Úps… eyddi fyrir mistök mínu eigin svari… En ég sagði semsagt að eftir því sem ég best veit, er Margit Sandemo, höfundur Ísfólksins enn á lífi. Bara smá leiðrétting.
Úps… hugsaði þegar ég sá hana fyrst ‘best að senda honum skilaboð og biðja hann um link… þegar ég hef tíma (A)’ svo fékk ég skilaboðin frá þér, pældi ekkert í því, gerði bara það sem þú baðst mig um. Mín mistök…
Ég var alltaf alveg viss um að hann væri dáinn. Eins með Sirius eins og ég var sár yfir því. Fólk sem deyr lifnar ekki bara við aftur upp úr þurru. Hvort sem það er göldrótt eða ekki.
nenni nú sjaldnast að telja orðin, horfi bara yfir textann, veg það og met eftir því hvernig hann lítur út. svo skiptir innihaldið líka máli. ef höfundurinn er að koma með eitthvað nýtt og spennandi sleppi ég inn styttri texta heldur en ef það kemur ekkert nýtt fram.
Leyfði mér að færa þetta hingað þar sem þetta telst full stutt til að vera grein. Annars ágætis klausa, stafsetningin þín er mjög góð en rakst á nokkrar málfræðivillur þarna. En miðað við aldur finnst mér þetta bara mjög gott :)
Ég er heldur ekkert að setja út á þig eða gera lítið úr þér með þessu, svo það sé á hreinu. Það var allavegana ekki meint þannig. Veit alveg að þú hefur gert fullt fyrir þetta áhugamál í gegnum tíðina :) en ég þarf einhvern með mér sem ég get treyst á að fylgist með þegar ég þarf að ferðast um helgar og svoleiðis sem ég geri nokkuð mikið af. Vona að þú takir þessu ekkert illa :)
Jamm. ég hef nú verið hérna meira eða minna ein síðan ég fékk stöðuna, fyrir utan þann stutta tíma sem Gulla var líka, og gengið ágætlega. Byrjum allavegana á einum og sjáum svo til.
Sammála því, ég held ég sé nokkuð góð í að samþykkja hluti og hafa eftirlit með þessu, en ég bara því miður hef ekki tímann í að pæla eitthvað rosalega í hvernig má bæta áhugamálið. Því væri gott að fá einhvern sem hefur tímann og þekkinguna í það og getur gert þetta með mér :)
Official kröfurnar er hægt að finna á umsókninni, það sem mér þætti vænt um er að fá einhvern sem hefur metnað fyrir áhugamálinu og er tilbúinn að vinna með mér að því að bæta það.
Æji, mér þykir þetta mjög leitt, þetta var algjörlega óvart. Myndi breyta þessu ef ég gæti, en “breyta” takkinn í skoðanakönnuninni, er ekki að virka af einhverjum ástæðum, svo þetta verður bara að standa. Vona að mér verði fyrirgefið.
Guð, það var eitthvað sem ég var að gleyma :S Biðst innilegrar afsökunar. Það var reyndar ekki búið að því í langan tíma, en held það sé komið núna. Nægja þér nýjustu tölur eða viltu að ég fari aftar?
vissi af lausri stodu, sotti um, bjost alls ekki vid ad fa stoduna, en var svo allt i einu stjornandi. svo einfalt var tad nu. (sorry ad tad vantar islenska stafi, er i USA)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..