Sýrland næst ???? Núna er stríðinu í Írak að ljúka og kominn tími fyrir “Banddamenn” að finna sér nýjan óvin til að bölva í sand og ösku, og til að leika sér að.

Sýrland virðist vera næsta skotmark þessara skotglöðu manna sem geta leift sér hvað sem er á meðan heimsbyggðinni er sagt að halda kjafti.
Þetta byrjar allt mjög fínt með ásökunum um Sýrlendingar skíli liðsmönnum Saddams Husseins og að þeir séu með efnavopn undir höndum. Hljómar nokkuð eins og upphaf Íraksdeilunnar og þannig snýst þetta uppá sig þar til að Bush og Blair sjá aig ekki annað fært en að leggja til atlögu.

Sýrland er í öryggisráði UN og það kemur hvergi fram að þeir eigi efnavopn, en samt ætla “Bandamenn” að vera með eitthvern derring þarna, og segjast vilja útríma öllum efnavopnum í M-Austurlöndum.
Þíðir það að þeir ætli að ráðast á Ísrael, sem vitað er um að að eigi: sýkla- og efnavopn auk þess sem þeir eiga yfir 300 kjarnorkusprengjur og hafa aldrei leift vopnaeftirlitmönnum að skoða vopnabúr sín.
Á bara að líta fram hjá þeirri staðreind, að eitt herskáasta land M-Austurlanda eigi fullt af því drasli sem BNA menn vilja losna við, bara af því að þeir eru Bush-sleikjur ? (Það er eitthvað að þessu liði…..)

Ef Dabbi eða Óli færi nú til BNA og eiddi nótt með Bush í
Hvítahúsinu og sýndi honum kynlífsmenningu Íslands ættum við þá möguleika á að fá allskonar hernaðar dóterí sem gerði það að verkum að heimurinn yrði að hlusta á okkur ?

MesserSchmitt
“Öreigar allra landa sameinist !!!!!!!”