Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Hverjir stunda hvaða spil?

í Spunaspil fyrir 23 árum, 1 mánuði
A, þú ert að tala um D&D 3ed. Ókei, ég hélt að þú værir að tala um D&D (ekkert “ed” neitt, hér).

Re: Fullkomna kona, Feminista

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sæll, Nei, ég er einmitt að taka tillit til aldurs mannkyns, eins og ég útskýrði fyrir ofan. Þegar menn voru veiðimenn og safnarar, þá má kannske vera að karlarnir hafi séð um veiðarnar. En konurnar sátu ekki bara heima í hellinum að sauma saman skinn. Þær voru líka úti, að safna berjum, ávöxtum, rótum og öðru ætilegu. Það er einmitt frekar nýtilkomið að konur séu heima; það hefur ekki gerst fyrr en á síðustu tvö-þrjúþúsund árum eða svo að það fór að verða virkilega algengt í Evrópu að svo væri.

Re: Hverjir stunda hvaða spil?

í Spunaspil fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Rule players: D&D,(Fullt af reglum þarna sem ættu að vera optional frá A til Ö)“ Ha? Allar reglurnar komast fyrir í bók sem rétt slefar upp í 300 bls., og þá með charactersheets, atlas fyrir heiminn, upplýsingar um víddirnar, hvernig eigi að verða immortal, reglum fyrir mass combat, dominions, og lengsti kaflinn er kaflinn um skrýmsli. Þegar allt kemur til alls, þá er afar lítið af reglum í D&D, og ófáar þeirra eru annað hvort optional (skills og alls konar bardagareglur) eða eitthvað sem...

Re: Það er nú bara það

í Spunaspil fyrir 23 árum, 1 mánuði
Að vera drúíði? Nú hef ég verið að spá í einu. Getafix/Sjóðríkur er druid (í Asterix/Ástríksbókunum). Hvers vegna er það ekki class skill hjá drúíðum að búa til potion of super-giant strength? Ef þetta spil á að hafa svo lítið sem litlu tá í raunveruleikanum, þá ætti það að vera algert möst. Ég mæli a.m.k. með Ástrík ef menn vilja fá hugmyndir um hvernig eigi að leika drúíða.

Re: Upp með Samfylkinguna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er einmitt þetta sem er svo skemmtilegt við Múrinn: Þau eru ekki föst í því að berja á Sjálfstæðisflokknum; aðrir flokkar fá líka sínar sneiðar. Svipað og með Andríki, þar fá Sjálfstæðismenn líka að kenna á því (þó svo að eðlilega hafi lítið farið fyrir því upp á síðkastið). Ég held sjálfur að það sé ekkert útilokað að önnur „Viðeyjarstjórn“ taki við. Hef ekki meiri trú á Ingibjörgu en svo að hún myndi glöð verða utanríkisráðherra. Enda kaus ég ekki Samfylkinguna.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Þal er guð og spuninn í kringum hann eða hana eða það, óröklegur.“ Guð sjálfur þarf ekkert að vera sérlega óröklegur, þótt að tilraunir manna til að lýsa honum nákvæmlega (og þessar tilraunir eru jafnvel kallaðar “Guðs orð”) séu stútfullar af innri mótsögnum og öðru óskemmtilegu. Ég held að hugmyndin hjá kristilegum heimspekingum eins og t.d. Kirkegaard (sem lagði einmitt áherslu á það að trúin sé eins rakalaus og hugsast getur - hann með sitt „trúarstökk“) sé eitthvað á þá leið að...

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Thú ert thó allavegana sammála mér thví ad their sem eru á móti fegurdarsamkeppnum eru ekkert alltaf öfundsjúkir út í thá sem eru fallegir.“ Nei, þeir eru það ekki lengur. Ég er t.d. alfarið á móti fegurðarsamkeppnum, og verð þó seint talinn ljótur (a.m.k. af þeim sem ég sé einhverja ástæðu til að taka mark á). Þetta er eitt það al-heimskulegasta athæfi sem ég veit um. „Önnur daemi eru thessi árátta hjá mörgum í ad stinga undan ödrum og stela kaerustum/eiginmönnum af ödrum konum.“ Væri ekki...

Re: Fátækt á Íslandi?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nei, það sem ég er að meina er að menn ættu helst ekkert að spekúlera í andstæðingnum yfirleitt. Langmest af kraftinum ætti að fara í eigin málefni. Síðan er hægt, í hjáverkum (svipað og lestur minn á Biblíunni) hægt að berja á andstæðingum með því að benda á kjaftæðið og bullið sem vellur uppúr þeim eins og þeir séu að fá þúsundkall fyrir orð, og síðan fyrri lygar og þvætting. Hins vegar, þá geri ég mér líka grein fyrir því að þvættingurinn, bullið og lygarnar virðist stundum vera það sem...

Re: Upp með Samfylkinguna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, það gæti gerst. Ég gæti líka, næst þegar ég fer á bar, pantað hálfan líter af vodka í glasi og drukkið það kvöld. Það verður að játast, að þetta er bara ekkert voðalega líklegt, er það nokkuð? Hins vegar er það satt; ef maður vill endilega losna við D úr stjórn, þá ætti maður alls ekki að kjósa S. Aldrei að vita, þau gætu þess vegna farið í stjórn saman. Mig minnir a.m.k. að S sé eini stjórnarandstöðuflokkurinn sem var ekki til í að taka undir með uppástungum hinna andstöðuflokkanna, að...

Re: Fátækt á Íslandi?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvort sem hún er það eða ekki, þá er þetta hálfgert dirty-trick í kosningabaráttu. Uppnefningar eru það alla jafna, enda er árás á andstæðinginn, hversu réttlát sem hún annars er, ekkert nema aðferð til að forðast málefnin. Það væri mun virðingarverðara ef stuðningsmenn D myndu ekki fara niður á þetta plan jafn-fúslega og þeir virðast gera, margir hverjir. Algerlega sleppa því að minnast á hana, sleppa því að minnast yfirleitt á andstæðinga, a.m.k. að fyrra bragði. Ef maður er spurður um...

Re: Upp með Samfylkinguna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nei, nefnilega ekki. Ef þessir flokkar mynda stjórn saman, þá mun Samfylking líklegast leiða þá samsteypu, og fær þá m.a. að velja forsætisráðherra. Það er enginn sem segir að forsætisráðherra verði að vera þingmaður. Sumir halda því jafnvel fram að það væri lýðræðislegra ef hann væri það ekki. Hvort sem hún ISG kemst inn eða ekki, þá verður hún (líklegast) forsætisráðherra, hvort sem hún kemst inn á þing eða ekki.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er alveg hægt að sjá fyrir sér einhverjar aðstæður og einhverja athöfn nokkru áður en hún gerist, og samt álitið gerandan vera ábyrgan á gjörðum sínum og dæmt hann í samræmi við það. Eitt nýlegt dæmi er stríðið í Írak. Mánuðum áður en að þeir réðust á Írak var alveg ljóst að það yrði mjög líklega ráðist á Írak. Maður þarf samt ekkert að fara að halda því fram að Bush eða Saddam hafi ekki verið ábyrgir gerða sinna, og það ætti því ekki að dæma þá. Ef þú þekkir vini þína vel, þá geturu...

Re: Upp með Samfylkinguna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þið vitið að ef þið kjósið VG, þá eruði bara að auka líkur á því að Ingibjörg verði forsætisráðherra. Ef þið viljið, af einni eða annarri ástæðu, ekki sá Ingibjörgu í því embætti, þá ættuði alls ekki að kjósa VG, og eiginlega ekki heldur Frjálslynda. D eða B er það eina sem væri vit í að merkja við - ef þið viljið ekki Ingibjörgu sem forsætisráðherra.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hver segir að það hafi upphaflega verið ekkert? „Í upphafi skapaði Guð himinn og jörð.“ Þarna stendur ekkert um það hvort hráefnið hafi verið fyrir hendi eða ekki.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ertu að reyna að svara „til hvers helduru að helvíti sé“? „ef maður er almáttugur þá á maður að geta séð að þegar adam geirir þetta þá mun steinn detta þarna og þetta mun færast og blablablabla.. svo er morð framið þarna“ Ekki ef það eru raunverulegir óvissuþættir í heiminum, eins og mér skilst að skammtafræðingar halda fram. Þá er þetta eitthvað sem er einfaldlega ekki hægt að gera, ekki frekar en að láta pí vera fimm (án þess að breyta öllu talnakerfinu) eða þríhyrning hafa þrjátíuogsjö...

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Ef guð er almáttugur þá sá hann hvernig þetta mundi allt fara“ Að vera almáttugur felur ekki í sér að geta gert það sem er einfaldlega ekki hægt að geta, alveg eins og alvitur felur ekki í sér að vita það sem er ekki hægt að vita. „bara að honum er sama um hvort morð er framið eður ei“ Nokkuð ljóslega ekki sama; til hvers helduru að helvíti sé?

Re: X-U

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„stærstu náttúruníðingu íslandssögunnar“ Svona svona, engar ýkjur, þær gera engum neitt gott. Stærsta náttúruníðing Íslandssögunnar er eyðing skóganna sem voru hér við landnám.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er ekki hefnandinn sem hefur frjálsan vilja, heldur er hefndin réttlætt með því að sá sem verður fyrir hefndinni (eða refsingunni) hafi gert það sem hann gerði af frjálsum vilja. Eða ég held a.m.k. að hann hafi verið að meina þetta.

Re: Þrælar og ljótt fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„En bíddu er thad bara ljótt fólk sem mótmaelir fegurdarsamkeppnum? Thar ertu á villigötum!!! Margar af theim stelpum sem mótmaela fegurdarsamkeppnum hafa verid bednar um ad taka thátt í slíkum.“ Og það eru ekki bara aumingjar sem boða „þrælasiðferðið“ nú á dögum, hraustir og sterkir menn gera það líka. Eitt upphrópunarmerki er líka alveg nóg. „Thad er ekki ljótt fólk sem er ad breyta fegurdarstödlunum, thad eru tískustraumar hverju sinni.“ Og hverjir eru það sem breyta tískustraumunum? Þeir...

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hmm. Ef það er ekki hægt að sjá framtíðina, t.d. vegna einhverra algerra óvissuþátta, þá er ekkert eðlilegt við það að hann myndi vita hvað gerist í framtíðinni. Óvissuna er auðvelt að útskýra - hann kýs að stýra ekki öllu. Hann getur það (enda almáttugur), en einfaldlega kýs að gera það ekki, rétt eins og hann kýs að vera ekki stöðugt að stjórna fólki.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sá sem er alvitur veit aðeins það sem er á annað borð hægt að vita. Ég held að það sé engin mótsögn í því að segja Guð vera alvitran og að hann viti ekki uppá hár hvað muni gerast í framtíðinni. Það er a.m.k. engin mótsögn í því að segja Guð vera alvitran og segja að hann viti ekki hvernig kvaðratrótin af sjötíu bragðist.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er allt í lagi. Hugi setur bil á random stað í flesta tengla sem eru settir inn á hann. Það er ekkert sem þú getur gert til að lagfæra þetta.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, hann hefur getuna til að gera allt. Hann gæti t.d. stöðvað morð - en þá væri hann eki að virða sjálfræði manna.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Annars er sniðugt að grein sem leiðir til umræðna um frelsi viljans sé einmitt greininn sem ýtir grein um frjálsan vilja út af forsíðu þessa áhugamáls.

Re: Dómsdagur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er eitt að geta stjórnað öllu, og annað að stjórna öllu í raun og veru. Það er ekkert sem segir að Guð sé að ákveða hreyfingu hvers einasta atóms, hvað þá mótun hvers einasta persónuleika. Það er alveg jafn-hugsanlegt að hann láti þetta gerast sjálfkrafa, án sinna afskipta.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok