Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Í eitt skipti fyrir öll, ekki stríð vegna olíu

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Bláeygur já … hvað í ósköpunum heldur þú að muni gerast ef það væri ráðist á N-Kóreu sem hafa kjarnorkuvopn og hafa lýst því yfir að þau verði notuð ef á þá er ráðist? Væri ekki frekar vit í að reyna að koma í veg fyrir að fleiri „crackpot dictators“ fái þessi vopn - sem Saddam myndi verða sér út um með einum eða öðrum hætti, fyrr eða síðar? Er þetta síðan ekki örugglega bara innsláttarvilla: „Reagan stjórnin studdi Saddam á 7. áratugnum“? 198x er nefnilega 9. áratugurinn - forsetar 7....

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Tja, hvort er verra að fá alvöru typpi í rassinn eða jafnstórt gervityppi? Punkturinn var sá, til að byrja með, að Vesturveldin hefðu varið allan sinn peningamokstur í hernað með tilvísun í þá ógn sem stafaði af herjum Sovét/Varsjárbandalagsins, sem síðan reyndist minimal, þegar upp var staðið.

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er nú ekki gefið … ‘Semper Fi’ er kannske hróp landgönguliða BNA, en þetta er þó ekkert nema stytting á ‘semper fidelis’ (eða var það ‘fidelus’?) sem þýðir ‘alltaf trúr’ (Fidel Castro myndi t.d. á íslensku heita Tryggur/Tryggvi Kastró:D). Kannske eru þetta skilaboð til kærustunnar?

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Kjarnorkuógn, já, en ekki almenn ógn um að þeir myndu taka sig til og leggja undir sig V-Evrópu. Þeir hefðu aldrei náð því.

Re: Samviskan - Brjóstvitið

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Það eru til einstaklingar sem hafa enga samvisku og eru þeir með andfélagslega persónuleikaröskun.“ Ætti þetta ekki frekar að sýna okkur að samviskan er einmitt ekki lærð? Tveir menn hljóta sama uppeldi, eru kenndar sömu dygðir, og svo framvegis, þeir lifa jafnvel eins lífi upp að þeim punkt að annar verður samviskulaus skratti en hinn verður dýrlingur. Það er þá eitthvað annað en uppeldið sem er að gera þetta.

Re: stríð gegn hyðjuverkum?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Dixie: „Hvort eru þið með eða á móti Saddam Hussein? já eða nei Hvort eruð þið með eða á móti stríði já eða nei Mikil einföldun en endilega svarið þið þessu og hafið í huga að þetta eru tvær aðskildar spurningar.“ Spurningarnar eru illa orðaðar (svarmöguleikarnir eru eiginlega óskiljanlegir í ljósi spurninganna), en ég skal samt gera mitt besta til að svara þeim. 1. Ég er á móti Saddam. Það þýðir hins vegar ekki að ég sé með George, Tony og hinum - ég er á móti þeim líka. 2. Ég er á móti...

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Það var aldrei tiltekið í grein Ukulele að hann bæri hlýjan hug til Bandaríkjamanna hann greinilega hatar þá.“ Það þarf nú ekki mikinn velvilja til að skilja þetta sem svo að hann sé að segjast ekki hata BNA: „og vinsamlegast ekki fara að klína á mig að ég sé einhver Bandaríkjahatari.“ Og þetta hatur hans er langt í frá greinilegt. „Frakkar og Rússar hafa verið að mata Íraka með vopnum í gegnum tíðina það er alþekkt.“ Já já, og BNA líka. Eiginlega voru það Sovétmenn sem seldu Írökum vopn en...

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hey olræt! Ég er „einhver annar“! Loksins loksins! En hvað er fólk að tala um „bandaríkjahatur“ í þessari grein? Það er rétt að hún er illa skrifuð, of mikið af hástöfum (nema þar sem þeir eiga að vera) og svo framvegis - og ekkert af því kemur því við hvort eitthvað sé varið í greinina sjálfa. Og það er ekkert/afskaplega lítið af hatri á BNA í henni. Hvers vegna gera menn þetta, að segja að ef maður er ekki 100% stuðningsmaður BNA og þess sem þau og félagar ætla að gera (já, meira að segja...

Re: Nostradamus

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er það sem -hann- segir. Vonandi reynist hann sannspár.

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Það fylgir að sjálfsögðu að það að segja eitthvað/gera eitthvað þarf mögulega að hafa áhrif á verknaðinn.“ Þá er upphrópun Ukulele, sem er beint til Davíðs, Halldórs og ríkisstjórnarinnar, algerlega óviðeigandi, þar sem ekkert sem þeir segja mun hafa minnstu áhrif á það sem mun gerast. „Það má líka rökstyðja að stjórn BNA sé t.d. samsek um fjöldamorð sem framin hafa verið í Suður Ameríku“ Tja, það má auðvitað reyna - en það á ekki eftir að lukkast, nema þá aðeins varðandi þau fjöldamorð sem...

Re: Alþingi

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Ég nenni ekki að vera að flakka og sjá þessa stöð þótt það sé stutt. Fjarstýringin gæti bilað allt í einu og marr nennir ekki að standa upp.“ Hættu að horfa á sjónvarp. Vandamál leyst.

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Leyfi mér þá leti að vísa á svar mitt til Grunts (ætti að vera næsta svar fyrir ofan).

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Semsagt, allir þeir Þjóðverjar sem andmæltu ekki meðferðinni sem fórnarlömb nasista hlutu eru samsekir nasistum? Allir þeir Palestínumenn sem fara ekki í daglegar mótmælagöngur gegn sjálfsmorðsárásum landa sinna eru samsekir árásarmönnnum? Allir þeir Ísraelar sem mótmæla ekki framferði ísraelska hersins eru samsekir hermönnunum? Er ég samsekur hinum og þessum harðstjórum út um allan heim, sem Amnesty International er svo duglegt að fjalla um, ef ég sendi þeim ekki harðorð mótmælabréf og...

Re: Nostradamus

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég veit alveg hvað stendur í ljóðinu :) Þetta er hins vegar sú túlkun sem hann leggur í þetta, túlkandinn. Það getur auðvitað verið að hans túlkun sé röng - en þá verður allt hitt sem hann hefur túlkað ögn ótrúverðugara. Jafnvel þótt það sé aðeins átt við að andkristur komi fram, þá getur þetta samt naumast átt við Bush. Þótt við höfum kannske fyrst heyrt af þessum syni George Bush 1999, þá var hann búinn að vera ríkisstjóri í Texas í nokkur ár ('95-00). Hann var því ekki beint að spretta...

Re: SÁ SEM EKKI ANDMÆLIR MORÐI ER SAMSEKUR UM MORÐ

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það var aðeins eitt sem vakti athygli mína á þessari grein, og það var titillinn. Ansi krassandi fullyrðing, stór orð, og ég var að vonast til þess að fá einhvern rökstuðning fyrir þessu. En fyrst ein rangfærsla: „ nöfn eins og Líbanon, Írak, Kuweit, Egyptaland, eru búin til á skrifstofum í London.“ Egyptaland á ekki heima á þessum lista, svo mikið er víst. Orðið „Egypt“, og það sem hefur verið leitt af því (eins og t.d. Egyptaland), hefur verið til lengur en London. En mikið væri ég annars...

Re: Nostradamus

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, en hér er um orð skýranda að ræða, ekki satt? Það er skýrandinn sem segir “Andkristur fæðist 1999”. Hefði ekki verið miklu meira vit hjá honum að nota annað orðalag, sem væri líklegra til að valda minni rugling? Annars man ég eftir einni ágætri bók um spádóma N sem ég rakst á uppi í hillu hjá vinkonu minni. Magnað hvað spádómarnir hafa ræst. Um 1995-98 unnu arabaríkin t.d. fullnaðarsigur á Ísrael, Bush (sá eldri) vann aftur í forsetakosningunum ‘92 og þar fram eftir götunum. Ég fékk...

Re: stríð gegn hyðjuverkum?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Tja, hún er nú ekkert sérstaklega hörð, einræðisstjórnin í Tyrklandi. Nema kannske gegn Kúrdum. Þeir eru hvort eð er bara durgar. Baily's? Hvað á það að þýða? Passõa er drykkurinn í dag.

Re: Útigangsmenn á Íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Kjanakall (og aðrir): Ekki taka fram ef um kaldhæðni er að ræða. Það gerir þetta ekkert fyndið og alls ekki skemmtilegt.

Re: Nostradamus

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þar sem að „fæðing“ þýðir oftast barnsburður, þá er eðlilegast að gera ráð fyrir að túlkandinn myndi einfaldlega nota t.d. „kemur fram“ ef hann ætti ekki við barnsburð.

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Hver er maðurinn?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já já, kröfur geta aukist á einhverjum tíma. Það breytir engu um það sem ég er þegar búinn að segja. Já, þú ert búinn að glugga í Mósebækur. Gott hjá þér. En geturu nefnt einhver dæmi?

Re: Nostradamus

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Um hvaða tvo voldugu leiðtoga er verið að tala? Bush og Blair? Bretland og Bandaríkin hafa verið ágætis vinir í áratugi. Svo má benda á, að ef það er eitthvað að marka þá túlkun sem boðið er uppá á þessari síðu sem þú vísar á, þá getur enginn núverandi valdsmaður verið þessi And-kristur, þar sem hann á að fæðast árið 1999.(http://www.snerpa.is/net/nostri/nostr3.htm#and: And-Kristur fæðist í júlí árið 1999 Í sjöunda mánuði ársins nítján hundruð níutíu og níu stígur konungur óttans niður af...

Re: Hugsunin á bak við fjölgyðistrú í Wicca

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
pannox: Jú, ég veit ágætlega hvað það þýðir að það sé fótur fyrir einhverju. Það lítur hins vegar út fyrir að þú hafir ekki nennt að lesa svarið mitt. Þótt það sé t.d. fótur fyrir því að það sé einhvers konar framhald fyrir vitund okkar eftir dauðann, þá er ekki þar með sagt að lýsing nokkurs manns, trúar o.s.fr. á þessu framhaldi, hvernig því sé háttað og svo framvegis (t.d. kenningar kristinna um himnaríki og helvíti eða kenningar forn-Grikkja um Hadesarheim), sé rétt. Það þarf ekki að...

Re: Hver er maðurinn?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„En hinsvegar er ég nærri viss um að þetta var gert (kannski ekki beint til að leiðrétta drápin) en allavega í kjölfar Gyðingadrápana.“ Þótt Ísraelsríkis hafi verið stofnað eftir Helförina, þá er ekki þar með sagt að Helförin sé ástæða stofnunarinnar. Síonistar voru jú lengi vel búnir að vera að berjast fyrir stofnun ríkis handa Gyðingum, og voru búnir að flytja til þessa svæðis frá því um aldamótin 1900. Gyðingaofsóknir ýttu aðeins enn frekar undir að fleiri Gyðingar fluttust þangað, a.m.k....

Re: Hver er maðurinn?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
einaraxel: „Það er ekki Ísraela að semja við Palestínumenn, heldur eiga Palestínumenn frekar að semja við Ísraela.“ Hvers vegna? Hver er annars munurinn á því að Jón semji við Pál og að Páll semji við Jón? Er þetta spurning um hver skuli hafa frumkvæðið? Ef svo er, hvers vegna ættu Palestínumenn eitthvað frekar að eiga frumkvæðið? „Þetta land var tekið frá Palestínumönnum og gefið gyðingum á 6. áratugnum til að leiðrétta dráp nasista á gyðingum í seinni heimsstyrjöld.“ Rétt (eða svo gott...

Re: stríð gegn hyðjuverkum?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Og svo er oft verið að halda því fram að Bush sé að gera þetta í nafni kristinnar trúar, ég er alveg til í að trúa því,“ Ja-há. I've got a bridge to sell you… „En það sem meira er að það þarf einnig að koma Bush úr stóli forseta USA,“ Það er einmitt það sem þeir (tiltölulega) fáu Bandaríkjamenn sem kjósa geta gert á næsta ári (ef minnið svíkur ekki). „hann er að gera nákvæmlega það sama og pabbi hans gamli gerði fyrir rúmum áratug síðan“ Bíddu nú við. Þarf að losna við Bush úr Hvíta húsinu...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok