Jæja, ætli sé ekki kominn tími á einhver úrslit í þessari keppni sem við héldum í vor.
Ástæðan fyrir töfinni er sú að við Gulla vorum alltaf að vonast eftir að einhverjir fleiri myndu senda inn, en svo varð ekki. Gulla ætlaði svo að sjá um að ganga frá þessu, en svo hef ég bara ekkert heyrt frá henni í LANGAN tíma, svo nú tek ég þetta bara í mínar hendur.
Setti einfaldlega inn skoðanakönnun og læt hana standa í u.þ.b. viku og tilkynni þá úrslitin.
Verið endilega dugleg að kjósa og höfundar, gangi ykkur vel.
Kveðja,