Það er kannske ekki í tísku, en það er um margt eðlileg viðbrögð. Í fyrsta lagi, þá er allt í lagi hjá flestum menntaskólanemum (og líka grunn- og háskólanemum): Þau hafa sæmilegan stað til að sofa á, sæmileg föt til að vera í, aðgang að tölvum og netinu, fá reglulega að borða, og svo framvegis. Það er lítil þörf fyrir löngun til að breyta einhverju. Í öðru lagi, þá virðist þetta lið allt vera meira og minna eins í sjónvarpinu. Einn segir eitthvað, annar mótmælir, einhver mótmælir aftur, og...