Ef þú átt við að Percy hefði frekar átt að deyja, þá er ég ekki sammála því. Jú, þótt það sé ljótt að segja það, átti hann það kannski betur skilið, en ef maður pælir í því, þá er rökréttara að Fred deyji (líka ljótt að segja þetta…). Ég skal útskýra hvernig ég sé þetta: Weasley fjölskyldan hefur alltaf verið stór hluti af sögunni, og flestir hafa komið nokkuð við sögu. Bill gat hinsvegar ekki dáið því það var nóg drama í kringum hann í bók nr. 6. Hann var s.s. “búinn”. Charlie hefur ekki...