Hér ætla ég að skrifa um afltölur í hljómtækjum. Eins og sést hefur á korkunum hérna vita menn almennt ekkert hvað wött eru og fannst mér þurfa að bæta úr því. Wött eru mælieining á afl, sama hvaða formi það kemur fram. Hér erum við að tala um rafmagn og þar eru wött (P) margfeldi af spennu (U) og straum (P). Þegar maður er með DC spennu þá er þetta mjög einfalt, segjum að þú sért með bílamagnara sem er 12V og með 30A öryggi, þá er hámarks afl sem magnarinn getur dregið frá rafkerfinu án...