Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Jafnréttisbarátta fyrir karlmenn...

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„þá voru 3 hommar að vinna þar, og aldei hef ég unnið með eins mörgum hommum á einum vinnustað.“ Heilir þrír?! Jeminn eini, Guði sé lof að þú snerist ekki! „búningaðstaða fyrir konur samanstóð af um 40 skápum í rúmgóðri og glæsilegri aðstöðu.“ Hvað varstu eiginlega að gera í kvennaklefanum? „og þú getur dregið ýmsar ályktanir af þessu.“ Já, en þær tengjast allar því hvað í ósköpunum þú varst að gera í kvennaklefanum.

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nei, hún er ekki full svart-hvít, þar sem það er ekki til neitt miðlungsfrítt fólk. Annað hvort ertu fallegur eða þú ert það ekki, annað hvort svartur eða hvítur. Það er enginn millivegur hér, hvorki grátt né gult.

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég get ekki sagt þér hvaða týpa þú ert vegna þess að ég þekki þig ekki; ég er ekki að sóa tíma í að greina allar undirtýpurnar; og til að geta séð það þarf ég að geta fylgst með þér um all-langt skeið, séð inní huga þinn og svo framvegis.

Re: Einmana & Tortryggin

í Rómantík fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Seigðu þér bara nógu oft að þú sért æði og þá verðuru það á endanum ;)“ Hvað ef maður er það ekki? Þá verður maður bara bjálfi með allt of stórt álit á sjálfum sér. Maður verður ekki æði bara því maður trúir því, frekar en maður verður gáfaður bara af því að maður segi það við sig á hverjum morgni. Ef maður er ekki æði, en telur sér trú um það, þá verður maður bara hlægilegur auli sem þykist vera meira en hann er.

Re: Trúir þú?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nei, það gera þau ekki. Þau leitast við að veita leiðsögn þar sem vísindin hafa ekkert um málið að segja.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nei, trúarbrögð eru ekki nauðsynleg til réttrar breytni, það hefur orðið augljósara með hverju árinu sem líður, a.m.k. síðan Kant setti sitt kerfi fram, og raunar mun fyrr (Aristóteles er t.d. ekkert að þvæla guðunum inn í sína bók, ef ég man rétt). En rétt breytni kemur vísindunum ekkert við - það er allt og sumt sem ég var að benda á. Ef maður vill á annað borð hafa hugmyndir um hvernig skuli hegða sér, og hegða sér vel, þá held ég að Biblían sé mun hentugri til þess heldur en bækur um...

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þótt maður falli ekki inn í þetta M vs C, þá er maður langt í frá týpulaus.

Re: Botnleðja og samfylkingin

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er ekki Botnleðjulag; hæfileikalausu Hafnfirðingarnir eru bara að covera eldra lag. Man því miður ekki eftir hvern, en þetta er ekki Botnleðjulag, frekar en „Christmas Card from a Hooker in Minneapolis“. Um auglýsingar almennt: Bannsett rusl hjá öllum. Auglýsingar, almennt og yfirleitt, eru bannsett rusl, sóun á rafmagni og vinnutíma. Peningnum sem er sólundað í þetta væri betur varið í að friða steinbít.<br><br>Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Fréttablaðið er hlutlausasta blað á landinu.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Xavier er sjálfur admin hérna; ætli þeir megi ekki eitt og annað sem við - skítugir almúgamenn, sennilega með bandorm og örugglega með hor úr báðum nösum - megum ekki?

Re: Tékkar! Óútfylltir en Undirskrifaðir!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Snilld er þessi síða. Mikið væri ég til í að Borgarbókarsafnið væri allt aðgengilegt á netinu, jafnvel þótt það væri bara pdf-skrár eða eitthvað (til of mikil ætlast að fólk sitji og stimpli allt inn, en það ætti alveg að vera hægt að skanna/ljósrita bækur og skella inn þannig, ekki satt?). Jæja, alltaf gaman að fara off-topic…

Re: Jafnréttisbarátta fyrir karlmenn...

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég tek alveg undir það að fólk eigi að hætta þessu væli, en GunniS var ekki að halda því fram sjálfur að honum þætti sem karlmenn ættu ekki að hafa tilfinningar, heldur frekar að halda því fram að þetta væri algengt viðhorf í dag. Og ég held raunar að það sé alveg rétt hjá honum - ef karlmaður er of ákafur í tilfinningatjáningu, þá er hann í besta falli kallaður „kéddling“ af ófáum „karlmennum“. En sem betur fer, með auknum vinsældum doom-metals, þá er þetta viðhorf óðum að hverfa.

Re: Tékkar! Óútfylltir en Undirskrifaðir!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Snilldarbók, en þú veist að hún hefur verið þýdd, er það ekki?

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvers vegna er annars alltaf verið að einblína á neikvæða þætti Biblíunnar? Jújú, hún hefur getið af sér krossferðir og þjóðarmorð í stórum stíl, alls konar ofsóknir og vesen. En hún hefur líka leitt til svo margs góðs; Íslendingasögurnar eru t.d. óhugsandi án kristninnar. Þrátt fyrir allt hið slæma sem fylgdi landnámi Evrópumanna í Ameríkunum, þá hefur margt gott komið af því líka - og þetta landnám er nær óhugsandi ef ekki væri vegna Biblíunnar. Og ýkjur eru ekkert skemmtilegar nema þegar...

Re: Stefna flokkanna í málefnum ÁTVR.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Frekar að segja fólki að þegja heldur en að hætta að segja „neikvæða“ hluti.

Re: vinnum saman.

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er nefnilega alrangt hjá þér. Ef þú vilt hámarka líkur á því að D-listi fari frá, þá ættiru að hvetja fólk til að kjósa VG og Frjálslynda. Ekkert útilokar að essin tvö myndi næstu ríkisstjórn.<br><br>Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er ekkert að reyna að þræta fyrir að konur séu konum verstar, heldur aðeins að benda á að sömuleiðis sé enginn annars bróðir í leik.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Engin þversögn í þessu. Að vera almáttugur þýðir ekki að maður geti bókstaflega allt, heldur aðeins að maður geti það sem á annað borð er hægt að geta. Þar sem að það er mótsögn í því að geta ekki eitthvað sem maður getur, þá liggur það fyrir utan svið almættisins og skiptir engu máli í umræðu um hvað það er að vera almáttugur.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvernig þá? Aðalatriðið í kristninni er það svið sem vísindin hafa ekkert um að segja: Hvernig menn eigi að haga sér, hvaða breytni sé rétt. Það er svið sem kemur raunvísindunum einfaldlega ekki við - hvað kemur það eðlisfræði við hvort karlar eigi að halda fram hjá konunum sínum eða ekki?

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Í theirri samkeppni tharf enginn ad saerast.“ O jú. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það sé frekar sárt að horfa á eftir vinum sínum fara heim með hverri stelpunni á eftir annarri, en fá sjálfur aldrei neitt. Ef maður hefur engar skemmtilegar bólsögur að segja frá, þá er maður í lægri flokk en hinir, sem hafa fimmtíu og eina sögu með sjötíu og þrem stelpum. Þótt það séu öðruvísi sár og menn eru kannske duglegir við að fela þau, þá eru þau samt til staðar.

Re: Hvað viljum við?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nafnleysið er fyrir slysni. Stundum detta menn fyrirvaralaust út af huga. Þetta er ekki nógu gróft til að stjórnendur geri eitthvað í málunum. Hvernig á hann að halda sig 500 metra frá huga? Hvar er hann? Er hann í stofunni hjá mér? Tölvunni þinni? Á einhverri tölvu hjá Símanum?

Re: Hvað viljum við?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Ef maður stendur með annan fótinn í 5 gráðu heitu vatni og hinn fótinn í 75 gráðu heitu vatni þá er meðaltalið 40 gráður, bara notalegt.“ Gallinn er bara sá að þetta er að afar litlu leyti sambærilegt við það meðaltal sem er nota þegar t.d. er verið að tala um meðallaun hér á landi, meðal-kaupmátt og svo framvegis. Öfgarnar hér, eftir því sem ég fæ best séð, eru ekki svona miklar. Veist þú hvar er hægt að nálgast nákvæmari tölur; það er að segja hvar við gætum t.d. séð hve margir eru að fá...

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég vona að þú sért ekki að spyrja mig. Ég veit ekki til þess að ég þekki þig og get ómögulega vitað hvaða týpa þú ert. Ætli þú vitir það ekki best sjálfur?

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„stelpum sem tekst ad stinga undan ödrum líta oft á thad sem sigur og vidurkenningu á thví ad vera saetari en adrar“ Þannig að þetta er ss fyrst og fremst um það að vera sætari en aðrar? Þá er þetta í grunninn ekkert svo frábrugðið því sem við gerum, nema hér er keppnin frekar um það að fá sem flestar. Það virðist heldur ekki skipta máli hvort að stúlkan sé í sambandi eða ekki - fyrir þeim sem keppa, þá er allt saman „fair game“. „Ef thú ert stelpa faerdu yfirleitt ad heyra athugasemdir á...

Re: Hverjir stunda hvaða spil?

í Spunaspil fyrir 23 árum, 1 mánuði
Uppáhalds reglubókin mín, fyrr og síðar, held ég að hljóti bara að vera Players bókin úr rauða D&D kassanum. Ah, minningarnar maður - fyrsta reynslan mín ever af roleplayi var þegar pabbi tók mig og systur mína, og var DM fyrir inngangsævintýrið í þeirri bók. Kannske finnst mér Rules Cyclopedia vera svona skemmtileg því ég fékk hana í jólagjöf þegar ég var svona 11-12 ára og fæ nett nostalgíukikk þegar ég opna hana. Cyberpunk-bókin hefur mér líka löngum þótt skemmtileg, fyrir utan...

Re: Hverjir stunda hvaða spil?

í Spunaspil fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er ekkert “en” í Rules Cyclopedia. :) Þetta er einmitt bókin sem ég var að tala um áðan. Á meðan AD&D var með a.m.k. þrjár bækur, D&D 3 a.m.k. með jafn mikið, þá er gamlagóða allt í einni bók. Dry í lesningu? Ég hef lesið hana svo oft að kjölurinn er dottinn af, hún datt í gólfið og fremra spjaldið datt af, núna hangir hún saman á límbandi - og samt glugga ég í hana öðru hvoru. Bara til gamans.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok