Ég er sammála að ætti að gera meira úr Toyota mótaröðinni. GSÍ gæti t.d. auglýst mótin snemma, t.d. í vorblaði og fjallað um þá nokkra þeirra kylfinga sem koma til með að taka þátt um sumarið. Einnig auglýsa í blöðum nokkrum dögum fyrir hvert mót. Innskotin í útsendingum Sýnar voru skemmtileg, en þau voru of fá. Það mætti nota innskot með þeim bestu af okkar kylfingum þar sem tekið væri fyrir ýmislegt s.s. glompuhögg, pútt, hvernig kylfingur býr sig undir keppni, umgengni á golfvelli og...