Orville, dómari leiksins, kemur fram á brún bardagavallarins. Völlurinn er umkringdur 20 feta háum veggjum úr múrsteinum og hefur auðsjáanlega verið mikið notaður sem sést á gömlum, uppþornuðum blóðslettum hér og þar á bæði berri jörðinni og veggjunum. Orville veifar á þögn í áhorfandaskaranum, og tónar: “Í dag mætast hér kappar sem eru á byrjunarreit ferils síns. Þeir eru óspjallaðir í fræðum Skylmingaþrælanna, en örugglega engir aukvisar þegar kemur að blóðúthellingum! Hleypið þeim inn!”...