sem...

Re: Gríman loksins fallin? (Væntanlegt stríð BNA)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
idf: Það heitir “Guð”, ekki “Alla”. Eða talaru um guð Suðurríkjamanna sem “God”? Ef menn ná ekki svona grundvallaratriðum, þá er sennilega út í hött að reyna að koma með eitthvað flóknara, eins og t.d. ranglæti þess að refsa mönnum fyrir það sem þeir hafa ekki gert, eða þá að refsa mönnum án þess að dæma í máli þeirra fyrst.

Re: Gríman loksins fallin? (Væntanlegt stríð BNA)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
idf: Þetta kemur málinu heldur ekkert við. Þú varst að halda því fram að þessar aðgerðir væru réttlætanlegar. Ekkert af því sem þú hefur sagt hefur bent til þess. Refsingin *er* aðalatriðið; það skiptir litlu máli hvaða niðurstaða fæst ef aðferðirnar eru óréttlátar. Auk þess, þá dugar þetta ekki til að fæla menn frá því að redda fjölskyldunni smá pening. Hvað segiru að Saddam gefi fjölskyldunum - 25000 dali? Það er umtalsverður peningur, og fólk getur einfaldlega keypt sér nýtt hús í...

Re: Friedrich Nietzsche -Ritgerð

í Heimspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef þú ert kristinn, má ég þá mæla með Sören Kirkegaard?

Re: Frjáls eða hvað?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef maður er ófrjáls og ánauðugur, hvort sem hann efast eða aðhyllist hindurvitni og hjátrú, þá er ánauð efans mun betri. Annars; að vera frjáls er að vera ekki ánauðugur, að vera ekki undir valdi annars manns og geta ekkert í því gert.

“Disobey … it's allowed”

Re: Gríman loksins fallin? (Væntanlegt stríð BNA)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Gandalfur: Ég hef ekki hugmynd um hverjar sannanirnar eru. Ég var aðeins að benda á það, að þótt maður geti sannað að einn eigi eitthvað, þá er ekki þar með sagt að maður viti hvar það er.

Re: Gríman loksins fallin? (Væntanlegt stríð BNA)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
idf: Ekkert af þessu kemur málinu hið minnsta við. Málið er að það er verið að refsa fólki fyrir að gera eitthvað sem það gerði ekki og ber enga ábyrgð á, og ef menn eru síðan ábyrgir þá er ekkert verið að nota tíma til að sanna það. Dálítið eins og harðstjórar um víðan heim hafa verið duglegir við að gera: Ef þú flýrð land, þá drepum við maka þinn/börnin þín/foreldra þína.

Re: Rumsfeld afhjúpar fávisku sína í beinni

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvað í ósköpunum er svona flókið við það að setja músarbendilinn í litla hvíta boxið við hliðina á setningunni “Láta höfund vita að honum hafi verið svarað” og fyrir ofan “Senda”-hnappinn og smella einu sinni með vinstri músarhnappnum? Annars ágætt að því sé sleppt þegar svörin eru svona rýr.

Re: Gríman loksins fallin? (Væntanlegt stríð BNA)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvernig er réttlætanlegt að rífa hús aðstandenda? Hvers vegna í ósköpunum ætti ég að bera ábyrgð á því sem lögráða sonur minn gerir? Eða vinur, bróðir eða frændi (þar sem þér þykir réttlætanlegt að rífa hús aðstandenda þá hlýtur þér að þykja hús allra þessara að vera “fair game” - þetta eru allt aðstandendur mínir).

Re: Gríman loksins fallin? (Væntanlegt stríð BNA)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Gandalfur: “Bush hefur sagt í marga mánuði að USA hafi sannanir fyrir vopnum Íraka en samt geta þeir ekki sagt vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu Þjóðanna hvar vopnin eru.” Enda er það að vita að einhver eigi eitthvað allt annað en að vita hvar hann geymi það. Þótt byssusali viti að einhver tiltekinn maður eigi byssu (t.d. vegna þess að hann á kvittunina eða eitthvað álíka), þá er ekki þar með sagt að hann viti hvað byssan sé geymd (og já, ég veit að gaurinn gæti hafa týnt byssunni eða selt hana...

Re: Ný lög um útlendinga

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvar er Apache til að fordæma þetta sem nasískt?

Re: Er vit í frumsendum stærðfræðinnar?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég veit ekki alveg hvað þú átt við með að “sanna tilvist orðanna” - það að þú notir þau ætti að vera næg sönnun fyrir því að þau séu til.

Re: Rumsfeld afhjúpar fávisku sína í beinni

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
“Af hverju mega allir úthúða Bush/BNA en þeir mega ekki svara fyrir sig?” Fylgir því að vera stærstur. Þá þarf maður að þola alls kyns mýflugnastungur. Bara eins og á leikskóla (sem á alveg sérstaklega vel við); tveggja ára krakkarnir mega aðeins stríða stóru krökkunum, en fjögra ára krakkarnir mega ekki slá tveggja ára börnin, sama hver byrjaði. En hvað með það þótt BNA hafi hjálpað Frökkum? Þótt Jón hjálpi mér að gera við bílinn minn, þá þýðir það ekki að ég eigi að hjálpa honum við að...

Re: Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Við túlkum þjóðsögurnar greinilega býsna ólíkt:)

Re: Friedrich Nietzsche -Ritgerð

í Heimspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég man ekki betur en að Nietzsche (hvað er annars að manninum, að gerast áhrifamikill heimspekingur með annað eins nafn?) hafi talað um ruddana sem “gáskafulla” (þ.e. “playful”). Hins vegar talar hann jú oftar um ofurmennið sem “blítt” (“gentle”) og þar fram eftir götunum. Siðferði þess er hvorki ruddalegt né þrælslegt (varst það ekki annars þú sem kallaðir þrælinn “lúpu” hér?) heldur þess eigið. Ég myndi helst líta svo á, að ruddinn sé fimm ára krakki sem slítur vængi af flugum - allt í...

Re: Hvað Vilja Strákar??????????????????

í Rómantík fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Tilhvers helduru að typpið sé? Þetta er fyrst og fremst en háþróuð græja til að lesa hugsanir. Þess vegna höfum við strákar líka miklu meira og betra innsæi en stelpur.

“Disobey … it's allowed”

Re: Hvað Vilja Strákar??????????????????

í Rómantík fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Strákar vilja alveg það sama og stelpur.

“Disobey … it's allowed”

Re: Að komast yfir??

í Rómantík fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Já já, þú getur auðvitað leyft þessu að fölna og drepast hægt og rólega. En það er ekkert voðalega spennandi, er það nokkuð? Og ef þetta er svona frábær gaur, á hann þá ekki betri örlög skilin en að þú gleymir honum? Átt þú ekki betra skilið? Frábært fólk er sjaldgæft (eðlilega), og við hin megum ekki gera okkur þann grikk að gleyma þeim. Þú ættir því frekar að fara í hina áttina; stinga þér á bólakaf í söknuðinn og sársaukann. Njóta þess, velta þér uppúr því - já, jafnvel semja nokkrar...

Re: Friedrich Nietzsche -Ritgerð

í Heimspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hehe, nú er gaman… Það er hægt að kynna sér hluti án þess að láta það hafa áhrif á huga sinn. Ég geri t.d. dálítið af því að kynna mér grískar goðsögur - en ég tilbið ekki Seif, Appolón og hin goðin. Ég er nýlega farinn að kynna mér kristnina að ráði - en ég sé ekki fyrir mér að ég verði næsti G.í.K. Og hann fellir ekki sjálfan sig, hvorki með neikvæðni né hroka. Hroka mun ég seint telja vera löst, og Nietzsche er ekki síður jákvæður en neikvæður, þar sem hann er ekki aðeins að rífa niður...

Re: Friedrich Nietzsche -Ritgerð

í Heimspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það myndi örugglega ekki spilla fyrir að læra smá stafsetningu - þá væri maður fljótari að skilja þig. En það liggur svo sem ekkert á. Og ályktunin sem þú dregur af þessum litla greinarstúf er undarleg, svo ekki sé meira sagt. En, eins og sagt er: Það er fátt skemmtilegra en að fella sleggjudóma um eitthvað sem maður nennir ekki að kynna sér.

Re: Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
“Ef líkja má einhverjum stjórnmálaflokki við samfélag þeirra Hróa Hattar, Litla Jóns og félaga þá er svarið án efa XF.” Með endemum óheppileg samlíking - nema þá að þú viljir í raun og veru meina að Frjálslyndi flokkurinn sé safn úrkynjaðra aðalsmanna (Hrói höttur), úrhraka (Litli-Jón) og drykkfelldra kirkjumanna (Tóki munkur).

Re: Spunaspilmót á Akureyri :)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þetta LARP er svo skrýtið … ég meina, hvernig eiga menn að fara að því að ráðast á hóp af orkum, slátra þeim öllum, fara svo og drepa drekann og hirða gullið hans? Hver myndi vilja leika einhvern sem á hvort eð er bara að drepast, hver gæti leikið drekann - og hvaðan ætti allt gullið og galdrasverðin að koma?

Re: Friedrich Nietzsche -Ritgerð

í Heimspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef þig langar að kynnast Ofurmenninu, komdu þá bara í heimsókn… Eða þá að þú ættir frekar að kíkja á ‘Svo mælti Zaraþústra’ heldur en ‘Handan góðs og ills’. Hvaða heimspekingur sem er getur verið hættulegur ef menn taka einungis á móti skoðunum þeirra án þess að melta þær fyrr. Hins vegar, hvað áttu við með þessu: “… getur Nitse verið afar slæmur t.d strák greiði sem skrifaði þessa ritgerð.”? Einnig má nefna, svona í framhjáhlaupi, að mér sýnist sem Nietzsche hafi þótt hugmyndin um dauða...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok