Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

teknique
teknique Notandi frá fornöld 41 ára karlmaður
86 stig

Re: Body kit?

í Bílar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
finnur allan andskotann á ebay

– foo</a

Re: henda bíl

í Bílar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
ríkisstjórnin

– foo</a

Re: Af hverju vw golf/polo??

í Bílar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Engin gjöld af bílum sem eru ekki á númerum, nema náttúrulega að þú þarft að geyma þá einhverstaðar og ekki geturðu geymt þá á almennum bílastæðum nema þau séu inni á þinni lóð, annars verður bíllinn bara dreginn í burtu. Ég veit ekki hvernig terrano liggur en mér hefur ekki enn tekist að velta súkkunni minni á miklum hraða við allar aðstæður.

– foo</a

Re: kassi undir rafgeymi

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Optima þurrgeymar eru sennilega öflugustu geymarnir sem þú færð, erum með einn svona 7 ára gamlan, hann stendur óhreyfður mánuðum saman, er þess á milli látinn keyra stórt rafmagnsspil og notaður til að rafsjóða. Pottþéttir geymar alveg en verðið er eftir því býst ég við.

– foo</a

Re: Tuning (drivetrain)

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ekkert eitt er algott, ef þú tjúnar fyrir hásnúninginn þá taparu torki á lágsnúningi (og öfugt). Stærri og breiðari dekk gefa þér betra grip en það er erfiðara að snúa þeim, minni og mjórri dekk gefa þér ekkert grip en þú snýrð þeim leikandi. Létt kasthjól er fljótara upp á snúning en vélin gengur ekki eins jafnt og verður sérstaklega leiðinleg á lægri snúningum. Yfirleitt best að reyna að fara hinn gullna meðalveg á götubíl. Á race-only bíl er hægt að leyfa sér ýmislegt sem maður myndi...

Re: ohh men.

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hmh, er ekki mismunadrif á milli fram og aftur í þessum justyum?

– foo</a

Re: Þarf meir KRAFT hjálp!

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Spurningin er bara hvað þú vilt eyða miklum pening…

– foo</a

Re: www.BD.is

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sleeper is the way to go ;) Ég keyri afturhjóladrifsbíl, og myndi aldrei kaupa mér framhjóladrifinn bíl, og þá allra síst Accident. Og ég er bara að segja að ég myndi ekki kaupa neitt af þessu dóti (spoilerar, neonljós, etc), slétt sama hvað aðrir eyða peningunum sínum í. Það má líkja bílum við kökur, ef þú breytir uppskriftinni getur hún orðið betri (setur kannski fleiri egg), en ef það eru komin of mörg egg þá er kakan ekkert góð lengur. Það þarf að hugsa aðeins hvað maður er að gera, ekki...

Re: Eclipse.....

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já einmitt, afturdrif og allt tilheyrandi, drifskaft, millikassi og líklega sterkari gírkassi. Stærri bensíntankur kannski?

– foo</a

Re: www.BD.is

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sumir spoilerar sem ég hef séð myndu örugglega brotna af, dælda boddýið í kringum festingarnar og/eða væla óbærilega þegar kæmi á þann hraða sem að fer að taka eitthvað í þetta. Sá hvíta honda civic með svona stórum álspoiler með veikum festingum, spoilerinn gekk til í allar áttir þegar hann skreið hægt og rólega upp höfðabakkann…. í botni. Svo eru það þessir púst stútar, alveg glatað þegar það eru kútar með 4-5“ út en bara 1,5” inn, þetta lítur út eins og skólprör. Ég bara spyr: eru þessir...

Re: Þétting/hljóðeinangrun

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég sá mynd af því þar sem að bíll var klæddur að innan allur undir innréttingunni með Glavaflex mottum. Veit ekki hversu vel það virkar til þess að draga úr veghljóði, líklegast virkar það. Glavaflex virkar allavega djöfull vel til að einangra rör… Hæð bíls frá jörðu, og fjöðrunarkerfi hefur mikil áhrif á veghljóð, þannig að ef þú vilt bíl sem þú vilt geta keyrt í langkeyrslu, alls ekki lækka hann, setja stífari dempara og low profile dekk, ef þú vilt heyra eigin hugsanir þegar þú ert að...

Re: Breyttar Druslur - www.BD.is

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
http://www.straffe.nu/urban2.html

– foo</a

Re: Breyttar Druslur - www.BD.is

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þú misskildir mig mikið, IIS er Microsoft Internet Information Services og er lélegur web server pakki fyrir lélegt stýrikerfi.

– foo</a

Re: Eclipse.....

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Og já, þessir bílar eru 1250kg að eiginþyngd og eiga að vera 140 hestöfl.

– foo</a

Re: Breyttar Druslur - www.BD.is

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Góður! Slappt samt að hýsa þetta á IIS

– foo</a

Re: Opin púst

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hvarfakútar eru af hinu illa. Þessi hvarfakútaskylda er eitthvað sem ein af þessum nefndum kom með. Þessar nefndir fá ekki borgað með glöðu nema sýna einhver afköst, og afköst = setja lög. Fleiri hestöfl kalla á stærra púst, en opið pústkerfi á annars óbreytta vél gefur engan verulegan kraft, aðallega hávaða. Throttle response er hinsvegar stóraukið bara við það að fjarlægja hvarfakútinn til dæmis. Mér þætti gaman ef einhver sem er ennþá með stock pústkerfi myndi mixa inná það úttak og...

Re: banna

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef það er eitthvað sem þarf að endurskoða er það dráttur á eftirvögnum. Það er engin glóra í því að 1100kg Hyundai Accident megi draga 900kg fellihýsi. Þetta sá ég í sumar og Accidentinn var bara á rassgatinu. Myndi ekki vilja vera hann ef hann þyrfti að nauðhemla, því að fellihýsi eru fæst með bremsubúnað, og bremsurnar á accidentinum eru hannaðar fyrir skriðþunga 1100kg bíls og gera ekki ráð fyrir að það sé annar svoleiðis þungi sem ýtir bílnum áfram. Það þyrfti að setja reglur um að bíll...

Re: Eclipse.....

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Kunningi minn á svona framhjóladrifinn non-turbo eclipse og það er nákvæmlega engin vinnsla í þessu. Galantar, Lancerar og Honda Civic 1.6 skilja þetta sko eftir í spyrnu, og það verða sko seint taldir kraftmiklir bílar.

– foo</a

Re: Kambarnir

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Jeppakallar gefa nú ekkert sjaldnar stefnuljós en aðrir í umferðinni. Það er bara frekar sjaldgæft almennt að menn noti stefnuljós hér á landi :( Maður hefur svoooo oft lent í því að vera næstum lentur aftaná eða fá næstum bíl utaní hliðina á sér sem gefur ekki stefnuljós. Hinsvegar er algengara með stóru bílana að þeir séu nálægt því að þeyta manni útaf ef þeir ætla að skipta um akreinar án stefnuljósa. Þar eru meðalstórir og stórir sendibílar verstir því að það sést ekkert aftur fyrir þá...

Re: Hvarfakútar

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Rör alla leið og engir kútar átti þetta að vera.

– foo</a

Re: Hvarfakútar

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Èg er að spá í að láta reyna á það hvort ég komist í gegnum skoðun með púst sem er bara rör alla leið og kútar, verður gaman að sjá hvernig það kemur út, ég á nefnilega engan hljóðkút sem hentar. Þess má einmitt geta að frændi minn var í áratug með bara rör alla leið á jeppanum sínum (líka túrbó) og það var alveg þolandi og alltaf komst hann í gegnum skoðun.

Re: Hvarfakútar

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég hef aldrei séð bíl með 3 hvarfakúta, hvarfakúturinn er alltaf fremsti kúturinn því hann þarf hita til að virka, næst kemur hljóðkúturinn og svo er aftast einhver resonator yfirleitt (opinn hljóðkútur) Skoðunarmenn hérna virðast vera frekar frjálslyndir þegar kemur að pústkerfinu þannig að ég myndi telja það líklegt, en ég lofa engu.

Re: Pústhiti

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já ég gleymdi víst að taka það fram að þetta er bensínvél.

Re: Diesel vitara

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
En þetta með scoopið er athyglisvert, þyrfti að fá mér hood scoop til þess að halda öllu draslinu undir húddinu köldu, ekki veitir af smá kælingu fyrir glóandi túrbínu.

Re: Bilað

í Jeppar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Túrbínan biluð eða ekki til staðar ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok