Hunsaðu hann! Ég þekki svona gutta, sem hóta sjálfsmorði og láta eins og vitleysingar, af eigin raun. Mín reynsla er allavega sú að þeir vilja bara láta vorkenna sér (sem tekst því miður oft) og þeir myndu aldrei láta verða af því að kála sér. Vertu ekki að eyða púðri í hann, láttu hann bara eiga sig og reyndu að gleyma honum. Hugsaðu um sjálfa þig en ekki hann, það er heilsuspillandi og hættulegt geðheilsunni að umgangast svona fólk.