Nú var ég að enda við að horfa á leik Man U og Arsenal og í lok leiksins fá Man U vítaspyrnu sem Forlan fiskaði. Nistelrooy tekur vítið og klikkar á því, og leikurinn heldur áfram í þær 1-2 mínútur sem eftir voru. Um leið og leikurinn er flautaður af koma síðan 3-4 leikmenn Arsenal hlaupandi að Nistelrooy, öskra í andlitið á honum og hrinda honum? Hvað er að þessum mönnum?

Hvað gerði Nistelrooy? Hann klikkaði á víti sem hann fiskaði ekki einu sinni. Á hann þá skilið að vera öskrað á og hrint af þessum vanvitum í Arsenal?

Zedlic <br><br><b>www.lesblind.is ? Ætti það ekki frekar að vera www.lesblynd.is eða www.lesblnid.is svo að lesblindir komist á síðuna?</