Fyrir mér liggur munurinn, eins og þið hafið komið inná, í því hvað spilarinn gerir úr “charcterunum”. Hve mikla áherslu hann leggur á að búa til persónu, og fylgja þeim áherslum. Ef spilarar gera þetta, þá er það mín skoðun að þeir eru ekki Munchkinar þrátt fyrir að vera mjög öflugir, því að þeir hafa sett sér mörk sem þeir fylgja. Það er fátt meira pirrandi en Munchkinar eða Monty Haul-gaurar, sem leggja enga áherslu á að þeir hafa í höndunum meira heldur en stafla af tölum sem á að nýta...