Komið hvað fjórir svona korkar með þessum, en alla vega, Dumbledore er/var snjall, þá meina ég virkilega snjall. En hvað ef hann hefur gert eitthvað hættulegt og heimskulegt. Til dæmis að gera Horcrux fyrir sjálfan sig. Það eru tvennir hlutir sem mér dettur þá í hug. Í fyrsta lagi hinn “stórskemmtilegi” flokkunarhattur sem virðist alltaf segja það sem Dumbledore vill. Og í öðru lagi fuglinn Fönix. Já, ég veit að það er ekki líklegt en ef Dumbledore er ekki á staðnum þá er fuglinn þar. (Leyniklefinn) Hann gat nú ekki gert mikið í 6 bókinni en ef Dumbledore var í alvöru hræddur við dauðann en varð svo rólegur eftir að hafa búið til Horcruxes. Þetta er nú bara pæling svo pælið í þessu