Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Lofttæmdir plastpokar með rennilás (3 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum
Fyrir nokkrum árum sá ég auglýst í sjónvarpsmarkaði sem þá var í sjónvarpinu, plastpoka sem föt og fleira var sett í og síðan var ryksuga notuð til að lofttæma pokann. Þannig átti að vera hægt að geyma fatnað og sængurföt í einhvern tíma. Mig langar að vita hvort einhver kannast við svona ? Hvar er hægt að nálgast þessa poka og virkar þetta ? Mig vantar nefnilega góða lausn til að geyma sængur og kodda yfir veturinn í óupphituðum bústað. Það er svo leiðinlegt að koma að vori og finna...

Neglur (3 álit)

í Heilsa fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hjálp, ég er í vandræðum með neglurnar mínar. þær vilja klofna og brotna mjög auðveldlega. Getið þið eitthvað ráðlagt mér.

Ítalía (1 álit)

í Ferðalög fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Er væntanlega á leið til Písa í vor. Hvernig er best að komast þangað á sem ódýrastan hátt ? Ég vil endilega nýta mér IcelandExpress og fara svo frá London eða Köben áfram

Markmiðs-setning fyrir sumarið (10 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Kæru kylfingar, mig langar að forvitnast hjá ykkur hvaða markmið þið hafið sett ykkur fyrir komandi golfsumar. Gaman væri að heyra frá ykkur flestum og eins hvort fyrri markmið hafi ræst. !!!

Sporthúsið (3 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hefur einhver notað sér golfaðstöðuna í sporthúsinu í Kóp.? Hvernig er þetta uppbyggt ?

Feng Shui (0 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hafið þið prófað Feng Shui fyrir heimilið ? Ef svo, leyfið mér að heyra um það!

Feng Shui (0 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Sælt veri fólkið. Hefur einhver kynnt sér og prófað Feng Shui fyrir heimilið ? Ég rakst á grein um þetta mál í Gestgjafanum. Mér þætti fróðlegt að heyra meira um þetta, hvort þetta hefur virkað ?

Æfingaáætlun fram á vorið ! (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hvernig er best að æfa sig fram á vorið, þar til hægt er að fara að spila úti við ? Með æfingu á ég við, líkamlega, andlega og sveifluæfingar.

Kylfingar , EKKI Golfarar (6 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þið kylfingar og aðrir. Ekki segja golfarar, það er svo leiðinglegt orð, notið heldur kylfingar. Þið segið t.d. ekki fótboltarar, heldur knattspyrnumenn um þá sem spila knattspyrnu.

Jólahald (1 álit)

í Hátíðir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Erum við ekki farin að gleyma helgi jólanna ? Jólin eru EKKI rjúpur, jólasveinn, kaupæði, át og stress. Jólin eru til að fagna fæðingu frelsarans. Róum okkur niður og minnum okkur á hinn eina sanna tilgang jólanna. Gleðileg jól til ykkar allra.

Písa (0 álit)

í Ferðalög fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hefur einhvert ykkar komið til Písa ? Veit einhver um góðar upplýsingar um staðinn á netinu. Er á leið þangað í vor og vantar upplýsingar.

Þrekhjól (3 álit)

í Heilsa fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sæl þið þarna úti. Hafið þið reynslu af Orbitrek þrekhjólum Hvernig er best að nota þau svo þau virki sem best ? sérstaklega til að léttast !
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok