Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Sýrland næst ????

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Punkturinn er sá, að ef það á að dæma um hættulegustu menn sögunnar, þá er út í hött að fara að þylja upp einhverja sem eru ekki ennþá komnir fram, einfaldlega vegna þess að þeir eru ekki ennþá hluti sögunnar. Sharon er síðan kettlingur í flösku miðað við þessa stóru. Ekkert kjaftæði að Íranir fái að kjósa. Hins vegar eru klerkarnir með sorglega mikil völd. Hvers vegna í ósköpnum ætti ég að vita hvers vegna það er ekki lýðræði í Kúvæt? „Það má andskotinn vita“ er (a.m.k. í mínum ljóta munni)...

Re: Breytt staða í Mið-Austurlöndum

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Oh hvað ég hef gaman af fyndni annarra :D

Re: Um tölvubransann og jafnréttismál

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„af hverju falsa raunveruleikann?“ Því það er það eina sem auglýsingar geta gert. „Af hverju er ekki dæmigerður tölvunörd í þessum auglýsingum?“ Því það eru fáir með nógu stórar hreðjar til að viðurkenna að þeir séu nördar. Enginn (ókei, ekki allir) vill láta auglýsingar segja sér að hann sé bara helv- nörd með billjón bólur og fáránlega þykk gleraugu. Af tvennu kýs ég frekar að samsama mig föngulegri skvísu en einhverju nördi sem á ekki eftir að fá drátt, sam hve mikill peningur er í boði.

Re: Breytinga er þörf.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
hjhnbujmmmb Úbsss … sofnaði víst framan á lyklaborðið (takk, O'Rourke!). Hvað varstu að segja?

Re: Sýrland næst ????

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Þú svara þí hverjum þér finnast hættulegustu menn sögunnar“ Sagan er það sem er liðið. Þess vegna er ógurlega heimskulegt að fara að nefna eitthvað sem á eftir að gerast. „Lýðræðisstjórn er ekki í neinum af þessum löndum eins og við þekkjum það…“ Ekki nei? Hvernig lýðræðisstjórnir þekkir þú eiginlega? Í öllum þessum löndum (Íran, Ísrael, Tyrkland) fær meirihluti þjóðarinnar að kjósa sér þingmenn. Það er enginn í kjörklefanum á meðan menn kjósa. Þingið hefur nokkur völd (því miður takmörkuð...

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Reyndu nú að átta þig á einu: Þetta er/var kenning um það hvernig mannkyn og mannlegt samfélag myndi þróast. Það þýðir (augljóslega, ef maður getur lagt saman 2 og 2) að kenningin á aldrei að vera sett í framkvæmd … þetta er bara eitthvað sem mun gerast, hvort sem manni líkar betur eða verr. Það var það sem vitleysingarnir í Sovét reyndu að gera; þeir reyndu að flýta fyrir þróuninni sem þeir héldu að væri óumflýjanleg. Sjálfur tek ég allt annan pól í hæðina: Það er algerlega út í hött að...

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, fyrir utan hið augljósa: Þetta var ekki kommúnismi í verki. Ertu kannske svo skyni skroppinn að halda að menn hafi átt allt saman í Sovétríkjunum?

Re: reiknaði vitlaust

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvaða fetishismi er þetta í ykkur að þurfa alltaf að hafa rétt fyrir ykkur í öllum andskotans málum? Maður gæti haldið að typpin ykkar væru tveir millímetrar.<br><br>Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Breytinga er þörf.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvernig væri nú að læra almennilega íslensku, og sleppa tilgerðarlegum orðum eins og „vor“ þegar „okkar“ á miklu betur við?

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Þetta sjá nú allir blalblabla hroka þinum blablabla“ Hvort er nú nær sjálfri kenningunni, kenningin sjálf eða tilraun misviturra manna til að koma henni í framkvæmd?

Re: Þekkingariðnaður

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Alltaf jafn gaman að þessum smábarnalegu leikskólauppnefningum.

Re: Breytt staða í Mið-Austurlöndum

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já; þegar ég tala um Saddam sem frænda, þá er það bara vegna þess að mig langar til þess. Hins vegar, þá eru Íranir indó-evrópsk þjóð, og því í raun og veru frændur okkar. Ég tek þetta fram, því sum ykkar eruð of heimsk til að vita svona lagað.

Re: Breytt staða í Mið-Austurlöndum

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Kannske hafa Arabaleiðtogar löngum verið froðusnakkar. Breytir engu um það, að það var ekki almenn yfirlýsing Arabaleiðtoga að stríðsmenn íslam myndu slátra heimsvaldasinnuðum Jönkum. En hvað það hefði annars verið mikil snilld, að fara niðrí bæ þegar mótmælin stóðu sem hæst, með skilti með mynd af frænda, og letrað undir „Landsfaðirinn mun slátra ykkur!“ … kæmi sérlega vel út fyrir framan sendiráð útþensluseggjanna. Því fyrr sem Íranir losa sig við klerkana, því betra. Þó aðallega fyrir þá...

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er ekkert til sem heitir „mannlegt eðli“. Menn geta, með rökhugsun eina að vopni, komist yfir allt sem vitleysingar eru gjarnir á að uppnefna „mannlegt eðli“. Hvernig dettur fólki annars í hug að til sé mannlegt eðli, þegar til mannkyns teljast verur eins og SS-menn í búðunum, strætóbílstjórar, gamlar konur, systir mín og stripparar?

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Er þá ekki einfaldara í útfærslu að koma á nonexistentialisma?“ Nei. Hvernig verður líf manna betra við það?

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef þér þykir danska vera óskiljanleg, þá er það sennilega frekar vegna þess að þú ert óforbetranlega tregur heldur en nokkuð annað.

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Kommúnisminn spyr hvernig bakarinn sé á litinn, hvaða tungumál hann tali, af hvaða ættum hann sé, hvað hann sé menntaður eða í hvaða stétt hann sé“ Ef þú heldur þetta, þá ertu algerlega út úr heiminum. Reyndu nú að kynna þér málin áður en þú ferð að tjá þig um þau.

Re: Breytt staða í Mið-Austurlöndum

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Enn og aftur hafa Arabar valdið sjálfum sér vonbrigðum með falli Saddams Hussein. Hvað varð um þessa rosalega blóðugu lokaorustu þar sem hinir hugdjörfu hermenn Múhameðs stráfelldu innrásarmennina?“ Það var nú bara kjafturinn á Saddam. „Á svipaðan hátt er Íran nú einangrað og ekki er ólíklegt að þar dragi til tíðinda í stjórnmálum, enda er yngra fólk þar búið að fá nóg af afturhaldssamri klerkastjórn og andúð á Vesturlöndum er með minnsta móti.“ Og hefur lítið sem ekkert með „sigra“ BNA að gera.

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Einmitt; Marx sá þetta fyrir sér sem lokaástand mannsins. Þegar þessu er náð er öllu lokið. Hugmynd sem mér skilst að Francis Fukuyama endurómi í “The End of History…”

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Enda er þetta öðrum þræði kenning um það hvernig maðurinn sjálfur þróast. Það er ekkert í kenningunni sem segir að þetta muni gerast í dag eða eftir 200 ár … gæti þess vegna verið eftir 500 ár. En nú er ég kannske farinn að bæta hlutum við kenningu Marxs sem á ekki heima þar.

Re: Sýrland næst ????

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Ef ég nefni BNA sem heimild, er hún þá ekki gild sem slík?“ Eðlilega taka menn ekki nema mátulegt mark á „óvininum“. „Er það trúverðugra ef einhver anarkisti, kommúnisti, kapitalisti hafi sagt það?“ Ef maður er sjálfur t.d. kommúnisti, og annar kommúnisti segir eitthvað, þá er ekkert sjálfsagðara en að taka frekar mark á því heldur en ef kapítalisti segir það. Sérstaklega ef það er slæmt fyrir manns eigin málstað. Kappinn á auðvitað eftir að beita öllum brögðum (þ.e. ef það er einhver dugur...

Re: Sýrland næst ????

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Afhverju eru þá ekki einhver ríki þar lýðræðisrýki?“ Ísrael, Tyrkland, Íran. Hananú; þrjú lýðræðisríki á svæðinu nefnd á einu bretti. Vissulega má gera athugasemdir við tyrkneskt lýðræði, og Íranir hafa nú þessa blessuðu klerka sem vilja allt gera til að missa ekki völdin. En af þeim takmörkuðu fréttum sem ég hef fengið frá Íran og Tyrklandi, þá sýnist mér að þau séu að þokast í rétta átt. „að mati margra er Sharon einn hættulegasti maður sögunnar“ Ja, það eru þá annað hvort þeir sem eru...

Re: Um tölvubransann og jafnréttismál

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
GunniS minn, það er enginn að halda því fram að þekking skipti engu. Og ég ætla rétt svo að vona að enginn haldi þeirri vitleysu fram að reynsla hafi ekkert með þekkingu að gera. Hins vegar er það leiðinda ávani hjá þér að stimpla alla sem eru ósammála þér sem t.d. pabbastráka sem hafa ekki þurft að hafa fyrir neinu, sérstaklega þegar það er bláókunnugt fólk.

Re: Kommúnismi

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Engin stjórn getur ráðið hvað fólk langar innra með sér.“ Það er satt. Hins vegar þarf enga stjórn til að breyta þessu. Þetta er þróun sem, samkvæmt Marx, mun einfaldlega eiga sér stað. Það er engin stjórn sem er að ákveða þetta. Þetta er bara eins og við þróuðumst frá því að nota nautgripi og tókum að nota gull og silfur. Eða þá þegar menn almennt hættu að ræna hvern annan, og komust að því að það er miklu meira vit í því að versla. Það var engin stjórn, ekkert ríki, sem réði því, þetta...

Re: Afrek og Loforð Ingibjargar

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nja, kvóti er eign, skilst mér. Þá getur kvóti verið arfgengur, rétt eins og aðrar eignir. „Ég vann mér ekki inn fyrir honum allavega.“ Kannske ekki. En segjum að frá náttúrunnar hendi sértu sérstaklega kraftalegur og líkamlega sterkur. Þú ferð síðan að vinna einhvers staðar þar sem að líkamlegur styrkur skiptir miklu máli. Nokkrum árum síðar þarf að draga saman, og frekar en að reka þig, þennan stóra og sterka, er sá litli og veimiltítulegi rekinn. Hann er bara ekki nógu sterkur til að hans...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok